Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 16
Volkswagen up! kostar aðeins
1.990.000 kr.
www.volkswagen.is
Volkswagen up!
Komdu og reynsluaktu Volkswagen up!
Lítill að utan
og stór að innan
Volkswagen up! setur ný viðmið í hönnun smá-
bíla með því að sameina nett ytra rými og rúm-
gott innra rými. Hvergi er gefið eftir í kröfum
um aksturseiginleika, gæðum né öryggi og því
til sönnunar eru einróma hrós bílablaðamanna
um allan heim og 5 stjörnu einkunn í árekstrar-
prófunum EuroNcap. Niðurstaðan er einföld:
Volkswagen up! er alvöru smábíll.
S igrún Proppé sálgreinir seg-ir að draga megi úr brottfalli úr framhaldsskólum með
því að auka sálrænan stuðning
við ungmenni. Hvergi í heiminum
er meira brottfall úr framhalds-
skólum en á Íslandi. Sigrún hefur
sérhæft sig í sálfræðimeðferð
fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25
ára og starfaði um árabil í Sví-
þjóð en flutti nýverið heim aftur.
„Það er mikið áhyggjuefni hversu
hátt brottfall framhaldskólanema
er hér á landi, en þessi vandi er
einnig vel þekktur í Svíþjóð,“ segir
hún. „Reynslan þar hefur sýnt að
oft er hægt að fyrirbyggja þessa
þróun ef ungmennið fær rétta hjálp
í tæka tíð. Tengslin sem byggjast
upp í reglubundnum viðtölum með
virkum stuðningi meðferðaraðila
veitir ungmenninu utanumhald og
skapar rými fyrir eigin hugsanir
og tilfinningar, sem getur skipt
sköpum,“ segir hún.
Á þessu aldursskeiði eiga sér
stað mikil átök í sálarlífinu og
ungmenni verða að leysa fjölmörg
þroskaverkefni á farsælan hátt ef
vel á að fara, að sögn Sigrúnar.
„Þetta þroskaferli tekur mikla
orku og margir þurfa aðstoð til að
komast yfir sálrænar hindranir
sem annars geta seinkað eða heft
leiðina til fullorðinsára. Fjöldi ungs
fólks er í knýjandi þörf fyrir fag-
legan sálfræðilegan stuðning til að
fyrirbyggja neikvæða þróun í námi
og þroska,“ segir hún.
Markmið ríkisins ekki í
samræmi við þörf
Markmið ríkisins varðandi geð-
heilbrigðisþjónustu barna er í engu
samræmi við þörfina að því er fram
kemur í skýrslu starfshóps um
bætta heilbrigðisþjónustu og heil-
brigði ungs fólks. Áætla má út frá
rannsóknum að 12-15% ungmenna
glími við vægan geðrænan vanda
og að 2-5% eigi við alvarlegar hegð-
unar- eða geðraskanir að stríða.
Niðurstöður nýlegrar könnunar á
vegum Lýðheilsustöðvar á líðan ís-
lenskra ungmenna eru í samræmi
við þessar tölur. Í Heilbrigðisáætl-
un til ársins 2010, og vísað er í í
skýrslu starfshópsins, er sett fram
það markmið að geðheilbrigðis-
þjónustan nái til um 2% barna árið
2010, sem virðist í samanburði við
áðurnefndar tíðnitölur heldur lágt
hlutfall.
Þar kemur einnig fram að
algengi örorku vegna geðraskana
hefur farið vaxandi hér á landi og
notkun geðlyfja aukist. „Ljóst má
vera að sporna þarf við þessari
þróun og talið árangursríkast að
auka áherslu á forvarnir, snemm-
tæka íhlutun, fjölbreytt gagnreynd
meðferðarúrræði og aukna eftir-
fylgd,“ segir í skýrslunni.
Skýrslan er afrakstur starfshóps
sem skipaður var árið 2010 sem
leita átti leiða til að bæta heilbrigð-
isþjónustu og heilbrigði ungs fólks.
Í henni kemur meðal annars fram
að ungt fólk nýtir sér síður þjón-
ustu heilsugæslunnar en þeir sem
eldri eru. Í nágrannalöndunum
hefur í vaxandi mæli verið komið á
fót sérstakri unglingamóttöku og
annarri heilbrigðisþjónustu fyrir
ungt fólk og var í maí samþykkt
þingsályktunartillaga á Alþingi þar
sem lögð var til stofnun starfshóps
sem meðal annars myndi vinna að
stofnun sérstakrar unglingamót-
töku í samræmi við tillögur starfs-
hópsins frá 2010.
