Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 66
Segja má að með The Last Stand sé ríkisstjórinn fyrrverandi Arnold Schwarzenegger loksins kominn af fullum krafti aftur í kvikmyndirnar en hér er hann í sínu fyrsta aðalhlutverki eftir að ríkisstjóratíð hans í Kaliforníu lauk. Hann átti að vísu sterka innkomu sem málaliði í The Expendables 2 en nú á hann sviðið einn og heldur áfram að gera það sem hann gerir best. Að drepa vonda menn með látum. Arnold leikur hér lögreglustjóra í smábæ þar sem róleg tilvera bæjarbúa fer í uppnám þegar eiturlyfjabarón á flótta undan lög- reglunni ætlar sér að bruna í gegnum bæinn ásamt málaliða- gengi á leið sinni til Mexíkó. Lögreglustjórinn er kominn af léttasta skeiði og er í fyrstu tregur til þess að taka þátt í umfangsmikilli lögregluaðgerð sem ætlað er að stöðva flóttann. Hann safnar þó að lokum saman liði sínu og þá fyrst eru skúrkarnir í vondum málum. Jackass-brjálæðingurinn Johnny Knoxville er Arnold til halds og trausts í myndinni auk þess sem heiðursmennirnir Luis Guzmán og sænski jaxlinn Peter Stormare láta til sín taka. Aðrir miðlar: Imdb: 7.2, Rotten Tomatoes: 59%, Metacritic: 54% 66 bíó Helgin 1.-3. febrúar 2013 Lincoln lifði ekki lengi eftir að hann náði þessu takmarki sínu þar sem hann fékk þá arfaslæmu hugmynd kvöld eitt að drífa sig með eiginkonu sína í leik- hús.  Frumsýnd spielberg á sögulegum slóðum A f þeim 44 forsetum sem Bandaríki Norður Ameríku hafa átt hvílir einna mestur ljómi yfir Abraham Lincoln. Hann var sextándi forseti Bandaríkjanna og sat í embætti frá mars 1861 til apríl 1865 þegar hann var myrtur. Lincoln leiddi þjóð sína í gegnum einhvert mesta umrótaskeið í sögu hennar, blóðuga borgarastyrjöld á milli ríkjanna í norðri og suðri og harkalegar deilur um stjórnarskrárbreytingu sem fól í sér afnám þrælahalds. Spielberg hefur lengi gengið með hug- myndir um að gera lífi Lincolns skil á hvíta tjaldinu og fer ekki leynt með aðdáun sína á forsetanum. Hann segir þó forsetatíð Lincolns of mikilfenglega til þess að mögulegt sé að afgreiða hana alla í einni kvikmynd. Hann afréð því að einbeita sér að síðustu mánuðum forsetans í embætti. Þá lauk borgarastyrjöld- inni blóðugu sem stundum er kölluð þræla- stríðið þótt hún hafi nú snúist um fleira en þá hugsjón forsetans að allir menn ættu að vera jafnir og Lincoln tókst að berja stjórnarskrár- breytinguna, sem fól í sér afnám þrælahalds, í gegnum þingið. Lincoln lifði ekki lengi eftir að hann náði þessu takmarki sínu þar sem hann fékk þá arfa slæmu hugmynd kvöld eitt að drífa sig með eiginkonu sína í leikhús. Þar sat John Wilkes Booth, þekktur leikari og flugumaður Suðurríkjamanna, fyrir forsetanum og skaut hann til bana í forsetastúku Ford-leikhúsinu. Spielberg teflir fram einvala liði leikara í myndinni. Daniel Day-Lewis gefur sig allan í aðalhlutverkið og umbreytist nánast í Abra- ham Lincoln, Sally Field leikur forsetafrúna Mary Todd Lincoln og í öðrum mikilvægum hlutverkum eru höfðingjar á borð við David Strathairn, Joseph Gordon-Levitt, James Spa- der, Tommy Lee Jones, Jackie Earle Haley og gamli