Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Side 21

Fréttatíminn - 01.02.2013, Side 21
HRJÚFT Á YFIRBORÐINU HOLLT AÐ INNAN Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott! Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi. Enginn viðbættur sykur, ekkert ger. HUGSAÐU UM HOLLUSTUNA! É g veit ekkert hvort fólk skilur mig,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona sem þó hefur átt greiða leið að hug og hjörtum landsmanna síðan hún útskrifaðist úr leiklistarskóla 2003. Þá stökk hún strax inn á stóra svið Borgarleikhússins og fékk strax mikla athygli. Síðan hefur hún margoft heillað þjóðina á sviði leikhússins, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hún lék í Stelpunum og var ein af sprautunum á bak við þá þætti og svo skrifar hún ásamt fleirum Ástríði sem hún leikur einmitt aðalhlutverkið í. Ný sería fer í loftið í mars og um páskana frumsýnir Ilmur bíómyndina Ófeigur snýr aftur. Sjálf segir hún að ferillinn hafi eignast sitt eigið líf án hennar afskipta. „Þegar ég horfi aftur líður mér stundum eins og ég hafi ekki tekið neinar ákvarðanir, að mér hafi bara verið stýrt, í jákvæðum skilningi. Ég hef unnið fjölbreytt verkefni með frábæru samstarfsfólki og stundum skil ég ekkert í því hversu heppin ég er í raun og veru." Miðbæjarstelpa Ilmur fæddist 1978. Hún á tvö systkini, Lísu sem er fjórum árum eldri og „litla“ bróður sem er tveimur árum yngri. Einhverrra hluta vegna starfa þau öll við sjón- varps- og kvikmyndagerð. Lísa sem aðstoðarleikstjóri og pródú- sent og Sverrir sem klippari í Noregi. „Það er samt einhver tilviljun að við lendum öll í þessum bransa,“ segir Ilmur sem lýsir heimili þeirra og uppeldi sem bæði frjáls- lyndu og hefðbundnu. „Þetta var svona „hippaheimili“ – það var verið að brjóta upp hefðir og mynstur; við fengum t.d öll þessi nöfn sem voru bara út í loftið og ekki í höfuðið á neinum. Eftir á að hyggja held ég að þetta vega- nesti hafi verið og sé ennþá mjög mikilvægt fyrir mig; að taka engu sem gefnu, að það megi breyta hlutum og endurskoða ákvarð- anir. Mamma og pabbi ólust bæði upp við þröngan kost og komu úr stórum systkinahópum og því einkenndist þeirra uppeldi líka af mikilli nýtni, aldrei neinu hent og ég hendi heldur aldrei neinu!“ Ilmur segir að það hafi verið gott að alast upp í miðbænum: „Þá var húsnæði í 101 Reykjavík ódýrt og mikið af börnum í hverfinu.“ Ilmur bjó á Óðinsgötu og gekk í Austurbæjarskóla. Henni gekk mjög vel í skóla alveg þar til hún fór í MH og félagslífið gleypti hana. „Ég var í leikfélaginu,“ segir Ilmur; „auðvitað. Það var svo gam- an í MH, eiginlega of skemmtilegt til að mæta í tíma, þetta hafðist nú samt.“ En varstu strax sjálfstæð ung kona eða varstu alltaf með kær- asta? „Já,“ svarar hún og hlær; „ég sat við borð í skólanum sem var kallað desperat-borðið af því að engin af okkur átti kærasta. Einhverra hluta vegna þá gengum við aldrei út. Við reyndum þá að tala niður kærustustelpurnar sem fóru bara inn í sambönd og hurfu.“ Úr leikfélagi MH fór Ilmur í inn- tökupróf við Leiklistarskólann og komst inn í fyrstu atrennu. Verður ekki að vera leikkona Ilmur gerir lítið úr eigin fram- takssemi þótt hún virki út á við sem mjög metnaðarfullur dugn- aðarforkur. Hún skrifar og leikur aðalhlutverk í sjónvarpsseríunni Ástríði og hefur svo um munar leikið sig inn í hjörtu þjóðarinnar. „Já, virka ég eins og ég hafi svoldið stýrt þessu?“ spyr hún hlæjandi. Já. „Það er bara ekki þannig,“ segir hún kímin. En hefur þetta starf, leikkona, gert þig hamingjusama? „Að vera leikkona hefur aldrei full- nægt mér alveg. Þess vegna hef ég allt- af leitað út fyrir leikkonuna. Til dæmis með því að skrifa. Það hefur gefið mér ofboðslega mikið. Auðvitað er það samt þannig að leikkonustarfið getur verið mjög fullnægjandi en bara þegar maður finnur að maður hefur einhverju að miðla,“ segir Ilmur. Það var einmitt ástæðan fyrir því að hún söðlaði um á sínum tíma, og fór í guðfræði í Háskólanum: „Mig vantaði næringu, ég fann að sálin kallaði á meiri visku, meiri lærdóm, betri skiln- ing og guðfræðin hitti beint í mark.“ Það voru einmitt margir hissa á að Ilmur skyldi skrá sig í guðfræði en hún fann líka fyrir mikilli forvitni hjá fólki: „Ég held að fólk átti sig engan veginn á því um hvað guðfræði snýst.“ Og um hvað snýst þá guðfræðin, í stuttu máli? Eftir stutta umhugsun svarar hún: „Vinkona mín sagði mér um daginn að hún hefði verið að velta því fyrir sér á leiðinni í vinnuna af hverju maðurinn byggi yfir sjálftortímandi afli. Af hverju höfum við sjálfseyðingarhvöt? Já, ég veit, ég á mjög djúpa vini,“ segir Ilmur og hlær, „en þetta er guðfræði, hún leitast við að svara þessum spurning- um. Ég get samt ekki svarað þessarri spurningu.“ Ilmur hefur tekið pásu frá guðfræði en aðspurð um hvort það að vera leik- kona sé eitthvað sem hún verði að gera segir hún: „Við skulum orða það þannig að ég verð ekki að vera leikkona. Ég verð ekki að vera neitt.“ Og það fylgir þessu svari friður: „Ætli ég endi ekki á að verða prestur. Guðfræðin gerir mig að betri leikkonu og betri höfundi, þannig að ég get verið allt þetta og svo er ég að hugsa um að fara að læra bogfimi.“ Að vera með samviskubit Ilmur var framan af ferlinum ung og barnlaus leikkona og segir sjálf að hún hafi oft verið kvíðin og óttaslegin. „Ég held að mér sé óhætt að segja að ég hafi misnotað áfengi, það var stór partur af lífi mínu. Ég var partístelpa og ég vildi Ég fór ekki í meðferð en ég er ekkert fínni alkóhólisti fyrir það. Framhald á næstu opnu viðtal 21 Helgin 1.-3. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.