Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 01.02.2013, Blaðsíða 38
facebook.com/noisirius Vaknaði í morgun dofin upp að hnjám í fótunum. Er kalt og skrýtin í höfðinu, átti tíma í nálastung- um en treysti mér ekki til að fara, var svo rugluð að ég reyndi að nota fjarstýringuna til að hringja og þurfti að horfa lengi á hana til að uppgötva að hún var ekki það sem ég ætlaði að nota til að hringja, fann gemsann minn og hringdi úr honum en skellti svo á því að ég ætlaði að nota heimasímann, fann hann og hringdi. Þetta ferli tók langan tíma. Er með mikinn svima. Er illt í augunum og hálsinum, finnst eins og að það liggi strengur um mig miðja, er aum í nýrnastað. Er búin að vera mjög þreytt síðustu tvo sólar- hringa og hef sofið út í eitt. Vaknaði dofin í fótum í fyrradag en minna dofin í fótum í gær en þá var ég dofin í vinstri handlegg. Mjög slöpp og máttfarin. Er illt í kviðarholi, mikið loft í mér. Hef sofið í mikið af fötum síðustu tvær nætur og sit núna með fæturnar í hitapoka og er í hlýj- um fötum en samt er mér skelfilega kalt. Ég er ekki með neinar kvíðahugsanir, er bara óskaplega þreytt og dofin í hugsun, er lengst inn í móðu eða þoku. Flökurt og völt á fótunum. Dagurinn líður og mér er alltaf jafn kalt, er með öll einkennin áfram, þreytt en get haldið mér vakandi á hnefanum. Sofnaði smá stund seinni partinn, vaknaði meira dofin í fótunum og mikið loft í maganum og líður verr ef eitthvað er. Þetta skrifaði Matthildur hjá sér þann 3. júní 2009 að fara fyrr en ég hefði farið í ein- hverjar rannsóknir. Fjöldi manns kom og reyndi að telja mér hug- hvarf en ég lét mig ekki, setti hendurnar fyrir aftan bak þegar átti að reyna að taka af mér spít- alaarmbandið. Um nóttina kom til mín læknir sem sagði mér að ég væri blóðlítil og ég yrði send í ristilspeglun og magaspeglun – en þá yrði ég að fara heim núna,“ segir Matthildur. Hún neyddist til að fara heim þar sem hún lá í sex vikur og beið eftir að komast að í rann- sóknirnar. „Þegar ég loks fór í ristilspeglunina kom í ljós æxli í ristlinum sem var á stærð við appelsínu. Það var svo stórt að ristillinn var næstum alveg lok- aður og myndavélin komst ekki framhjá því. Æxlið hafði því verið að vaxa þarna í 10-12 ár eftir því sem læknarnir sögðu og veikindi mín síðustu þrjú árin höfðu því stafað af því að ég var með stórt krabbameinsæxli í ristli,“ segir Matthildur. Krabbamein í ristli er þriðja algengasta dánarorsök af völdum krabbameina meðal Íslendinga. Alls greinast að meðaltali 112 sjúklingar með ristilkrababmein á Íslandi árlega og um 40 látast af völdum þess. Mikilvægt er að greina krabbameinið snemma svo hægt sé að meðhöndla það. Æxli Matthildar var af gerðinni 3C þegar það greindist og var því komið út í eitla. Fljótlega í kjölfar greiningarinnar fór hún í skurðaðgerð og við tók margra mánaða lyfjameðferð. Á þeim tíma var Matthildur orðin mjög veikburða og tók lyfjameðferðin því mjög á hana, jafnt líkamlega sem andlega. Brotnaði niður í lyfjameð- ferðinni „Ég brotnaði algjörlega niður í lyfjameðferðinni. Tilhugsunin um öll þessi ár sem ég þurfti að kveljast að óþörfu var yfirþyrm- andi. Það er ekki heilbrigðiskerf- inu að þakka að ég er á lífi í dag. Ég þurfti að berjast fyrir því að fá að fara í þær rannsóknir sem þurfti til þess að krabbameinið greindist. Í mig var dælt óhóf- legu magni geðlyfja til þess að meðhöndla sjúkdóm sem ég var alls ekki með. Eitt af einkennum krabbameins er mikil þreyta. Það var því ekki þunglyndi sem orsakaði þessa gífurlegu þreytu – heldur einfaldlega krabbamein- ið,“ segir Matthildur. „Ég fékk að heyra það frá lækni á bráðamóttökunni að ég yrði ekki send í dýrar rannsóknir þar sem ég væri með sögu um þunglyndi en árið 2003 leitaði ég mér hjálpar hjá geðlækni. Þá hafði ég gengið í gegnum krabbameinsmeðferð vegna krabbameins í legi og tvívegis misst vinnuna í hópuppsögnum, allt á þriggja ára tímabili. Ef það er ekki eðlilegt að líða illa eftir ítrekuð áföll sem þessi, þá veit ég ekki hvað. Fram að því hafði ég verið algjör dugnaðarforkur og unnið úti öll mín fullorðinsár. Það var hinsvegar eins og ég hefði ratað inn um rangar dyr í heilbrigðiskerfinu og mér væri haldið þar inni og aldrei hleypt út aftur. Þó svo að ég kæmi með sjúkrabíl á bráðamóttöku og segði frá einkennum á borð við mikið þyngdartap, krónískan, langvarandi niðurgang og mikla þreytu, var ég sent heim án nokk- urra rannsókna því ég hafði verið þunglynd einhverjum árum áður. Engu máli virtist skipta þótt ég hefði líka fengið krabbameins- greiningu og -meðferð. Ég fékk bara þau skilaboð að ég ætti að tala við geðlækni, taka geðlyfin mín og fara í gönguferðir,“ segir hún. þrjú ár, frá árinu 2007-2010. Árið 2010 var hún orðin svo veik og máttfarin að hún fann að hún yrði að fá hjálp. „Ég hringdi á sjúkrabíl og ég var flutt á bráða- móttöku en þar fékk ég sömu móttökurnar og venjulega, var send heim og sagt að panta mér tíma hjá geðlækninum mínum. Ég komst heim með herkjum og lagðist í rúmið og svaf í þrjá sólarhringa. Þegar ég vaknaði fann ég að ég var að deyja. Ég hringdi því á sjúkrabíl aftur því ég var staðráðin að deyja ekki heima þar sem strákarnir mínir myndu koma að mér. Ég ætlaði að deyja á spítalanum. Þar var sama sagan aftur: ég var send heim. Í þetta skiptið neitaði ég 38 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.