Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Síða 22

Fréttatíminn - 01.02.2013, Síða 22
ekki að partíið tæki enda því eftir partíið tók kvíðinn og óttinn við.“ Árið 2006 eignaðist hún barn og það var ákveðið „reality check“ eins og hún segir sjálf. „Ég tók aldrei ábyrgð og flúði alltaf ef aðstæður urðu óþægilegar. En þegar Auður fæddist þá gat ég ekkert flúið, ábyrgðin starði framan í mig, vanlíðanin jókst og samviskubitið nagaði inn að beini.“ Ilmur segir að henni hafi fundist erfitt að hætta að drekka. Hún var hrædd um að hún myndi tapa ákveðnum hráleika sem leikkona: „Af því að með drykkju og svo þynnku á maður greiða leið að hráum tilfinningum. Þú hefur þessa opnun sem hjálpar í flæði leiksins. Hinsvegar fann ég að þessi hrá- leiki var ekki eitthvað sem ég gat með góðu móti stjórnað. Það var ekkert hægt að stóla á þetta ástand og þá snérist hráleikinn upp í ótta og það er ekkert verra en að vera ótta- slegin á sviði. Það er eiginlega ekki hægt – áhorfendur skynja það strax. Þetta endur- speglaði líf mitt, ég var eiginlega óttaslegin við að fara út í búð, fannst allir sjá í gegnum mig. Svo má ekki gleyma því hvernig það er að vera alltaf með samviskubit.“ Ilmur segir að það fylgi því mikið frelsi að vera laus við áfengið: „Ég þarf ekkert að réttlæta neitt núna. Það er ótrúlegur munur. Að vera ekki alltaf í þessum réttlætingaleik,“ segir hún og bætir við að í dag brosir hún þegar hún heyrir fólk segja: „Ég ætla bara ekkert að vera með samviskubit yfir þessu.“ Hvort sem það snýst um áfengisneyslu eða eitthvað annað. Líkt og fólk ráði því eitthvað: „Samviskan er þannig að þú segir henni ekkert að þegja. Hún er samviskan þín.“ Ekki kvenlegt að vera alkóhólisti Í dag er Ilmur í framkvæmdastjórn SÁÁ, stjórn fjölskylduþjónustu SÁÁ og einnig á hún sæti í stjórn kvenfélags SÁÁ: „Jú, jú, maður er aðeins að skipta sér af.“ Hún segir að í dag eigi kvenfélagið hug hennar og góðar vonir: „Það er svakaleg orka í kvenfélaginu og mjög ákveðnar konur þarna; sterkar og skemmtilegar. Þetta eru allt gallharðir femínistar og ég fíla það.“ Það hefur oft legið við að skömmin við að gangast við sjúkdómnum alkóhólisma sé meiri hjá konum en körlum. Ilmur segir að munurinn á kynjunum sé flóknari en svo að hægt sé að skrifa hann eingöngu á skömm- ina, bæði kynin eru að fást við hana en í dag eru uppi þær hugmyndir að konur þurfi jafnvel annarskonar meðferð en karlar. Þá sýna rannsóknir að 80% þeirra kvenna sem fara í meðferð inn á Vog hafi lent í ofbeldi. Í dag eru þessar upplýsingar ekki nýttar í áframhaldandi meðferð og eru konur gjarnari á að „falla“ en karlmenn. Konur eru þar að auki tregari að fara af heimilum og skilja við börnin sín í nokkrar vikur til leita sér hjálpar. Ilmur segir það heldur ekki vera beinlín- is kvenlegt að vera alkóhólisti. Við tengjum áfengis- og vímuefnafíkn oft við róna eða langt leidda fíkla. Konur séu þá gjarnari á að segja við sjálfar sig að áfengi sé í raun ekki vandamálið heldur sé meinið annað og vilja þess vegna ekki leita sér aðstoðar við alkóhólisma heldur einhverju öðru. Það er útbreiddur misskilningur að sjúkdóm- urinn felist í flöskunni en drykkja er bara einkenni; þetta er andlegt mein. Sumir vilja meina að meðvirkni og alkóhólismi sé sami sjúkdómur þegar áfengið er tekið úr breytunni. Sumir vilja líka meina að þetta sé ekki sjúkdómur. Það eru um skiptar skoðanir um þetta allt saman og mér finnst mjög gaman að velta mér uppúr þessu. Maðurinn er skrítin skepna.