Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.02.2013, Page 39

Fréttatíminn - 01.02.2013, Page 39
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA ÍSLENSKUR OSTUR B jörn Halldórsson barðist í átta og hálft ár við kerfið og hlaut loks sigur fyrir dómstólum en hann fékk ranga frumgreiningu á spítala með þeim afleiðingum að hjarta hans hlaut varanlegar skemmdir. „Núna í febrúar eru liðin tíu ár frá því að ég fékk hjartaáfall. Ég fékk ranga frum- greiningu á spítalanum og það liðu 8 klukkustundir frá því að ég kom inn á spítalann og fékk rétta meðhöndlun. Það gerði það að verkum að á hjartanu varð óbætanlegur skaði sem kippti undan mér lífinu. Ég hef ekki getað unnið venjulega vinnu síðan því hjartað á mér vinnur ekki í fullum afköstum. Ég get svona dundað mér hérna heima, en ekki mikið meira en það,“ segir Björn. „Það er mikið áfall að lenda í slíku atviki og ennþá erfiðara fyrir þær sakir að í upphafi er enginn sem leiðbeinir hvað á að gera næst. Að standa í stappi við embættismenn svo árum skiptir er lýjandi, sérstaklega þegar það er haft í huga að kerfið virðist hafa tilhneigingu til að túlka vafaatriði spítala eða lækni í hag. Það var erfitt að taka við greinargerð sem yfirstjórn spít- alans lét yfirlækna gera að því er virtist í þeim tilgangi einum að gera lítið úr veikindum mínu og gera persónu mína ótrúverðuga. Slíkt er ekki leggjandi á venju- legt fólk. Björn hefur því átt þátt í stofnun félagsins Viljaspor ásamt formanni félagsins, Auð- björgu Reynisdóttur. Félagið veitir stuðning og leiðbeiningar um hvaða leiðir er hægt að fara til að leita réttar síns í málum sem þessum. „Tilgangur félags- ins er að þeir þolendur atvika eða óhappatilvika sem verða fyrir skaða verði leiðbeint inn í kerfið en félagið beitir sér ekki í einstökum málum. Auk þess mælum við með því að hlutverk Björn Halldórsson stofnar félagið Viljaspor Það þarf að opna umræðuna um læknamistök sjúklingatryggingar verði víkkað út og hún verði notuð til að bæta þeim tjón sem orðið hafa fyrir slíku, það ferli á að vera einfalt, gagnsætt og umfram allt fljótlegt,“ segir Björn. „Ég vonast til þess að félagið geti stuðlað að því að þeir þolendur sem þurfa að leita til Landspítal- ans, landlæknis, annarra stofn- anna og eða dómstóla fái þar góðar móttökur og stjórnsýslan leiðbeini þessu fólki þannig að mál þess fái góðan og faglegan framgang í kerfinu.“ „Breski landlæknirinn talaði á ráðstefnu árið 2007 um mistök í heilbrigðisþjónustu og ef niður- staðan úr erlendum rannsóknum er heimifærð yfir á Ísland lenda 2500 manns í einhverju atviki eða óhappatilviki á sjúkrastofnun á Ís- landi á hverju ári,“ segir Björn. „Til stóð að gera sambærilega rann- sókn hér á landi en því var frestað í kjölfar hrunsins. Matthías Hall- dórsson, þáverandi landlæknir, sagði á þessari ráðstefnu, sem mér fannst athyglisvert, að það væri kominn tími til að opna umræðuna um þessi mál hér á landi og taka þyrfti á þeim með öðrum hætti. Það þyrfti að horfast í augu við þá staðreynd að svona atvik eiga sér stað. Landlæknir sagði það líka mikilvægt, þegar slíkt eigi sér stað, að greina sjúklingi frá því, skýra út það sem gerst hefur og biðjast afsökunar,“ segir Björn. Björn Halldórsson. Sama virðingaleysið hjá land- lækni Matthildur sendi fyrir um ári inn erindi til embættis land- læknis þar sem hún kvartaði undan þeirri meðferð sem hún fékk í heilbrigðiskerfinu. „Það er skemmst frá því að segja að mér hefur verið sýnt sama virðingar- leysið hjá landlækni og ég fékk að kynnast í heilbrigðiskerfinu. Einn maður sér um mál mitt hjá landlækni og sá svarar ekki póst- um mínum né heldur símtölum. Ég hef talað við hann einu sinni í síma. Ég veit ekkert hvar það mál er statt því ég fæ engin svör. Fljótlega eftir að ég sendi inn erindið fékk ég bréf frá lögfræð- ingi embættisins sem ég fékk lögfræðing Öryrkjabandalagsins til að skoða fyrir mig nýlega og hann taldi það mjög misvísandi, ég veit ekki meira en það.“ Heilsa Matthildar batnaði all- verulega eftir að krabbameinið var fjarlægt þó svo að lyfjameð- ferðin hefði haft þær aukaverk- anir að hún stríðir nú við úttauga- verki. „Ég er mun orkumeiri og er alls ekki með þetta rosalega þunglyndi sem allir læknarnir voru með þráhyggju yfir að ég væri með. Vissulega er sálin mín samt sem áður talsvert brotin eftir þessa reynslu,“ segir hún. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is viðtal 39 Helgin 1.-3. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.