Fréttatíminn - 01.02.2013, Page 48
48 heimili Helgin 1.-3. febrúar 2013
Hátíð HönnunarMars í fiMMta sinn
Bæjarhátíð í
miðri borginni
HönnunarMars verður haldinn í fimmta sinn í næsta mánuði. Undirbúningur gengur vel að sögn
Greips Gíslasonar verkefnastjóra. Aldrei hafa fleiri erlendir hönnuðir sýnt hátíðinni áhuga en þeir
íslensku verða þó eftir sem áður í aðalhlutverki.
Akralind 7 200 Kópavogi s. 564 4666 www.listinn.is
Borð m. snúningsplötu
Þvermál 1,5 m. og 6 stólar
Verð áður: 275.000 kr.
Tilboð: 200.000 kr.
Opið: mán - föst. 10 - 17. Kíkið á heimasíðuna www.listinn.is
Magnaða moppuskaftið
Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar
Gólfin þorna á augabragði
Fljótlegt og þægilegt
Húsasmiðjan - Pottar og prik Akureyri - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Eyjatölvur
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Skipavík Stykkishólmi - SR byggingavörur Siglufirði
Rafsjá Sauðárkróki - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Óskaþrif Hólmavík
SÖLUAÐILAR:
Ræstivörur ehf - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is
10 x 21 cm = 160.- stk
15 x 15 cm = 160.- stk
10 x 15 cm = 145.- stk
www.myndval.is
Við útbúum boðskort í ferminguna á augabragði.
Hjá okkur er mikið úrval fermingarkorta sem
hægt er að skoða á heimasíðu okkar
s: 557 4070 - www.myndval. is
V ið höfum einbeitt okkur að því módeli sem skapað var í upphafi. Þetta er gras-rótarhátíð þar sem íslensk hönnun og hönnuðir fá að njóta sín. Okkur hefur tekist að halda þessu og erum frekar ánægð með það,“ segir Greipur Gíslason, verkefna-
stjóri HönnunarMars.
HönnunarMars verður haldinn í fimmta sinn dagana 14.-17. mars næstkomandi. Frestur
til að skrá viðburði á HönnunarMars rennur út á miðvikudaginn, 7. febrúar. Skráningar-
eyðublöð er að finna á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Aðspurður segir Greipur
að undirbúningur gangi sinn vanagang. „Hér eru allir í startholunum,“ segir hann.
Greipur segir að ef hann ætti að tilgreina sérstöðu hátíðarinnar í ár þá væri það aukinn
áhugi erlendis frá. „Hann hefur aukist jafnt og þétt en er að springa út núna. Það hafa
aldrei fleiri erlendir hönnuðir sýnt áhuga á hátíðinni og það eru fleiri samstarfsverkefni
innlendra og erlendra hönnuða en áður. Það hefur ýmiskonar þróun átt sér stað á þessum
fimm árum. Fimmti Marsinn er ekkert endilega stærri en þeir fyrri en hann er þó meira
djúsí.“
HönnunarMars hefur notið talsverðra vinsælda meðal almennings og segir Greipur að
hátíðin virðist vera komin til að vera. „Samkvæmt könnunum Gallup síðustu tvö ár sækja
um tíu prósent þjóðarinnar viðburði á hátíðinni og níutíu prósent þekkir vörumerkið. Okk-
ur hefur tekist að búa til bæjarhátíð í borginni,“ segir Greipur en auk heimamanna sækja
fjölmargir erlendir gestir HönnunarMars ár hvert. Hann er einmitt á leið út á hönnunar-
vikuna í Stokkhólmi í næstu viku til að kynna hátíðina. „Við reynum að markaðssetja þetta
sem næsta viðburð á dagatalinu á henni eftir henni.“
Greipur Gíslason vinnur að skipulagningu HönnunarMars sem nú verður haldinn í fimmta sinn. Hátíðin verður kynnt á
hönnunarvikunni í Stokkhólmi í næstu viku. Ljósmynd/Hari
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is