Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Side 2

Fréttatíminn - 01.02.2013, Side 2
Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Smurostar við öll tækifæri ms.is ... ný bragðtegund H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A - 1 1- 05 09 Ný bragðtegund með pizzakryddi Ný viðbót í ... ... baksturinn ... ofnréinn ... brauðréinn ... súpuna eða á hrökkbrauðið Vill stríðsminjasafn í Mosfellsbæ Sigfús Tryggvi Blumenstein hefur sent inn erindi til Mos- fellsbæjar þar sem hann lýsir yfir áhuga á því að sett verði á fót stríðsminjasafn í Mos- fellsbæ. Sjálfur á hann fjölda muna frá hernáminu og á sér þann draum að um þá verði stofnað safn. „Þetta hefur verið áhuga- mál hjá mér í mörg ár, að stofna safn í Mosfellsbæ sem tengist veru hersins hér á Ís- landi,“ segir Sigfús. „Gríðar- legur fjöldi hermanna var í Mosfellsbæ á stríðsárunum og því myndi ég vilja að safn- ið yrði þar,“ segir hann. Best hugnast honum sjálfum að nota gamalt hús í eigu bæjar- ins, Brúarland sem stendur við Varmá og Vesturlandsveg, undir safnið en þar voru ein- mitt höfuðstöðvar hersins. „Sjálfur á ég þó nokkuð safn, allt frá smá minjagrip- um og upp í tundurdufl og mögulega farartæki,“ segir hann. Ekkert stríðsminjasafn er að finna á höfuðborgar- svæðinu, að sögn Sigfúsar, en eitt er á Reyðarfirði og annað í Hvalfirði. Hugmyndin er enn á byrj- unarstigi, að sögn Sigfúsar, en bæjarráð Mosfellsbæjar er jákvætt fyrir erindinu og hefur vísað því til afgreiðslu menningarmálanefndar bæjarins.  Sagnfræði Áhugamaður um hernÁmið vill Safn um hluti Sína tengda Stríðinu Liðsforingjabúningur í eigu Sig­ fúsar Tryggva Blumenstein sem var hluti af sýningu á Bókasafni Mosfellsbæjar árið 2010. Þúsundir mótmæla náttúru verndar­ frumvarpi Nær 11 þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli gegn nýju frumvarpi til nátt­ úruverndarlaga á þeim forsendum að lögin hefti för almennings um íslenska náttúru og skerði aðgengi til útivistar á Íslandi. Skorað er á þingmenn að samþykkja ekki frumvarpið óbreytt. Andstæðingar frumvarpsins halda því meðal annars fram að útivistarhópum sé mismunað eftir ferðamáta, ekki sé tekið tillit til hópa eins og fatlaðra, aldraðra eða fólks með ung börn sem ekki geta vegna aðstæðna sinna farið um hálendið fótgangandi. ­sda Bera út sinn eigin póst Ísfirðingar eru margir hverjir óánægðir með þjónustu Íslandspósts og setja það fyrir sig hversu sein þjónustan er, að því fram kemur á bb.is. Mörgum finnst flokkunarkerfi Íslandspósts valda óhag­ ræðingu þar sem allur pósturinn er sendur til Reykjavíkur í flokkun. Sumir hafa tekið þá ákvörðun að hætta viðskiptum við fyrir­ tækið og dreifa sjálfir þeim bréfum sem senda á innanbæjar. „Við keyrum frekar eða löbbum með það sem við getum, hvort sem er inni í firði eða niðri í bæ,“ segir Aðalheiður Óladóttir hjá versluninni Þristi Ormsson í viðtali við bb.is. Hún sendir bréf fyrir bæði verslunina Þrist og vélsmiðjuna og segir að það muni heilmikið um þennan kostnaðarlið auk þess sem bréfin berist fyrr með þessum hætti. ­sda Enn dregur úr atvinnu­ leysi Atvinnuleysi á fjórða ársfjórðungi 2012 mældist í fyrsta sinn undir 5 prósentum frá því fyrir hrun og hefur það minnkað um 1,3 prósentustig á milli ára. Atvinnuleysi er 5,4% hjá körlum og 4% hjá konum á þessu tímabili og voru að meðaltali 8.400 manns án vinnu og í atvinnuleit og fækkaði þeim um 2200 milli ára. Þá hefur langtímaatvinnuleysi dregist saman og voru að jafnaði 3.400 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 1,9% vinnuaflsins. Til samanburðar höfðu 2.900 manns verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur á þriðja ársfjórðungi 2012 