Fréttatíminn - 01.02.2013, Síða 30
sem hafa löngum heillað hana. Hún fékk
innsýn í allt það amstur sem fylgir fyrirtækja-
rekstri þegar hún vann hjá foreldrum sínum
á námsárunum og hafði þá engan sérstakan
áhuga á því að leggja rekstur fyrir sig. En
þegar hún ákvað að láta reyna á hönnunar-
hæfileika sína með fylgihlutalínunni varð ekki
aftur snúið.
„Ég hef aldrei fengið neitt uppí hendurnar
og fæddist ekki með silfurskeið í munni. Ég
hef þurft að hafa fyrir öllu mínu og mér finnst
það dásamlegt. Ég myndi ekki vilja hafa þetta
neitt öðruvísi vegna þess að maður kann síður
að meta það sem maður öðlast ekki með blóði,
svita og tárum.
Ég hef stundum heyrt einhverjar sögur
útundan mér um að hinir ýmsu efnamenn
standi á bak við mig og fyrirtækið. Eða að
foreldrar mínir eða maðurinn minn séu mjög
efnuð og standi á bak við það sem ég er að
gera. Raunveruleikinn er nú samt bara sá að
ég stend að mestu á bak við þetta sjálf en nýt
þess að vera með gott starfsfólk og eiga góða
fjölskyldu, vini og mann sem veita mér ráðgjöf
og ómetanlegan stuðning. En ég hef þurft að
leggja mjög hart að mér til að komast hingað
og ég hef notið hverrar mínútu út til fullnustu.
Líka þegar á móti blæs vegna þess að maður
lærir alltaf eitthvað mikilvægt af slíkum
raunum.“
Og Sigrún Lilja lætur kjaftasögurnar ekki
trufla sig. „Ég geri nú reyndar sáralítið af því
að velta mér upp úr sögusögnum um mig eða
aðra og mér stendur svona að mestu á sama
um slíkt því ég og þeir sem standa mér næst
vita hver ég raunverulega er og hvað ég stend
fyrir. Það dugar mér en eina ástæðan fyrir því
að mér finnst vert að nefna þetta dæmi er að
mér finnst mjög mikilvægt að konur viti að
það sé hægt að fylgja draumum sínum eftir
og framkvæma þá án þess að vera með mikið
fjármagn á bak við sig eða vera með fimm há-
skólagráður.
Ég mæli að sjálfsögðu samt alltaf heils-
hugar með námi en ef mann vantar menntun
á maður ekki að láta það hindra sig. Það er í
raun hægt, með miklum áhuga, að verða sér
úti um upplýsinmgarnar sem mann vantar
sjálfur, með bókum og jafnvel internetinu. Í
dag heyri ég til dæmis reglulega af því að ég
sé tekin fyrir sem dæmi í markaðsfræðikúrs-
um í Háskólanum. Ég er ekki með háskóla-
menntun í markaðsfræði en tel mig samt vera
með hálfgerða meistaragráðu í þeim fræðum
eingöngu í gegnum sjálfmenntun. Ég hef sótt
öll námskeið sem ég hef komist í og svo les ég
markaðsfræðibækur öll kvöld.“
Mestur tími Sigrúnar Lilju fer nú orðið í
markaðssetningu og uppbyggingu fyrirtækis-
ins. „Ég er löngu hætt að skilgreina mig sem
hönnuð þrátt fyrir að það sé í raun hluti af
mínu starfi út á við en hönnunin er ekki nema
eingöngu svona um 5% af mínum daglegu
störfum. Fyrst og fremst held ég að ég sé
viðskiptakona og frumkvöðull,“ segir Sigrún
Lilja sem er þó að sjálfsögðu einnig með hug-
ann við hönnunina. „Ég er alltaf með augun
opin, alltaf að skoða og pæla og reyni að grípa
augnablikin. Þannig virkar þetta bara en það
gengur ekki að vera með flotta vöru sem eng-
inn veit af. Maður verður að láta vita af sér. Ég
er að byggja upp 360 gráðu lífsstílsmerki og
þá er markaðssetningin algert lykilatriði.“
Metsöluhöfundurinn
Aðferðir Sigrúnar Lilju í markaðssetningu
Gyðja Colletion vöktu athygli markaðsspek-
inga í Bandaríkjunum sem hrifust svo að
hún var fengin til þess að leggja til efni í tvær
bækur um frumkvöðlastarf í markaðssetn-
ingu þannig að hún getur með réttu einnig
titlað sig metsöluhöfund en báðar bækurnar
hafa rokselst á Amazon.com.
