Fréttatíminn - 06.12.2013, Side 104
Í takt við tÍmann Heiða Rún SiguRðaRdóttiR
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn er afslappaður en pínu rokk-
aður. Mér finnst rosa gaman að versla í vin-
tage-búðum. Ég er hrifin af buxum frá Cheap
Monday, það eru rosa góðar vörur þar. Líka í
Monki. Þetta eru tvær sænskar og góðar búðir.
Hér heima líst mér vel á Suit, nýju búðina sem var
að opna á Skólavörðustíg. Hún er í svipuðum anda
og þessar sænsku búðir.
Hugbúnaður
Ég fer mikið í bíó þegar ég á lausan tíma eða hitti vini mína. Sér-
staklega hérna heima því ég verð bara í takmarkaðan tíma og reyni
því að hitta sem flesta. Við förum þá gjarnan á kaffihús og spjöllum
um lífið og tilveruna. Þá er gott að fara á Babalú, það er mjög krúttlegt
og kósí að vera þar. Ég er ekki búin að fara mikið út á lífið hérna heima,
ég hef gert eitthvað af því en það er ekki í forgangi hjá mér. Þegar ég fer á
bar byrja ég alltaf á bjór og síðan fer ég í tvöfaldan gin & tónik þegar líður
á kvöldið. Ég hef ekki búið heima lengi og því finnst mér mjög gaman að
horfa á sjónvarp með fjölskyldunni, með systur minni og foreldrum. Ég er
nýbúin að klára Breaking Bad og á erfitt með að komast yfir það að þetta
sé búið. Ég veit ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig því það er ekkert sem
getur tekið við. Nema kannski Sopranos en ég er ekki byrjuð á þeim. Ég horfi
enn á Homeland og uppáhalds grínþátturinn minn er
30 Rock. Tina Fey er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég
fór á Hross í oss í bíó í gær og fannst hún æðisleg.
Vélbúnaður
Ég á Macbook Air og iPhone. Símanum var stolið
þremur vikum eftir að ég fékk mér hann og ég verð
að viðurkenna að ég kunni ekki að vera án hans
þannig að ég fékk mér nýjan. Ég myndi þó ekki segja
að síminn væri fastur við mig, en það er gott að hafa
hann. Ég er á Twitter (@ReedHeida) og nota það mikið
fyrir vinnuna. Facebook nota ég meira prívat.
Aukabúnaður
Ég er ekkert svakalega dugleg að elda en ég geri það stundum. Og þegar ég
geri það er ég frekar metnaðarfull og prófa mig áfram með nýja rétti. Hérna
heima elda ég stundum fyrir fjölskylduna en mamma og pabbi eru samt miklu
duglegri. Ég elska allan ítalskan mat og úti í London finnst mér líka ótrúlega
gott að borða víetnamskan mat. Ég vinn við það sem ég hef áhuga á, kvikmyndir,
leikhús og sjónvarp en ég hef líka mikinn áhuga á tónlist. Fyrir nokkrum árum
starfaði ég sem fyrirsæta og fékk tækifæri til að ferðast víða. Ég bjó á Indlandi og
ferðaðist þaðan til Tælands, Dubai og Malasíu. Ég sakna Indlands rosalega en ég
varð líka yfir mig ástfangin af Tælandi. Þar er ótrúlega fallegt og afslappað.
appafenguR
Íslenska hugbúnaðarhúsið Gebo Kano,
sem áður hét Ísl-leikir og gaf meðal
annars út appið Segulljóð, hefur nú sent
frá sér jólaapp sem heitir Jólasveinadaga-
talið. Appið er aðeins til fyrir iPad, sumsé
ekki fyrir síma, en megintilgangur þess
er að gefa upplýsingar um nöfn, komutíma
og einkenni allra íslensku jólasveinanna.
Appið minnir á hvaða jólasveinn er næstur
til byggða þannig að engin hætta er á
því að ruglast á röðinni. Foreldrar sem
ekki eru vanir að fylgjast með því hvaða
jólasveinn kemur hvenær geta nú farið yfir
það með börnunum sínum að kvöldi hvaða
jólasveinn er væntanlegur til byggða.
Í appinu eru einnig fróðleiksmolar um
Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn, sem
enginn vill fara í. Til að stytta sér stundir
er líka þrautaleikur í appinu sem kemur
öllum í jólaskap.
Myndskreytingar í appinu eru eftir Guð-
nýju Steinsdóttur.
Til fróðleiks má luma því með að Gebo
og Kano eru heiti á rúnum úr FUÞARK-
stafrófinu.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Jólasveina-
dagatalið
ELDHEITT PIRI-PIRI LAMB
Glæsibæ • Dalvegi • N1 Ártúnsbrekku • Bæjarhrauni • Skoðaðu matseðilinn á saran.is
Heiða Rún Sigurðardóttir ætlar að njóta jólahá-
tíðarinnar með fjölskyldu sinni á Íslandi en eftir
áramót fer hún til London í prufur fyrir sjón-
varpsþætti og kvikmyndir. Ljósmynd/Hari
Veit ekki hvað ég á að
gera eftir að Breaking
Bad kláraðist
Heiða Rún Sigurðardóttir er 26 ára leikkona sem lærði úti í
London og hefur þegar landað hlutverkum í bíómynd og
sjónvarpsþáttum í Bretlandi. Hún lék nýverið í sjónvarps-
þáttunum Hrauninu sem eru framhald Hamarsins sem
sýndir voru á RÚV fyrir fjórum árum. Heiða fer
eftir áramót aftur til London í prufur fyrir fleiri
hlutverk.
104 dægurmál Helgin 6.-8. desember 2013