Fréttatíminn - 14.12.2012, Page 90
86 matur Helgin 14.-16. desember 2012
Bakstur Nýjar Bækur um koNfekt- og Bollakökugerð
Kætir súkkulaðiunnendur og aðra sælkera
Rósa Guðbjartsdóttir er matgæð-
ingur og bókaútgefandi og hefur nú
gefið út tvær nýjar matreiðslubækur,
um konfektgerð og bollakökur.
l itlar sætar freistingar er jafnan erfitt að standast á veisluborðinu. Í nýjum fallegum bókum, Konfekt og
Bollakökur, eru uppskriftir að gómsætu
konfekti og bollakökum sem enginn fær
staðist. Bækurnar eru í litlum öskjum
og fylgja þeim annars vegar 30 silíkon-
form sem gera konfektgerðina sérlega
auðvelda og hins vegar 16 lítil silíkonform
í pastellitum fyrir bollakökubaksturinn.
„Móttökurnar hafa verið æðislegar,
enda um sérlega fallegar og hagnýtar
gjafir að ræða,“ segir Rósa Guðbjartsdótt-
ir, ritstjóri hjá Bókafélaginu, en hún hefur
umsjón með útgáfu bókanna. Sjálf er hún
mikill matgæðingur, hefur skrifað, þýtt
og ritstýrt vinsælum matreiðslubókum
og segist hafa fallið fyrir þessum bókum
hjá frönsku bókaútgáfunni Larousse.
„Ég dreif í því að fá að gefa bækurnar út
hér á landi, lét þýða þær og er alsæl með
afraksturinn. Uppskriftirnar eru mjög
girnilegar og með þeim eru einfaldar og
góðar leiðbeiningar. Silíkonformin sem
fylgja gera baksturinn og konfektgerð-
ina að léttum leik. Það hefur verið mjög
gaman að heyra að fólk kaupir öskjurnar
líka talsvert til að gefa stálpuðum börnum
og unglingum sem hafa gaman af bakstri
og dúlleríi í eldhúsinu.“
Rósa gefur hér uppskrift að gómsætum
bananabollakökum með súkkulaðikremi
sem tilvalið er að baka á aðventunni.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Rósa Guðbjartsdóttir er matgæðingur sem hefur skrifað, þýtt og ritstýrt vinsælum mat-
reiðslubókum og segist hafa fallið fyrir þessum bókum hjá frönsku bókaútgáfunni Larousse.
Bananabollakökur
með súkkulaðikremi
16-20 litlar
bollakökur
• 1 ½ banani
• 1 msk. sýrður rjómi
• 1 ½ dl hveiti
• ¼ tsk. salt
• ½ tsk. matarsódi
• ¼ tsk. kanill
• 1 dl sykur
• 80 g mjúkt smjör
• 2 egg
Súkkulaðikrem
• 100g dökkt súkkulaði
• 1 msk. rjómi
• 75 g mjúkt smjör
• 1 ¼ dl flórsykur
Forhitið ofninn í 180 gráður. Stappið banana
með gaffli, bætið við sýrðum rjóma og hrærið
saman. Hrærið smjör og sykur saman þar til
blandan verður létt og ljós, bætið þá kanil út
í. Blandið síðan bananastöppunni saman við.
Hrærið eggjum saman við, einu í einu. Blandið
loks þurrefnum, hveiti, salti, matarsóda og sykri
saman við. Setjið deigið í formin, fyllið þau að
2/3. Bakið í 15-20 mínútur eftir stærð. Bræðið
súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni.
Bætið rjómanum út í og hrærið rólega saman við
súkkulaðið. Látið blönduna kólna í 5-10 mínútur.
Hrærið saman mjúkt smjör og flórsykur þar til
blandan verður rjómakennd. Bætið súkkulaði-
blöndunni út í smátt og smátt og hrærið varlega
á meðan. Setjið kremið í kæli, þar til þykknar og
sprautið því síðan á bollakökurnar.
Rósa skreytti kökurnar með muldum brjóstsykri.
t akið bringurnar í sundur með því að byrja á þynnri endanum og fletjið þær út
með því að berja þær í um það bil
2 sm þunnan flöt.
Blandið saman 3 msk af soja-
sósu, sherry og sykri í djúpan
disk. Setjið bringurnar ofan í
marineringuna, með skinnið
niður og marinerið í 30 mínútur.
Á meðan bringurnar marin-
erast, skerið niður brauð, lauk-
ana og möndlurnar (ristið þær).
Blandið smjörinu saman við
2 msk. sojasósu og hellið yfir
brauðblönduna (ekkert að því
að skella höndunum í þetta og
hnoða aðeins).
Takið bringurnar úr mariner-
ingunni og geymið marineringar-
löginn. Setjið helminginn af fyll-
ingunni á helminginn af hvorri
bringunni, rúllið bringunni upp
eins þétt og þið getið.
Látið í eldfast mót eða ofn-
skúffu og penslið með mariner-
ingunni. Setjið inn í 160° heitan
ofn og eldið í 1 klukkustund og
15 mínútur. Penslið með mariner-
Rautt pantone 1797C
Blátt pantone 2935C
Æðislegar fylltar
kalkúnabringur
kynninG
2 stk kalkúnabringur beinlausar
5 msk. sojasósa
2 msk þurrt sherry
½ tsk sykur
8 stk brauðsneiðar
1 bolli fínt saxað sellerí
2/3 bolli saxaðar möndlur, ristaðar
¼ bolli fínsaxaður blaðlaukur
3 msk smjör, bráðið
ingunni á 30 mínútna fresti.
Takið bringurnar úr ofninum og
látið standa í 15 mínútur áður en
þið takið bandið/tannstönglana af
og berið fram.
Gott er að gera sósu úr soðinu
sem kemur af bringunum.
jólamatur