jaxlinn Hal Holbrook. Spielberg gat sér fyrst gott orð og sigraði heiminn með mögnuðum ævintýramyndum eins og Raiders of the Lost Ark og geim- dramatík í Close Encounters of the Third Kind og E.T. Hann er almennt talinn hafa fundið upp sumarsmellinn með Jaws árið 1975 og tók af öll tvímæli um að hann er í fremstu röð brellumeistara með Jurassic Park sem þótti býsna byltingarkennd árið 1993. En Spielberg þráði meiri viðurkenningu og Ósk- arsverðlaun og gerði nokkrar atrennur til þess að stimpla sig inn sem alvarlegur kvikmynda- gerðarmaður. Honum tókst ekki að láta óskarsdrauma sína rætast með The Color Purple og Empire of the Sun en kom sá og sigraði með Schind- ler's List 1993 og fékk síðan aftur styttu fyrir leikstjórn Saving Private Ryan 1998. Spielberg er svo líklegur til þess að gera góða ferð á Óskarsverðlaunahátíðina í febrúar þar sem Lincoln er með flestar tilnefningar, tólf talsins. Spielberg er tilnefndur fyrir leikstjórn og Lincoln sem besta myndin. Þá eru Daniel Day- Lewis, Sally Field og Tommy Lee Jones einnig tilnefnd fyrir frammistöðu sína í myndinni. Aðrir miðlar: Imdb: 7.9, Rotten Tomatoes: 90%, Metacritic: 86% Abraham Lincoln er einhver dáðasti forseti sem Bandaríkjamenn hafa átt og þá ekki síst fyrir það að í stjórnartíð hans var þrælahald afnumið í Bandaríkjunum. Sjálfsagt á þessi stórmynd Stevens Spielberg ekkert eftir að draga úr dýrðarljómanum sem umlykur Lincoln en leikstjórinn er hér á hádramatísku nótunum þegar hann segir söguna af einarðri baráttu forsetans gegn þrælahaldinu. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Síðustu mánuðir Abrahams Lincoln Abraham Lincoln átti stórar stundir í lok borgarastríðsins og lauk ferli sínum með því að afnema þrælahald.  Frumsýnd The lAsT sTAnd Arnold tortímir dópskríl MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  MIÐASALA: 412 7711 KOMDU Í KLÚBBINN! bioparadis.is/klubburinn SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! NÝTT Í BÍÓ PARADÍS Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS CHAPLIN: THE KID ÞRJÚBÍÓ SUNNUDAG | 950 KR. INN HVELLUR HEIMILDAMYNDIN UM LAXÁRDEILUNA SEM ER AÐ SLÁ Í GEGN! ****- Rás 2 *****-Morgunblaðið ****- Fréttablaðið Arnold Scharzenegger er mættur aftur í hasarmynd- irnar af fullum krafti og komi hann fagnandi.  Frumsýnd pArker Statham hefnir sín Hörkutólið Jason Statham er við sama heygarðshornið í spennumyndinni Parker þar sem hann leikur þjóf sem stelur aðeins peningum frá þeim sem eiga nóg af þeim og beitir fólk ekki ofbeldi nema hann telji það eiga slíkt skilið. Hann fremur nokkur vel heppnuð rán með nýjum samstarfsmönnum en síðan svíkja ruddarnir okkar mann og skilja við hann nær dauða en lífi úti á miðri hraðbraut. Ófeigum er hins vegar ekki í hel komið og eftir að Parker nær fyrri styrk leggur hann í hefndarleiðangur gegn þeim sem sviku hann. Jennifer Lopez, Nick Nolte og Michael Chiklis eru í helstu hlutverkum í myndinni ásamt Statham. Aðrir miðlar: Imdb: 6.3, Rotten Tomatoes: 36%, Metacritic: 45% Jason Statham er í hefndarhug í Parker.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.