Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 8
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
NÝ
JUN
G!
Við kynnum nýjan hvítmygluost frá Mjólkursamsölunni
undir nafninu Dala-Auður. Osturinn er einstaklega
mjúkur og bragðgóður og er sá mýksti úr flóru
mygluosta frá MS.
Dala-Auður er 170 g og er unnin úr nýmjólk.
Nafn ostsins er vísun í Auði djúpúðgu sem var
landnámskona í Dölunum og ættmóðir Laxdæla.
MJÚKUR OG LJÚFFENGUR
HVÍTMYGLUOSTUR ÚR DÖLUNUM
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2–
06
31
Lára Ingþórsdóttir svaraði auglýsingu á leiguíbúð á bland.is en fljótlega hringdu hjá henni viðvörunarbjöllur.
Peningasvindl Hraðfluttningafyrirtæki notað sem skálkaskjól
Húsnæðisleitendur
fórnarlömb svindlara
Íslenskir íbúðaleigjendur eru fórnarlömb áður óþekkts peningasvindls. Erlendur maður notar TNT
hraðflutningafyrirtækið sem skálkaskjól en fyrirtækið varar við svindlinu. Svindlarinn segir fyrir-
tækið hafa milligöngu um greiðslur og afhendingu húslykla. Margir hafa haft samband við TNT.
Í slenskir leigjendur eru fórnarlömb erlends peningasvindls. Undanfarnar tvær vikur hafa
tvær íbúðaauglýsingar verið birtar
á bland.is þar sem íbúðir í miðbæ
Reykjavíkur hafa verið auglýstar til
leigu, annars vegar íbúð á Skúla
götu og hins vegar á Ægisgötu.
Í svarpósti við fyrirspurn um
íbúðina á Ægisgötu segist „eig
andinn“ vera fluttur til Bretlands
vegna vinnu sinnar. „Ég keypti
íbúðina með það fyrir augum að
gera hana upp og breyta í lúxus
íbúð en vegna efnahagsástands
ins hefur mér ekki tekist að selja
hana,“ segir svindlarinn. Hann
segist ekki vera með neina tengi
liði á Íslandi og því notist hann við
þjónustu hraðflutningafyrirtækis
ins TNT. Leigjandinn á að leggja
inn tveggja mánaða leigu, 196
þúsund krónur, á reikning TNT og
fær þá afhenta lykla að íbúðinni.
Leigjandinn hafi síðan þrjá daga
til að ákveða sig, ef hann ákveði að
taka ekki íbúðina skili hann ein
faldlega lyklunum til TNT og fái
upphæðina endurgreidda.
Að sögn Héðins Gunnarssonar,
forstöðumanns TNT á Íslandi, hafa
fjölmargir sett sig í samband við
fyrirtækið vegna þessara tveggja
íbúða sem séu augljóslega svindl.
Reikningsnúmerið sem gefið sé
upp vegna millifærslu sé ekki á
vegum TNT heldur svindlarans
sjálfs.
„Það er alþekkt um allan heim
að svindlarar nota sér vel þekkt
og virt vörumerki á borð við TNT
til að gera svindl sitt trúanlegt og
við vörum við slíku svindli,“ segir
hann.
Enginn þeirra sem höfðu sam
band við TNT hafði tapað pening
um en tveir voru við það að milli
færa, annar hætti við eftir að hafa
rætt við TNT en hinn var búinn að
biðja um millifærslu hjá bankanum
en athugull bankastarfsmaður
ákvað að hringja í TNT áður en
millifærslan var framkvæmd.
„Hugsanlega vegna gjaldeyrishaft
anna,“ segir Héðinn.
Lára Ingþórsdóttir er tveggja
barna einstæð móðir á stúdenta
görðum og er að leita að íbúð til
framtíðarleigu. „Ég sá auglýsta á
bland.is íbúð á Ægisgötu og fannst
leigan viðráðanleg og setti mig
því í samband við þann sem var að
auglýsa. Fljótlega fóru að hringja
hjá mér viðvörunarbjöllur því sá
sem ég var í sambandi við vildi
ekki ræða um íbúðina sérstaklega,
til dæmis númer hvað hún væri í
húsinu eða á hvaða hæð, heldur
einungis um greiðslufyrirkomu
lagið,“ segir hún.
Lára setti sig í samband við íbúa
í húsinu sem sögðust ekki vita til
þess að í því væri laus íbúð. „Auk
þess fannst þeim leiguverðið ansi
lágt,“ segir hún.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Reykjavík birtist
reglulega auglýsingar á bland.is
þar sem reynt er að hafa fé af fólki.
Lögreglan er í reglulegu sambandi
við ábyrgðarmenn bland.is vegna
auglýsinga sem ábendingar berast
um og eru þær umsvifalaust fjar
lægðar af vefnum. Hafliði Þórðar
son, fulltrúi hjá Lögreglunni í
Reykjavík, ítrekar að fólk sendi
ekki peninga með peningaflutn
ingafyrirtækjum á borð við Wes
tern Union til aðila sem það þekkir
ekki.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þú leggur línurnar
létt&laggott
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
8 fréttir Helgin 23.-25. nóvember 2012