Nauðsynlegt að byggja upp
sértæka geðþjónustu
Sigrún telur nauðsynlegt að byggja
upp sértæka geðþjónustu fyrir
aldurshópinn 16-25 ára. „Eftir
hrunið er þessi aldurshópur kom-
inn í breytta og viðkvæma aðstöðu.
Atvinnuleysi og erfiður fjárhagur
hefur þau áhrif að margir geta
ekki flutt úr foreldrahúsum, en
skertir möguleikar og skortur á
stuðningi gerir leiðina inn í full-
orðinsárin torsótta. Jafnframt er
brottfallið úr framhaldsskóla hér
á landi það hæsta sem þekkist.
Þessar staðreyndir kalla á brýna
þörf til að skilgreina þarfir og
líðan þessa aldurshóps á nýjan hátt
og mæta þörfunum með nýjum,
markvissum og virkum leiðum,“
segir hún.
Til samanburðar bendir Sigrún
á kreppuna í Finnlandi á tíunda
áratugnum. „Þá var ekki hugað að
utanumhaldi fyrir þennan aldurs-
hóp með þeim afleiðingum að stórt
hlutfall ungs fólks í Finnlandi varð
útundan. Þau náðu sér aldrei á
strik heldur festust á örorkubótum
og félagsaðstoð, „glataða kyn-
slóðin“ eins og sagt er i Finnlandi,“
bendir Sigrún á.
Erlendar rannsóknir á ungu
fólki hafa sýnt fram á að í nútíma
samfélagi hefur þörf þessa aldurs-
hóps fyrir markvissan stuðning
frá fullorðnum farið hratt vaxandi,
að sögn Sigrúnar. Ástæðurnar eru
meðal annars breyttir samfélags-
þættir og samskiptamynstur, aukn-
ar kröfur og samkeppni í menntun
og á atvinnumarkaði með miklum
fjölda valkosta sem getur orkað
tvímælis og valdið kvíða. „Niður-
staðan er sú að þrátt fyrir fjölda
augljósra kosta við að vera ungur í
dag er ungt fólk á ýmsan hátt ber-
skjaldaðra og meira áttavillt en
fyrri kynslóðir og þarfnast oftar
stuðnings frá fullorðnum til að
komast i gegnum þroskaátök sem
fylgja þessu aldursskeiði,“ segir
Sigrún.
Svíar brugðust við
Fyrir hálfum öðrum áratug brugð-
ust sænsk heilbrigðisyfirvöld við
kalli um bráðaúrlausn í geðheil-
brigðismálum ungs fullorðins
fólks, að sögn Sigrúnar. „Slæm
geðheilsa og sálrænir erfiðleikar
þessa hóps hafði aukist hratt og
var orðið áberandi heilbrigðis-
vandamál. Bráðamóttökur fylltust
af ungu fólki með kvíða og þung-
lyndi og lyfjanotkun og örorkubæt-
ur fóru hratt vaxandi. Heilsugæsla
og geðlæknar stóðu ráðþrota og
augljóst var að það vantaði viðun-
andi úrræði fyrir aldurshópinn 18
ára og eldri,“ segir Sigrún. Átak
var gert til að leysa vandann og
komið var á fót sérstökum viðtals-
miðstöðvum fyrir þenna aldurshóp
með starfsfólki sem hafði fagþekk-
ingu og reynslu af þessu þroska-
skeiði, líkt og Sigrún hefur bent á
að skorti hér á landi.
Sigrún segir brýnt að falla ekki
í þá gryfju að einfalda brottfall úr
skóla með einhliða útskýringum
á að ytri aðstæðum sé um að
kenna, svo sem skólakerfi, náms-
efni og fleira. „Vissulega er mikil
þörf fyrir nýhugsun og breytingar
á þeim vettvangi en brottfall úr
skóla er oft á tíðum í hæsta máta
birtingarmynd innri sálrænna ferla
og hversu vel eða illa ungmenninu
tekst að leysa innri átök og erfið-
leika,“ segir hún.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Minnka má brottfall
með sálfræðistuðningi
Sérfræðingur í sálfræðimeðferð ungs fólks segir að draga megi
úr brottfalli úr framhaldsskólum með því að auka sálrænan
stuðning við ungmenni. Mikil átök séu í sálarlífinu á þessum
aldri. Nauðsynlegt sé að byggja upp sértæka geðþjónustu fyrir
aldurshópinn 16-25 ára.
BROTTFALL
Fr amhaldsskól ar
Fimmti hlut i
Svíar brugðust við vaxandi vanlíðan ungmenna fyrir hálfum öðrum áratug og náðu
góðum árangri.
Sigrún Proppé telur nauðsynlegt að
byggja upp sértæka geðþjónustu fyrir
aldurshópinn 16-25 ára. ljósmynd/hari
16 úttekt Helgin 23.-25. nóvember 2012