Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 01.02.2013, Qupperneq 14
Styrmir Þór sýknaður í Exeter-málinu Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, var sýknaður af ákæru sérstaks saksóknara í Exeter- málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Stjórnendur Byrs sparisjóðs voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik í sama máli í fyrra. Krónan styrktist Gengi krónunnar styrktist í gær. Hækkunin nam 1,7% og hefur ekki verið svo mikil á einum degi frá því í ágúst 2009, að því er fram kom í Morgunkorni Íslandsbanka. Blær fær að halda skírnarnafni sínu Blær Bjarkardóttir Rúnarsdóttir, fimmtán ára stúlka sem hefur barist fyrir að fá nafn sitt skráð í þjóðskrá, vann í gær mál gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ríkið var sýknað af kröfu hennar um bætur. Kölluðu borgarstjóra hyski Hópur fundarmanna á hverfisfundi borgarstjóra í Grafarvogi kallaði borgarstjóra og borgarstjórn hyski sem ætti að hypja sig á brott. Vöruskiptin í fyrra hagstæð um 75,5 milljarða Vöruskiptin við útlönd voru hagstæð um 75,5 milljarða króna í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofunnar. Flutt var inn fyrir rúmlega 556 milljarða króna, en út fyrir tæplega 632 milljarða. Hreyfill fisvélarinnar rannsakaður Hreyfill fisvélar sem brotlenti á Suðurnesjum í október verður sendur til rannsóknar hjá framleiðanda í Austurríki. Tveir menn létust í slysinu. Kennsluflugvél frá Keflavíkurflugvelli var í biðflugi á þessum tíma og fylgdist flugmaður hennar með flugi fisvélarinnar og varð vitni að brotlendingunni. Framsókn hverfur frá vantrauststillögu Framsóknarmenn ætla ekki að leggja fram van- trauststillögu á ríkisstjórnina eða einstaka ráðherra. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Fram- sóknar, segir best að þjóðin kveði upp sinn dóm í kosningunum í lok apríl. FBI kom hingað til að rannsaka Wikileaks Hópur bandarískra alríkislögreglumanna kom til Íslands síðastliðið haust og óskaði eftir samvinnu hér- lendra yfirvalda við rannsókn á uppljóstrunarsíðunni Wikileaks. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hafnaði beiðninni. Sigmar beið eftir aðhlynningu í níu daga Sigmar B. Hauksson, sem lést um jólin, beið heima í níu daga án þess að fá aðhlynningu eða verkjameð- ferð eftir að hann greindist með krabbamein í lok nóvember. Fjölskyldan telur að álag á sjúkrahúsinu hafi orðið til þess að hann hafi gleymst. Loðnuleit er hafin á ný Loðnuleit er hafin að nýju eftir langa brælu og er rannsóknarskipið Árni Friðriksson við mælingar norður af Melrakkasléttu. Þráðurinn verður tekinn upp að nýju og mælt vestur eftir Norðurlandi og að Vestförðum. Sárt að rífa ofan af gömlum sárum Stjúpur eiga líka rödd Þ að er sárt og erfitt að tala um mál sem hafa valdið manni hugarangri – ekki síst ef þau hafa hvílt með manni svo árum skiptir, jafnvel án þess að maður geri sér grein fyrir því. Það er svolítið eins og að kroppa ofan af sári. Þannig leið mér eftir fyrsta stjúpu- hittinginn minn. Átta stjúpmæður hittast vikulega undir stjórn Val- gerðar Halldórsdóttur hjá stjúptengsl.is og ræða það sem þeim liggur á hjarta. Á þessum fyrsta fundi ræddum við erfiðleika sem upp höfðu komið í stjúpfjölskyldunni sem rekja mætti til þessa flókna fjölskyldumynsturs. Mér fannst bæði gott og sárt að finna viðbrögð hinna stjúpmæðranna við minni reynslu. Mér fannst gott að finna stuðninginn – þarna voru konur í sömu stöðu og ég sem höfðu reynt sömu hluti, rekið sig á sömu veggi. Það fannst mér gott. Mér fannst hins vegar sárt að rifja upp ýmis atvik sem upp hafa komið í samskiptum okkar hjóna á undan- förnum árum og valdið hafa misklíð okkar á milli. Þá leið mér eins og ég væri að kroppa ofan af sári. Sári sem hafði ef til vill aldrei gróið því við höfðum aldrei leyst úr ágreiningnum. Ég hafði ekki sagt hvað mér raun- verulega bjó í brjósti – heldur kyngdi því sem orðið var. Því ég vissi ekki að stjúpmæður hafa rödd. Stjúpmóðurröddin mín var vel falin innra með mér og hefur ekki fengið að hljóma fyrr en nú – eftir að ég fór að hitta hinar stjúpurnar og komst að því að tilfinningar mínar eiga alveg rétt á sér. Ég fékk styrk og stuðning til þess að leyfa stjúpuröddinni að koma fram í hjónabandinu og hafði loks kjark til þess að segja það sem ég var að hugsa. Því nú veit ég að stjúpmæður hafa rétt. Þær mega – og eiga – að segja maka sínum ef þær eru ósáttar við hvaðeina sem varðar stjúpbörnin og samskipti hans við fyrrverandi maka. Þær eiga ekki bara að þegja af því að þetta eru „börnin hans“. Stjúpan er ekki bara þegjandi stoð eða auka- hlutur. Hún hefur VÍST með uppeldi stjúpbarnsins síns að gera. Stjúp- barnsins sem býr jafnmikið heima hjá henni og pabba sínum – því heimili þeirra er eitt og hið sama. Oft á tíðum hefur stjúpmóðirin meira að segja meira samneyti við stjúpbarnið en pabbinn sjálfur. Hún MÁ segja nei og hún má hafa skoðun. Og pabbinn Á að hlusta. Og hann á að hafa samráð við hana um ákvarðanir varðandi stjúpbarnið. Það hef ég lært – og ég hef fundið röddina mína. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is sjónarhóll Stjúpmóðurröddin mín var vel falin innra með mér og hefur ekki fengið að hljóma fyrr en nú. VikAn í tölum 35.000.000 króna koma í hlut knattspyrnuliðs Fjölnis í Grafarvogi vegna sölunnar á Aroni Jóhannssyni frá AGF í Danmörku til AZ Alkmaar í Hollandi. 76 milljónum króna ætlar Björk Guðmundsdóttir að safna á fjáröflunarsíðunni Kickstarter til að yfirfæra Biophiliu-forritið fyrir Windows 8 og Android-síma. 200.000 krónur á mánuði fá Jón Margeir Sverrisson og fjórir aðrir íþróttamenn úr Afrekssjóði ÍSÍ í ár en alls nema fjárveitingar úr sjóðnum 71 milljón króna í ár. 3 konur eru tilnefndar fyrir leik í aðalhlutverki á Edduverðlaunahátíðinni á meðan fimm karlar hljóta sama heiður. Sara Dögg Ásgeirsdóttir er ein þeirra sem tilnefndar eru. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 10 trukkar hafa verið hér á vegum tökuliðs bandarísku útgáfunnar af Top Gear. Þátturinn verður sýndur á History-sjónvarpsstöðinni í vor. 7 matreiðslumenn þóttu standa sig betur en fulltrúi Íslands á Bocuse d́ Or keppninni í vikunni. Það var Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson sem stóð vaktina fyrir Íslands hönd en honum til aðstoðar var Hafsteinn Ólafsson. 14 fréttir Helgin 1.-3. febrúar 2013 vikunnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.