Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 76
72 jól Helgin 14.-16. desember 2012
Freistingar að
hætti Jóa Fel
- Sörur og kransakonfekt
Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut
A ð baka Sörur er tímafrekt ferli en þegar upp er staðið er það vel þess virði. Sörur
eru bakaðar á mörgum heimilum
fyrir hver jól enda afar bragðgóðar.
Mörgum vex þó í augum umstang-
ið sem fylgir bakstrinum. Við feng-
um Jóa Fel til að segja okkur frá
hans aðferð við að baka Sörur. Jói
segir mikilvægt að vanda sig, sér-
staklega við botnana og kremið,
ef vel á að takast til. „Margar upp-
skriftir eru til af Sörum og veit ég
ekki til þess að nein þeirra sé upp-
runaleg. Þessi sem ég nota er úr
franskri kökubók en Sörurnar eru
einmitt franskar að upplagi. Sumir
nota kransakökubotn í Sörur og
laga svo einfalt smjörkrem ofan á
og hafa það oft verið kallaðar kaffi-
húsasörur.”
Botn
Eggjahvítur 4 stk
Möndluduft 260g
Flórsykur 230g
Krem
Vatn 1 dl
Sykur 120g
Eggjarauður 4 stk
Kakó 1 msk
Smjör 260g
1 espresso kaffi
Til að gera botninn þarf að búa
til möndlumjöl. Heilar afhýddar
möndlur eru settar í matvinnslu-
vél og malaðar í duft. Flórsykr-
inum er síðan blandað saman við
möndluduftið. Eggjahvíturnar eru
stífþeyttar, setjið flórsykurinn
og möndlumjölið mjög varlega
saman við með sleikju þar til allt
er komið vel saman. Setjið deigið
í sprautupoka með frekar litlu
gati og sprautið litlum toppum á
bökunarplötu og bakið við 180°
í 13 mínútur eða þar til fallegur
litur er kominn á botnana og setjið
síðan í kæli. Jói segir Sörukremið
í grunninn vera franskt smjör-
krem sem notað sé í margar góðar
kökur og það sé ákveðin kúnst að
gera það. „Sjóða þarf vatn og sykur
í síróp. Ef þið eigið hitamæli á
sykurblandan að fara upp í um það
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega
jólaskeiðin
frá Ernu
Jólaskeiðin 2012
er hönnuð af
Sóleyju Þórisdóttur.
Skeiðin er smíðuð á
Íslandi úr ósviknu silfri.
Verð: 18.500.- stgr.
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
JólAbAkstur
Sörur eru fyrir-
hafnarinnar virði
bil 116 gráður. Ef ekki er til hita-
mælir á heimilinu er sírópið tilbúið
þegar loftbólurnar í pottinum eru
orðnar frekar þykkar og sírópið
farið að þykkjast. Passið samt að
sykurinn má alls ekki byrja að
taka lit. Ef sírópið er hitað of hátt
geta myndast kögglar. Á meðan
sírópið er að sjóða eru eggja-
rauðurnar þeyttar vel upp. Hellið
síðan sírópinu saman við í mjög
mjórri bunu. Eftir að sykurinn er
kominn saman við er þeytt áfram
í um það bil þrjár mínútur. Hafið
smjörið við stofuhita og blandið
saman við þeytinguna ásamt kakói
og kaffi. Kremið þarf að hræra
rólega saman með sleikju. Smyrjið
kreminu yfir botnana og setjið í
frysti. Hjúpið svo Sörurnar með
bræddu suðusúkkulaði og setjið
aftur í frysti.”
Prinsessusmákökur eru mjög
fallegar jólasmákökur. Jói segir
uppskriftina einfalda en það sé
smá handavinna sem liggi að baki
þessum kökum. Kökurnar eru
mjög jólalegar og passa mjög vel
með góðu jólasúkkulaði, kaffi eða
ískaldri mjólk.
Deig
Smjör 170g
Sykur 115g
Möndluduft 170g
Hveiti 170g
Vanilludropar 1msk
Smjör og sykur er unnið saman
með vanilludropum en ekki létt og
ljóst heldur bara vel saman. Búið
til möndluduft úr heilum möndl-
um og blandið saman við hveitið.
Setjið saman við smjörblönduna
og vinnið mjög rólega saman í gott
deig, passið bara að vinna ekki of
mikið saman því þá klessist deigið.
Setjið deigið í plast og í kæli.
Rúllið deigið út með kökukefli
og passið að hafa vel af hveiti und-
ir. Rúllið niður á um það bil 3 mm.
Stingið þá út kökurnar, setjið á
bökunarplötu og stingið út minna
gat á helminginn af botnunum.
Blandið saman einni eggjahvítu og
nokkrum kornum af salti og sláið
saman með gafli. Penslið hvítunni
yfir botnana með gatinu og sáldrið
yfir möndluflögum. Bakið við 180°
í 11-13 mínútur eða þar til fallegur
litur er kominn á kökurnar. Setjið
góða jarðarberjasultu á kalda neðri
botnana og leggið svo efri helm-
inginn yfir, sigtið svo flórsykur
yfir í lokin og berið fram.
Jóhannes Felixson bakari. Ljósmynd/Hari