Fréttatíminn - 01.02.2013, Side 4
30% kosningaþátttaka
Af átján þúsund á kjörskrá Samfylkingarinnar
kusu 5.500 í formannskjöri. Kosið var á milli
Árna Páls Árnasonar alþingismanns og Guðbjarts
Hannessonar velferðarráðherra en á hádegi á
morgun, laugardag, verður niður-
staða kosningarinnar kynnt
félagsmönnum á landsfundi
Samfylkingarinnar í Vals-
heimilinu við Hlíðarenda.
Á þeim fundi verður kosið
í embætti varaformanns
flokksins en þegar hafa tvær
konur gefið kost á sér: Oddný
Harðardóttir þingflokksformaður
og Katrín Júlíusdóttir fjármála- og
efnahagsráðherra. Frestur til að
bjóða sig fram sem varaformaður
rennur út klukkan 13 á laugardag.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hæglætisveður, bjart og frost til landsins.
smáél sunnan- og suðvestanlands framan af degi.
Höfuðborgarsvæðið: EF til Vil él um
mOrguninn, en annars bjart.
sa-stormur og slydda sunnan- og
vestantil. Hríð til fjalla.
Höfuðborgarsvæðið: slagveðursrign-
ing eða slydda, en él um kvöldið.
spáð er krappri lægð við landið með stormi
þegar líður á daginn með snjókomu eða slyddu.
Höfuðborgarsvæðið: aftur stOrmur um
kvöldið með snjókOmu eða slyddu.
tvær ekta
vetrarlægðir
Eftir stund á milli stríða í eins og tvo daga æs-
ast leikar að nýju. tvær lægðir fara hratt hér
mjög nærri um helgina. Sú fyrri á laugardag
og hin á sunndag. Þeim fylgir hvassviðri og
stormur með slyddu og snjókomu
og engum sérstökum hlýindum.
Hvernig veður verður á einum
stað til annars ræðst af því
hver braut þeirra verður á
endanum og hvænær þær
verða á ferðinni. Fylgist vel
með !
0
-2 -7
-5
-1
4
1 -1 -2
4
0
-2 -3 -4
2
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
nýr lottó-
leikur hefur
göngu sína
eurojackpot er nýr
lottóleikur sem Íslensk
getspá býður upp á frá
og með deginum í dag.
leikurinn er spilaður
hér á landi og í þrettán
öðrum Evrópulöndum.
sölu lýkur klukkan 18
á föstudögum og um
kvöldið fer útdrátturinn
fram í Finnlandi. upp-
taka af honum er birt
á lotto.is á föstudags-
kvöldum. Ein röð kostar
320 krónur og allir vinn-
ingar eru skattfrjálsir.
dregnar eru út fimm
aðaltölur úr tölunum frá
1-50 og tvær stjörnu-
tölur úr tölunum 1-8.
Útlit er fyrir að potturinn
verði 1,7 milljarðar í
kvöld, en lágmarksupp-
hæðin er 1,6 milljarðar
króna.
inflúensufaraldur í rénun
töluvert hefur dregið úr
aukningu á inflúensulíkum
einkennum sem bendir
til þess að við séum að
ná toppnum í útbreiðslu
inflúensunnar, samkvæmt
upplýsingum frá landlæknis-
embættinu. meðalaldur
þeirra sem greinst hafa með
inflúensu í vetur er 36 ár
en alls hafa 50 karlar og 46
konur greinst.
inflúensa var staðfest
hjá alls 26 einstaklingum í
síðustu viku, þar af voru 16
með svínainflúensu a(H1),
níu með inflúensu a(H3) og
einn með inflúensu b.
enn er töluvert um rs
veirugreiningar. Alls voru 14
einstaklingar með staðfesta
rs veirusýkingu í síðustu
viku. Flestar greiningarnar
eru hjá 0-2 ára börnum, en
einnig hefur eitthvað verið
um rs veirusýkingar meðal
eldri borgara. Í vikunni sem
leið var rs veiran staðfest
hjá tveimur einstaklingum
yfir sextugt, sem er fækkun
í þeim aldurshópi miðað við
vikurnar á undan. -sda
Þ etta er komið langt á skömmum tíma,“ segir Vilborg Davíðsdóttir og bætir við: „Þetta hefur hreinlega
verið sem brunbraut niður á við.“
Það er óhætt að segja að margt hafi
gerst í lífi fjölskyldunnar síðan við hittum
Vilborgu síðast en þrátt fyrir það virðist hún
ekki hafa tapað æðruleysinu sem einkenndi
samtal okkar síðast. Vilborg segir að það
sé mikilvægt að tala um dauðann, hann sé
órjúfanlegur partur af tilverunni og um-
ræður eigi því að fara frammi fyrir opnum
tjöldum, slíkt hjálpi aðeins til.
