Fréttatíminn - 23.11.2012, Side 10
Veglegt uppboð á ljósmyndum fer fram
í Gyllta sal Hótels Borgar á sunnudag
klukkan 19. Tilgangur uppboðsins er að
styrkja Ingólf Júlíusson, ljósmyndara og
margmiðlunarhönnuð, sem greindist með
bráðahvítblæði í byrjun október og hefur
verið á sjúkrahúsi síðan. Eftir áramót fer
Ingólfur til Svíþjóðar þar sem hann mun
gangast undir mergskipti.
Ingólfur, eða Ingó eins og hann er jafnan
kallaður, hefur verið sjálfstætt starfandi
ljósmyndari og hönnuður síðan 2008, með-
al annars á Fréttatímanum. Hann hefur
tekið ljósmyndir fyrir Reuters á Íslandi og
hlotið verðlaun fyrir. Félagar Ingólfs í stétt
ljósmyndara skipuleggja uppboðið til að
styðja við bakið á honum og fjölskyldu
hans á þessum erfiðu tímum.
Á uppboðinu verður meðal
annars að finna málverk eftir
Tolla og myndir eftir kunna
ljósmyndara á borð við RAX,
Pál Stefánsson, Ara Magg og
Vilhelm Gunnarsson. -hdm
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Jólamálningin!
Deka Meistaralakk 70
Akrýllakk. hvítt. 1 líter
1.595
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
5.490
Mako pensill 50mm
195
Deka Gólfmálning grá
3 lítrar
3.890
Hágæða sænsk málning
10% gljástig, verð 10L
5.290
allir ljósir litir
Aqua 25 innimálning á
böð 4 lítrar
3.990
Deka Spartl LH. 3lítrar
1.745
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Mako málningar-
rúlla og bakki 25cm
895
Myndir eftir þekkta ljósMyndara boðnar upp
Uppboð til að styrkja Ingó
Ingólfur Júlíusson ljósmyndari
berst við bráðahvítblæði.
Vinir hans hafa skipulagt ljós-
myndauppboð á Hótel Borg á
sunnudagskvöld.
þ ótt nú sé komið vopnahlé þá heldur þessi barátta áfram,“ segir Stefán Jónsson, prófessor við Listaháskóla Íslands, en hann hefur síðustu daga staðið fyrir undirskriftarsöfnun á netinu þar
sem gerð er krafa á hendur íslenskra stjórnvalda að þau beiti sér fyrir
viðskiptabanni á Ísrael.
„Við erum vön því að átök af þessu tagi blossi upp á þessu svæði með
hræðilegum afleiðingum – sérstaklega fyrir palestínsku þjóðina sem
býr innan þessarra skelfilegu múra sem reistir hafa verið af Ísraels-
mönnum,“ heldur Stefán áfram því vopnahlé breytir litlu í afstöðu
hans. „Í stað þess að bíða eftir næsta eldgosi þá á þessi krafa frekar að
standa. Við sem höfum skrifað undir á Change.org viljum að Ísraels-
mönnum séu settur stóllinn fyrir dyrnar.“
Síðan átökin hófust hafa fimm Ísraelar látið lífið en rúmlega 140 íbú-
ar á Gaza. Þegar Fréttatíminn fór í prent í gær hafði vopnahléið haldist
að mestu við mikinn fögnuð íbúa á Gaza.
Um ástæðu þess að Stefán, prófessor við Listaháskólann, hafi staðið
fyrir undirskriftarsöfnuninni segir hann að oft sé hann æði virkur á
Facebook „og þar er maður með skoðanir á öllum hlutum. Ég og aðrir
kaupum okkur oft góða samvisku með því að „læka“ það að einhver
eigi að hjálpa veikum börnum í Afríku eða að grípa eigi til aðgerða út
af þessu eða hinu. Svo heyri maður pælingar um að það eigi að mót-
mæla þessu eða safna undirskriftum og ég ákvað bara að slá til. Þetta
var ekki flókið. Ég fór inn á Change.org og fylgdi þar góðum leiðbein-
ingum um hvernig eigi að stofna til undirskriftarsöfnunar,“ útskýrir
Stefán sem er hvergi nærri hættur og í dag, föstudag, ætlar hann
að afhenda stjórnvöldum („vonandi Össuri Skarphéðinssyni
utanríkisráðherra“) undirskriftirnar á mótmælafundi
fyrir utan stjórnarráðið klukkan 17.
„Reyndar vil ég heldur kalla þetta meðmæla-
fund með friði,“ segir Stefán.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
„Reyndar
vil ég heldur
kalla þetta
meðmæla-
fund með
friði.“
Vopnahlé stjórnVöld í ísrael og haMas slíðra sVerðin
5.000 undirskriftir
með viðskiptabanni
Stefán Jónsson, prófessor við Listaháskóla Íslands, stökk til fyrr í vikunni og stofnaði til undir-
skriftarsöfnunar á netinu. Honum blöskraði framganga Ísraels gegn íbúum á Gaza í Palestínu og
á aðeins örfáum dögum söfnuðust nær fimm þúsund undirskriftir. Það þykir þó nokkuð og Stefán
ætlar að afhenda Össuri Skarphéðinssyni undirskriftirnar í dag.
Stefán Jónsson prófessor efndi
til undirskriftarsöfnunar á netinu.
Vopnahlé náðist
í fyrradag á milli
Ísraels og Hamas.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
10 fréttir Helgin 23.-25. nóvember 2012