Fréttatíminn - 01.02.2013, Qupperneq 54
54 langur laugardagur Helgin 1.-3. febrúar 2013
Þú nnur okkur á Facebook
undir “Fatabúðin”
Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050
Vöggusængur og vöggusett
í góðu úrvali
Margar gerðir af búningasilfri.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur
www.thjodbuningasilfur.is
50%
AFSLÁT TU R
Ú
T
S
A
L
A
Næstkomandi laugardag, 2.
febrúar, mun ATMO í samstarfi við
Sóley Organics halda dekurdag
frá klukkan 13-15. Snyrtifræðingur
á vegum Sóley Organics verður
á staðnum og veitir persónulega
þjónustu. Boðið verður upp á með-
ferð fyrir hendur þar sem vörurnar
frá Sóley Organics verða kynntar.
Einnig verður boðið upp á tilboð
frá Sóley Organics þar sem fást 5
vörur en borgað er fyrir 3. Aðalinnihaldsefni snyrtivaranna eru handtíndar íslenskar jurtir og allar
vörur frá Sóley húðsnyrtivörum eru byggðar á blöndu af íslensku birki, vallhumli og víði.
Sóley í
ATMO
L íf og tilvera langt leiddrar fyllibyttu, sem komin er í dagdrykkju og læti, get-ur orðið ansi hreint samhengislaust og
tætingslegt rugl. Að vísu dásamlega skemmti-
legt og spennandi á köflum enda fylgir
hnignandi siðferði subbulegt og spennandi
kynlíf, alls konar hasar, slagsmál, mikið fjör
og grín. Inn á milli eru hins vegar harkalegar
brotlendingar, skelfilegir bömmerar, skjálfti,
kaldur sviti, ótti, ranghugmyndir, vænisýki og
fleiri fylgikvillar sem ekki er hægt að afgreiða
öðruvísi en með því að drekka meira. Ofan
á þetta allt saman leggjast svo áhyggjur, sár
vonbrigði og nístandi sársauki maka, barna,
nánustu fjölskyldu og vina. Slíkt þvælist þó
ekkert sérstaklega fyrir ofvirka alkanum sem
veltir sér upp úr sjálfhverfu sinni eins og úldin
ýsa í raspi enda eru helstu vopn og verjur bytt-
unnar afneitun og massívur hroki.
XL gerir öllu þessu endalausa bulli sem
fylgir alkóhólistum eiginlega alveg frábær
skil. Myndin er samhengislaus kokkteill
atvika og alls konar átaka sem fylgja sukkinu.
Handritshöfundarnir fara þá hættulegu en
um leið heiðarlegu leið að hafa umgjörðina í
fullkomnu samræmi við innihaldið. Línulaga
frásögn, upphaf, miðja og endir koma því ekki
til greina enda er rökrétt framvinda víðs fjarri
þegar dottið er almennilega íða. Þetta byrjar
með fyrsta glasinu og þar með hefst hringa-
vitleysan, helför án fyrirheits.
Ólafur Darri Ólafsson er leikari í algerum
sérflokki og ég hef hingað til ekki farið leynt
með aðdáun mína á miklum hæfileikum
hans og XL gefur mér enga ástæðu til þess
að hætta því. Myndin hvílir á herðum Ólafs
Darra sem er nánast alltaf í mynd og skilar
drykkfellda þingmanninum Leifi Sigurðar-
syni með glæsibrag. Þessum manni virðist
ekkert ofviða og hann getur borið uppi og
dregið leiksýningar og bíómyndir í land, að
því er virðist fyrirhafnarlaust. Sérgæska og
hroki alkans lekur af Ólafi Darra sem hefur
hingað til fengist við öllu geðslegri persónur
en þennan sótraft.
Eftir harkalegan fyllirísbömmer sem endar
á YouTube reynir forsætisráðherra Íslands að
þvinga Leif í meðferð en okkar maður sér vita-
skuld enga vitglóru í slíku bulli enda fær hann
ekki séð að hann eigi við neitt vandamál að
stríða. Hann byrgir sig því vel upp af áfengi og
hendir í eitt almennilegt partí sem gæti orðið
hans síðasta.
XL er þvert yfir mjög vel leikin þótt Ólafur
Darri gnæfi yfir henni. María Birta leikur
unga ástkonu Leifs og sýnir enn og aftur
að hún er frambærileg leikkona. Hún er til-
gerðarlaus og eðlileg á tjaldinu, rétt eins og
hún var í Óróa og Svartur á leik. Hún striplast
heilmikið í XL, rétt eins og hún gerði í Óróa
og Svartur á leik og nú verður stúlkan að fara
að fá hlutverk sem krefst þess ekki af henni
að hún tæti sig úr hverri spjör. Það er miklu
meira í hana spunnið.
Sjálfsagt fer frásagnarmáti XL öfugt í
marga áhorfendur og sennilega fá fæstir
aðrir en sjóaðar fyllibyttur (að því gefnu að
þær muni eitthvað af eigin afrekum) nokk-
urn botn í þau ósköp sem fram fara á tjaldinu.
Þetta breytir því þó ekki að XL er áhugaverð
mynd sem á erindi við alla enda er öll þjóðin
annað hvort virkir eða óvirkir alkóhólistar
eða kengmeðvirkir aðstandendur og þótt
öllum sé ekki gefið að meðtaka þessa
groddalegu en sönnu afgreiðslu Marteins
Þórssonar á drykkjuruglinu þá ættu í raun
allir að sjá sjálfa sig eða brot af sér í einhverj-
um persónum myndarinnar.
XL er eiginlega nákvæmlega eins og gott
fyllirí. Tætingsleg, órökrétt, skemmtileg á
köflum en hrollvekjandi þess á milli. Ólíkt
drykkjutúr er myndin hins vegar hugvekjandi
og að loknu áhorfi standa fyllibyttur aðeins
frammi fyrir tveimur kostum; Hrynja íða eða
fara í meðferð.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíódómur XL
Eitruð pólitík Bakkusar
Ólafur Darri
er frábær að
vanda í hlutverki
þingmannsins
og fyllibyttunnar
Leifs Sigurðar-
sonar sem er
ansi hreint
sannfærandi
skólabókardæmi
um virkan
alkóhólista.
XL er sýnd í
Bíó Paradís við
Hverfisgötu
um helgina. Á
föstudag klukkan
20.10 og 22.00.
Á laugardag
klukkan 22.00
og á sunnudag
klukkan 15.00 og
22.20.