„Það er mikilvægt að tala um dauðann
vegna þess að það er hann sem gerir lífið
svo dýrmætt. Ég hef lært margt á þessarri
göngu með Björgvin mínum og nú þegar
hans vegferð er í þann mund að ljúka hef ég
öðlast nýjan skilning á mikilvægi þess að
tala um dauðann rétt eins og lífið, því það er
í hverfulleika lífsins sem gildi þess er falið.
Við elskum lífið vegna þess
að því lýkur, líkt og við
hrífumst af fegurð blóms-
ins vegna þess að það á
eftir að fölna og döguninni
vegna þess að við vitum að
sólin á eftir að hníga í sæ.
Við þurfum að geta talað
um dauðann, á honum á
ekki að hvíla bannhelgi.
Því hvernig getum við ella
lært að deyja vel, þetta eina
sem við eigum öll fyrir
höndum, hvert og eitt? Við gerum okkar
besta í menntakerfinu og uppeldinu til þess
að búa börnin okkar undir lífið og verk-
efnin sem þau þurfa að takast á við en við
tölum aldrei um það að við eigum öll eftir
að deyja. Að hvert og eitt okkar mun þurfa
að skiljast við einhvern nákominn áður en
kemur að okkar eigin endalokum.“
Vilborg segir að stuðningur vina og fjöl-
skyldu sé fjölskyldunni ómetanlegur og
einnig hefur ókunnugt fólk sett sig í sam-
band við hana frá síðustu bloggfærslu, en
hún hefur farið víða og fengið nokkra fjöl-
miðlaathygli. „Ég finn samhug og hlýju og
fjölmörg hafa orð á því að það sé gott að
fá að lesa um lífsreynslu sem þau þekkja
sjálf en hafa kannski aldrei getað deilt með
öðrum. Vegna þess að fólk verður hrætt
þegar við tölum um dauðann og þá stað-
reynd að það sleppur enginn lifandi héðan.
Þess vegna hættir of mörgum til að forðast
að tala um þá sem eru deyjandi eða látnir
og jafnvel getur óttinn við að segja eitthvað
„óviðeigandi“ orðið til þess að hinn látni er
aldrei nefndur á nafn, hvorki hvernig hann
dó eða lifði, næstum eins og hann hafi ekki
verið til. Og það held ég að sé sárast af öllu.“
Hún segir að það sé fólki eðlislægt að úti-
loka allt það sem veldur skelfingu en segist
jafnframt halda að það sé miklu betra að
sættast sem fyrst við þessa einföldu stað-
reynd, að lífið tekur enda.
„Þannig tala ég við börnin mín þrjú,
segi þeim að sál Björgvins verði hjá Guði
en líkaminn, skel sálarinnar, muni hvíla
í fallegum kirkjugarði. Dóttir okkar, átta
ára, ætlar að setja mörg blóm á leiðið hans
pabba síns, sagði hún við hann, því hún
mun sakna hans svo mikið. En hann hittir
sjálfur pabba sinn sem er dáinn, sagði hún,
og kannski líka kisuna okkar sem dó fyrir
nokkrum árum. Þannig er barnshugurinn
byrjaður að vinna úr því sem fram undan er
og hún er farin að leita leiða til að sjá fleira
en aðeins eigin missi.“
maría lilja þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Fréttir vilborg davíðsdóttir og Ferðalok drekans
Dóttir okkar,
átta ára, ætlar
að setja mörg
blóm á leiðið
hans pabba
síns, sagði
hún við hann,
því hún mun
sakna hans
svo mikið.
rithöfundurinn vilborg davíðsdóttir er mikil sagnakona og bækur hennar um forna tíma hafa
selst í bílförmum. Vilborg var í viðtali við Fréttatímann í október síðastliðnum þar sem hún ræddi
ritstörfin, ævintýrin og drekann sem fjölskyldan fæst við í sínu eigin lífi. eiginmaður vilborgar,
björgvin ingimarsson, hefur barist við heilakrabba um nokkurt skeið. við komu á heimili þeirra
hjóna í október tók björgvin á móti blaðakonu. Hann var að mála og dytta að í forstofunni. Í dag
upplifir hann sín síðustu augnablik, aðeins um nokkrum mánuðum síðar.
Það á að tala um dauðann
Vilborg segir að það sé
mikilvægt að tala um
dauðann, hann sé órjúfan-
legur partur af tilverunni
og umræður eigi því að fara
frammi fyrir opnum tjöldum,
slíkt hjálpi aðeins til.
Ljósmynd / Hari
Vilborg var í opinskáu
viðtali við Frétta-
tímann í október á
síðasta ári þar sem
hún ræddi veikindi
eiginmanns síns,
björgvins ingimars-
sonar.
4 fréttir Helgin 1.-3. febrúar 2013