Fréttatíminn - 06.12.2013, Qupperneq 82
82 matur & vín Helgin 6.-8. desember 2013
www.veidikortid.is
2 0 1 4
00000
Jólagjöf veiðimannsins
Veiðikortið 2014
Nánari upplýsingar á:
vín vikunnar
Faustino
Cava Brut
Gerð: Freyðivín.
Þrúgur: Cava-
blanda.
Uppruni: Spánn.
Styrkleiki: 11,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 1.999 kr.
(750 ml)
Umsögn: Cava er
kampavín þeirra
Spánverja. Þetta
Cava frá hinu
þekkta Faustino
vínhúsi er þurrt
en hefur léttan
ferskleika. Það er
auðvitað fínasti
fordrykkur en um
er að gera að prófa
það með mat, til
dæmis með hörðum
ostum og einhverju
sætu, eins og
hunangi eða sultu.
Peter Lehmann
Futures Shiraz
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Shiraz.
Uppruni: Ástralía,
2009.
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 2.999 kr.
(750 ml)
Umsögn: Krydd-
aður Shiraz er
ekta vetrarvín.
Þessi Futures frá
Peter Lehmann
er berjaríkur og
eikaður og hentar
mjög vel með hvers
konar kjötréttum.
Graham's 10 ára
Tawny
Gerð: Púrtvín.
Uppruni: Portúgal.
Styrkleiki: 20%
Verð í Vínbúð-
unum: 5.499 kr.
(750 ml)
Umsögn: Þetta
púrtvín sker sig
úr fyrir að vera af
Tawny-gerð sem
þýðir að það hefur
fengið að þroskast
í eikartunnum.
Graham's Tawny
fékk heil tíu ár í
eikartunnu sem
skilar sér í mjög
mjúku og þroskuðu
púrtvíni.
Rautt og sætt
Púrtvín er framlag Portúgala til vínmenningar heimsins.
Púrtvín, eða portvín, er framleitt bæði rautt og hvítt, þurrt,
hálfsætt og sætt. Algengasta gerðin er þó sætt eftirréttavín.
Fyrir þá sem eru komnir aðeins lengra er um að gera
að prófa Tawny
púrtvín. Það er
rautt og þroskað
í trétunnu, með
smá hnetukeim.
Púrtvín er tilvalið
nú í jólaundirbún-
ingnum, við bakstur-
inn og með sjálfum piparkökunum. Osborne Ruby er fínasta
dæmi um góðan Ruby púrtara, það er bæði sætt og mjúkt.
Það hentar vel með eftirréttum en er líka gott eitt og sér
með kaffinu.Osborne Ruby
Gerð: Púrtvín.
Uppruni: Portúgal.
Styrkleiki: 19,5%
Verð í Vínbúðunum:
3.699 kr. (750 ml)
Undir 2.000 kr. 2.000-4.000 kr. Yfir 4.000 kr.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Réttur vikunnar
Piparkökur
Þetta er stór uppskrift þannig að
ef ekki á að baka margar plötur má
alveg helminga hana.
500 g hveiti
250 g sykur
1 tsk. negull
1 tsk. kanill
1 tsk. engifer
2 tsk. kakó
5 tsk. lyftiduft
2 tsk. matarsódi
1 tsk. hvítur pipar
280 g smjör, mjúkt
1 egg
350 g síróp
Blandið öllum þurrefnunum vel
saman. Myljið smjör saman við
og bætið síðan eggi og sírópi við.
Hnoðið þar til allt er orðið samfellt.
Pakkið deiginu inn í plastfilmu og
setjið það í kæli í a.m.k. klukku-
stund, má vera yfir nótt. Þetta er
ekki nauðsynlegt en það er betra
að fletja deigið út þegar það hefur
fengið að jafna sig dálítið. Hitið
ofninn í 185°C. Fletjið deigið út
þannig að það sé 3-4 mm á þykkt
og skerið út kökur með formum.
Raðið á bökunarpappírsklædda
ofnplötu og bakið í 20 mínútur eða
þar til kökurnar hafa tekið örlítinn
lit á brúnum. Látið kökurnar kólna
og skreytið með glassúr. Þessa upp-
skrift má líka nota þegar á að gera
piparkökur sem ekki eru mynda-
kökur. Þá eru mótaðar litlar kúlur úr
deiginu, þeim raðað á ofnplötu og
þrýst létt með gaffli á hverja kúlu.
Engiferkökur
150 g púðursykur
100 g sykur
200 g smjör, mjúkt
1 egg
1 tsk. vanilludropar
300 g hveiti
1 tsk. engiferduft
1 tsk. kanill
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
2 tsk. rifinn sítrónubörkur
2 tsk. rifið engifer
2 dl. fínt saxaðar valhnetur
Hitið ofninn í 180°C. Hrærið púður-
sykur, sykur og smjör saman þar
til mjúkt og létt. Setjið egg saman
við og síðan vanilludropa. Blandið
öllum þurrefnunum vel saman og
setjið út í smjörblönduna, vinnið
saman og bætið síðan sítrónu-
berki, engiferi og valhnetum við.
Hrærið þar til samfellt, ekki of lengi.
Setjið bökunarpappír á ofnplötu og
notið teskeið til þess að búa til litlar
kökur. Bakið í 10-15 mín. eða þar til
kökurnar eru fallega gylltar. Látið
þær kólna áður en þið raðið þeim á
disk eða í box.
Sandeman's Old
Invalid
Gerð: Púrtvín.
Uppruni:
Portúgal.
Styrkleiki: 19,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 3.999 kr.
(750 ml)
Piparkökur og engiferkökur
Katrín Rut Bessadóttir,
blaðamaður á Gestgjafanum, er
byrjuð að baka fyrir jólin. Hún
færir hér lesendum Fréttatímans
tvær uppskriftir að piparkökum.
Þá fyrri notar hún þegar hún gerir
myndapiparkökur en sú síðari eru
hálfgerðar engiferkökur.