„Ég komst í tæri við fyrirtæki í Bandaríkj-
unum og við vorum að ræða annars konar
samstarf en þeir urðu spenntir fyrir því sem
ég var að gera og vildu fá Skype-fund með
mér. Útgefandi þessara bóka var á fundinum,
sagði mér frá hugmyndinni að fyrri bókinni
og sagðist vera mjög spenntur fyrir mínum
markaðsaðferðum og að sér þætti gaman að
því að ung kona væri að gera þessa hluti og
láta til sín taka og bað mig um að vera með í
bókinni. Ég stökk auðvitað á það enda voru
þarna saman komir flottir sérfræðingar á
ýmsum sviðum til þess að setja saman þessa
bók, The Next Big Thing.
Bókin gekk rosalega vel og varð metsölu-
bók á Amazon strax sólarhring eftir að hún
kom út. Það var frábært tækifæri að fá að
kynnast þessu hæfileikaríka fólki sem kom að
bókinni. Þetta er alveg ótrúlegt fólk þannig að
ég er mjög auðmjúk yfir því að hafa fengið að
vera með.“
Sigrún Lilja hefur lengi aðhyllst lífsspekina
sem kennd er við The Secret sem gengur
meðal annars út á að fólk „vilji“ hlutina til sín.
Hugsi um og sjái fyrir sér hvað það langar
til þess að gera og öðlast og þannig rætist
draumarnir. Hún varð því enn meira upp með
sér þegar hún var beðin um að taka þátt í
næstu bók, The Success Secret, en aðalmað-
urinn í þeirri bók er Jack Canfield sem hefur
lengi predikað Secret-spekina og var til dæm-
is áberandi í The Secret, vinsælli kvikmynd
um hugmyndafræðina.
„Ég hef litið upp til Jack Canfield í átta eða
níu ár og það var rosalega mikill heiður að
vera boðið að vera með í þessari bók. Canfield
er alger goðsögn og selur bækur sínar í millj-
ónum eintaka. Hann fjallar mikið um innri
manneskjuna og hefur helgað líf sitt því að
byggja fólk upp. Það var rosalega gaman að
fá að vera með honum og auðvitað opnuðust
þarna ný markaðstækifæri og ýmislegt spenn-
andi hefur komið upp úr þessu sem ég er að
skoða fyrir þetta ár. Maður er ekkert hættur!“
Leyndarmál velgengninnar
„Það má kannski segja að ég lifi eftir Secret-
spekinni í einu og öllu. Áður en ég fer að sofa
á kvöldin leggst ég upp í rúm með svona þrjár
til fjórar blaðsíður yfir það sem ég ætla mér á
þessu ári. Ég les þetta yfir, loka augunum og
sé það fyrir mér. Og þannig virkar þetta.
Ég hef alltaf verið skapandi, jákvæð,
bjartsýn og kraftmikil en hef ekkert alltaf
verið með mikið sjálfstraust eða þorað að
láta til mín taka. Ég er í því að fara út fyrir
þægindarammann. Það er mjög erfitt fyrst en
svo venst maður því. Maður á að leggja það
á sig vegna þess að það sem drepur mann
ekki styrkir mann bara. Maður verður líka að
þakka fyrir hluti sem eru manni erfiðir vegna
þess að á endanum lærir maður af þeim.
Eitt af lykilatriðunum hjá mér er að koma
alltaf vel fram við náungann og halda mér á
jörðinni. Ég geri þetta til dæmis með aðferð-
um úr The Secret og með því að vera þakklát
fyrir alla þessa litlu hluti. Það geta alltaf allir
fundið eitthvað til að þakka fyrir og þegar
maður er búinn að þakka fyrir þá verða þeir
stærri og mikilvægari. Rétt eins og ef maður
einblínir á eitthvað neikvætt þá stækkar það.
Ég er mjög ákveðin í þessu,“ segir gyðjan sem
fer sínar eigin leiðir og er rétt að byrja.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Komdu á frumsýningu í dag
20% sparneytnari og enn öruggari Mazda6 á frábæru verði
Glæsilegur staðalbúnaður, m.a. snjallhemlunarkerfi (Smart City Break Support),
blindpunktsaðvörunarkerfi (Rear Vehicle Monitoring), 17” álfelgur, Bluetooth, nálægðarskynjarar,
upplýsingasnertiskjár í mælaborði, hraðastillir (cruise) og regnskynjari í framrúðu.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 l Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 l mazda.is
Mazda6 kostar aðeins frá 4.390.000 kr.
Mazda6hálfsíða.indd 1 15.01.2013 09:50:45
Sigrún Lilja segist alltaf vera með augun opin og
í leit að nýjum tækifærum. Þegar Eyjafjallagosið
byrjaði var hún fljót til og setti sex mánuðum
síðar á markað ilmvatn með nafni jökulsins. Stórar
erlendar fréttaveitur sýndu ilmavatninu áhuga og
salan gekk svo vel að hún hefur sent frá sér tvær
nýjar tegundir til viðbótar.
30 viðtal Helgin 1.-3. febrúar 2013