“ Og fórstu í meðferð? „Nei. En ég hef rekið mig á að það er eins og það skipti fólk máli hvort ég hafi farið í meðferð eða ekki, eins og það sé meira töff að hætta bara án þess að leita sér aðstoðar. Ég fór ekki í meðferð en ég er ekkert fínni alkóhólisti fyrir það og ég leita aðstoðar og stuðnings. Það eimir ennþá af skömm við það að leita sér hjálpar í þessu samfélagi, við verðum að fara að láta af því, við erum öll bara villuráfandi sálir. Að hætta að drekka er stór ákvörðun, það er lífstíls - ákvörðun, maður þarf að þroskast með þeirri ákvörðun.“ Ilmur segist stundum þurfa að leiðrétta fólk sem segir að hún „megi“ ekki drekka; „ég má allt, þetta er ákvörðun – ég vil ekki drekka.“ Hégómi og kæruleysi Þótt Ilmur sér fyrst og fremst þekkt sem gamanleikkona á Íslandi þá hafa hlutverk hennar í leikhúsi nær öll verið dramatísk. Í sjónvarpi hinsvegar er hún fyndin og það sem meira er; hún hefur alltaf þorað að vera ljót. Sem er hreint út sagt aðdáunar- vert á tímum útlitsdýrkunnar: „Ég er auðvitað femínisti og verð að standa fyrir það. Ég get ekki staðið í að gagnrýna útlitsdýrkun í samfélaginu og verið svo að hafa áhyggjur af því hvernig ég myndast,“ segir Ilmur og hlæjandi segist hún ekkert reyna að vera ljót. Og kannski sé hún líka bara svona sannfærð um eigið ágæti að hennar innri fegurð skíni alltaf í gegn. „Nei,“ heldur hún áfram, „auðvitað tekur hégóminn stundum yfir hjá mér. Ég geng í fínum fötum og hef mig til. Um daginn kom mynd af mér á Mbl. Ilmur og Logi Berg- mann í stuði eða eitthvað svoleiðis. Alveg hörmungarmynd. Ég var hlæjandi, ómáluð og hárið klesst aftur. Mér fannst allar hinar konurnar í myndaseríunni líta vel út og vera voða sætar. Nema ég. Fyrst var ég bara „oh, hvað ég er alltaf ljót á myndum“ og svo hugsaði ég með mér; „æi, er þetta ekki bara skemmtilegra svona? Í stað þess að við værum allar ofsalega sætar?“.“ Og nær það alveg inn að kjarnanum? „Já, vegna þess að hitt er svo grunnt. Ef ég næ inn fyrir það þá er mér alveg sama hvernig ég lít út. Svo veit ég alveg sjálf að ég get verið sæt. Ég fékk til dæmis að vera rosalega sæt á plakati fyrir Heddu Gabler. Var á nærbuxunum á veggjum út um allan bæ. Var rosa kroppur og fólk var að segja mér að ég væri rosa sæt og svona. Það gaf mér ekkert. Ég gat hakað í þann kassa. Ég get líka verið sæt. Svo búið.“ Ilmur hefur verið í fríi frá leikhúsinu síðustu mánuði en snýr aftur á fjalirnar í apríl til að leika í Svari við bréfi Helgu í Borgarleikhúsinu. Það leikrit var frum- sýnt í fyrra og hefur Ilmur fengið mikið lof fyrir frammistöðuna. Á næstunni klárar hún upptökur fyrir nýja þáttaröð af Ástríði og kvikmyndin Ófeigur snýr aftur verður frumsýnd um páskana. Hvað tekur svo við? Ilmur hefur ekki hugmynd um það og hún segir að það sé frábært tilfinning að vita ekki hvað sé fram undan: „Það er alltaf eitthvað, ég er með nóg af plönum, það vantar ekki, en hvaða plan verður ofan á veit ég ekki. Árangur án áreynslu – það er lífsmottóið mitt,“ segir Ilmur stolt. „Að vera með markmið en þvinga það ekki áfram, bara treysta ferða- laginu. Ég hef aldrei haft sérstakar áhyggj- ur af því hvar ég lendi. Það er þessi fína lína milli kæruleysis og leti. Æi, nei ég er samt ekki andlega löt. Ég hef reyndar endur- heimt ákveðið kæruleysi sem ég er ánægð með – eða heitir það ekki æðruleysi þegar maður er svona þroskuð og fullorðin?“ Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn Öryggismiðstöðin býður mikið úrval eftirlitsmyndavéla sem henta jafnt einstaklingum sem smáum og stórum fyrirtækjum. Við bjóðum m.a. upp á eftirlitsbúnað frá danska fyrirtækinu Milestone sem er leiðandi á heimsvísu í stafrænni upptökutækni. Hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 20 62 4 Eftirlitsmyndavélar Ilmur Kristjánsdóttir er nú að taka upp nýja þáttaröð af Ástríði en sjónvarpsþættirnir verða sýndir í mars. Hér er hún á tökustað. Þegar ég horfi aftur líður mér stundum eins og ég hafi ekki tekið neinar ákvarðanir. 22 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.