eða 1,7% vinnu­ aflsins. Ríkið býður hækkun Hjúkrunarfræðingum verður á mánudag kynnt hversu miklu fjármagni ríkið hyggst verja í endurskoðun stofnanasamnings hjúkrunarfræðinga á Landspítala sem ætlað er að bæta launakjör þeirra hjá Landspítalanum, að því er fram kemur á vef félags hjúkrunarfræðinga. Ríkisstjórnin hefur samþykkt minnisblað um jafnlaunaátak 2013 þar sem fram kemur í raun að hjúkrunarfræð­ ingar hafi þurft að sæta kynbundnum launamun. Ekki fékkst upp­ gefið hversu hárri upphæð ríkið hyggst verja til launahækkunar hjúkrunarfræðinga á næsta ári. ­sda É g er frekar þungur og hryggur yfir þessu. Þetta kom snögglega og ég var búinn að plana að hafa þessa leigu hérna og bjóða mitt sjaldgæfa efni næstu árin,“ segir Ragnar Snorrason sem tók við rekstri Grensásvideós fyrir sléttum tíu árum. Leigan sjálf er hins vegar að verða þrjátíu ára og því með þeim elstu á land- inu. „Ég hef miðað öll innkaup mín síðustu fimm, sex árin við það að ég yrði hérna áfram en því miður stendur þetta ekki undir sér lengur.“ Kvikmyndaáhugafólk hefur í gegnum árin helst sett traust sitt á Grensásvideó, Aðalvideóleiguna og Laugarásvideó þegar það leitar að sjaldgæfum myndum, eldra efni, sjónvarpsþáttum og myndum utan meginstraumsins frá Hollywood. Í lok febrú- ar mun Grensásvídeó hins vegar tilheyra fortíðinni. „Ég hef haft mjög einbeittan vilja til þess að hafa leiguna sér á parti og reynt að gera góða hluti hérna þannig að maður verður svakalega svekktur þegar maður er búinn að eyða miklum fjármunum og tíma í að byggja þetta safn upp. Ég hef í raun verið allt of harður í innkaupum miðað við að ég þarf að loka núna.“ Ragnar segist ekki síst hafa lagt mikla áherslu á breskt gæðaefni og myndir og þætti frá hinum Norðurlöndunum. Við- skiptavinir hans hafi ekki síst sótt í þetta efni og þeir séu nú margir hverjir með böggum hildar. „Það eru margir hérna leiðir og eiginlega í öngum sínum og það er mikil sorg á Facebook-síðu leigunnar. Ég yrði nú sjálfur leiður ef ég sækti í efni og svo myndi bara eini staðurinn sem er með það skella í lás.“ Ragnar ætlar að reyna að koma lager Grensásvídeós í verð og á föstudag hefst rýmingarsala og hann vonast til að geta tæmt leiguna fyrir mánaðamót. „Þetta byrjar formlega á föstudag en fastakúnn- arnir eru byrjaðir að róta í þessu. Það má segja að þeir séu með ákveðinn forkausp- rétt. Hér leynist mikið af perlum og ég veit að sumt sem ég er að fara að selja hérna fyrir lítinn pening er nánast ófáanlegt og kostar sumt hvert tugi þúsunda á Amazon. En maður getur ekkert verið að pæla í því,“ segir Ragnar sem selur flestar kvikmyndir á 500-900 krónur og flestar sjónvarpsseríur á 1000 krónur en gæðaefnið frá BBC er á 1500, hver þáttaröð. Þórarinn Þórarinson toti@frettatiminn.is  ragnar SnorraSon lokar grenSÁSvideói Kveður myndbanda- leiguna með trega Ég hef í raun verið allt of harður í innkaupum miðað við að ég þarf að loka núna. Ragnar Snorrason ætlar að skella Grensásvídeói í lás í síðasta sinn fyrir næstu mánaðarmót. Rýmingarsalan hefst formlega hjá honum í dag og af því tilefni opnar hann leiguna klukkan 13 í stað 15 föstudag, laugardag og sunnudag. Ljósmynd/Hari Það er af sem áður var þegar myndbandaleigur voru á nánast öðru hverju götuhorni í Reykjavík. Tækniframfarir og breytt neysluhegðun hafa þrengt mjög að myndbandaleigunum á síðustu árum og þeim hefur fækkað jafnt og þétt. Um mánaðamótin hættir svo Grensásvideó sem er ein elsta og rómaðasta leiga landsins. Eigandinn, Ragnar Snorrason, segist skella í lás með trega en í dag, föstudag, hefst rýmingarsala í leigunni. 2 fréttir Helgin 1.­3. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.