Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 54
54 langur laugardagur Helgin 1.-3. febrúar 2013 Þú nnur okkur á Facebook undir “Fatabúðin” Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050 Vöggusængur og vöggusett í góðu úrvali Margar gerðir af búningasilfri. Allar upplýsingar um hefð og gerðir búninga eru veittar á staðnum. Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. Sérverslun með kvensilfur www.thjodbuningasilfur.is 50% AFSLÁT TU R Ú T S A L A Næstkomandi laugardag, 2. febrúar, mun ATMO í samstarfi við Sóley Organics halda dekurdag frá klukkan 13-15. Snyrtifræðingur á vegum Sóley Organics verður á staðnum og veitir persónulega þjónustu. Boðið verður upp á með- ferð fyrir hendur þar sem vörurnar frá Sóley Organics verða kynntar. Einnig verður boðið upp á tilboð frá Sóley Organics þar sem fást 5 vörur en borgað er fyrir 3. Aðalinnihaldsefni snyrtivaranna eru handtíndar íslenskar jurtir og allar vörur frá Sóley húðsnyrtivörum eru byggðar á blöndu af íslensku birki, vallhumli og víði. Sóley í ATMO L íf og tilvera langt leiddrar fyllibyttu, sem komin er í dagdrykkju og læti, get-ur orðið ansi hreint samhengislaust og tætingslegt rugl. Að vísu dásamlega skemmti- legt og spennandi á köflum enda fylgir hnignandi siðferði subbulegt og spennandi kynlíf, alls konar hasar, slagsmál, mikið fjör og grín. Inn á milli eru hins vegar harkalegar brotlendingar, skelfilegir bömmerar, skjálfti, kaldur sviti, ótti, ranghugmyndir, vænisýki og fleiri fylgikvillar sem ekki er hægt að afgreiða öðruvísi en með því að drekka meira. Ofan á þetta allt saman leggjast svo áhyggjur, sár vonbrigði og nístandi sársauki maka, barna, nánustu fjölskyldu og vina. Slíkt þvælist þó ekkert sérstaklega fyrir ofvirka alkanum sem veltir sér upp úr sjálfhverfu sinni eins og úldin ýsa í raspi enda eru helstu vopn og verjur bytt- unnar afneitun og massívur hroki. XL gerir öllu þessu endalausa bulli sem fylgir alkóhólistum eiginlega alveg frábær skil. Myndin er samhengislaus kokkteill atvika og alls konar átaka sem fylgja sukkinu. Handritshöfundarnir fara þá hættulegu en um leið heiðarlegu leið að hafa umgjörðina í fullkomnu samræmi við innihaldið. Línulaga frásögn, upphaf, miðja og endir koma því ekki til greina enda er rökrétt framvinda víðs fjarri þegar dottið er almennilega íða. Þetta byrjar með fyrsta glasinu og þar með hefst hringa- vitleysan, helför án fyrirheits. Ólafur Darri Ólafsson er leikari í algerum sérflokki og ég hef hingað til ekki farið leynt með aðdáun mína á miklum hæfileikum hans og XL gefur mér enga ástæðu til þess að hætta því. Myndin hvílir á herðum Ólafs Darra sem er nánast alltaf í mynd og skilar drykkfellda þingmanninum Leifi Sigurðar- syni með glæsibrag. Þessum manni virðist ekkert ofviða og hann getur borið uppi og dregið leiksýningar og bíómyndir í land, að því er virðist fyrirhafnarlaust. Sérgæska og hroki alkans lekur af Ólafi Darra sem hefur hingað til fengist við öllu geðslegri persónur en þennan sótraft. Eftir harkalegan fyllirísbömmer sem endar á YouTube reynir forsætisráðherra Íslands að þvinga Leif í meðferð en okkar maður sér vita- skuld enga vitglóru í slíku bulli enda fær hann ekki séð að hann eigi við neitt vandamál að stríða. Hann byrgir sig því vel upp af áfengi og hendir í eitt almennilegt partí sem gæti orðið hans síðasta. XL er þvert yfir mjög vel leikin þótt Ólafur Darri gnæfi yfir henni. María Birta leikur unga ástkonu Leifs og sýnir enn og aftur að hún er frambærileg leikkona. Hún er til- gerðarlaus og eðlileg á tjaldinu, rétt eins og hún var í Óróa og Svartur á leik. Hún striplast heilmikið í XL, rétt eins og hún gerði í Óróa og Svartur á leik og nú verður stúlkan að fara að fá hlutverk sem krefst þess ekki af henni að hún tæti sig úr hverri spjör. Það er miklu meira í hana spunnið. Sjálfsagt fer frásagnarmáti XL öfugt í marga áhorfendur og sennilega fá fæstir aðrir en sjóaðar fyllibyttur (að því gefnu að þær muni eitthvað af eigin afrekum) nokk- urn botn í þau ósköp sem fram fara á tjaldinu. Þetta breytir því þó ekki að XL er áhugaverð mynd sem á erindi við alla enda er öll þjóðin annað hvort virkir eða óvirkir alkóhólistar eða kengmeðvirkir aðstandendur og þótt öllum sé ekki gefið að meðtaka þessa groddalegu en sönnu afgreiðslu Marteins Þórssonar á drykkjuruglinu þá ættu í raun allir að sjá sjálfa sig eða brot af sér í einhverj- um persónum myndarinnar. XL er eiginlega nákvæmlega eins og gott fyllirí. Tætingsleg, órökrétt, skemmtileg á köflum en hrollvekjandi þess á milli. Ólíkt drykkjutúr er myndin hins vegar hugvekjandi og að loknu áhorfi standa fyllibyttur aðeins frammi fyrir tveimur kostum; Hrynja íða eða fara í meðferð. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Bíódómur XL  Eitruð pólitík Bakkusar Ólafur Darri er frábær að vanda í hlutverki þingmannsins og fyllibyttunnar Leifs Sigurðar- sonar sem er ansi hreint sannfærandi skólabókardæmi um virkan alkóhólista. XL er sýnd í Bíó Paradís við Hverfisgötu um helgina. Á föstudag klukkan 20.10 og 22.00. Á laugardag klukkan 22.00 og á sunnudag klukkan 15.00 og 22.20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.