Fréttatíminn - 23.11.2012, Page 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Í
Í þingsályktunartillögu um bætt skattskil
sem nú liggur fyrir Alþingi er velta svartrar
atvinnustarfsemi metin á 98 milljarða króna
á ári, eða um 6 prósent af landsframleiðslu.
Þetta eru gríðarlega háar tölur og mikið
áhyggjuefni. Ný könnun Samtaka atvinnu-
lífsins meðal aðildarfyrirtækja samtakanna
leiðir í ljós að 82 prósent stjórnenda telja að
svört vinna sé vaxandi vandamál. Þetta fer
saman við það sem fram hefur
komið hjá Samtökum iðnaðar-
ins um tekjutap hins opinbera
vegna skattsvika. Það jafn-
gildir því að fyrir upphæðina
væri hægt að leggja þjóðveg
kringum landið, fjármagna
rekstur Háskóla Íslands í
þrjú ár eða reka alla almenna
heilsugæslu í tvö ár.
Augljóst er að fyrirtæki sem
fara eftir reglum og borga sína
skatta og gjöld standa höllum
fæti í samkeppni við fyrirtæki í neðanjarðar-
hagkerfinu. Það er því mikið hagsmunamál
að allir fari eftir settum reglum. Ólíðandi er
að hópur fyrirtækja og einyrkja sniðgangi
skattareglur og leggi lítið sem ekkert af
mörkum til samfélagsins.
Samtökin nefna dæmi þess að í vett-
vangsheimsóknum hafi starfsfólk tekið til
fótanna, þjónar hafi ekki kunnað að slá inn
pantanir í bókhaldskerfi og á einum veit-
ingastað hafi enginn sex starfsmanna verið
á launaskrá. Starfsmenn á vegum atvinnu-
lífsins, skattayfirvalda og verkalýðshreyf-
ingarinnar hafa farið í vinnustaðaheimsókn-
ir til að kanna stöðu mála, en þessir aðilar
standa saman gegn svartri vinnu. Fyrstu
niðurstöðurnar voru birtar fyrir réttu ári.
Þá kom í ljós að 12 prósent starfsmanna í
yfir tvö þúsund fyrirtækjum sem heimsótt
voru reyndust í svartri vinnu. Þegar staðan
var könnuð í vor komu fram vísbendingar
um heldur minna umfang svartrar vinnu.
Það versnaði aftur í sumar þegar fram kom
að svarta hagkerfið var í mikilli uppsveiflu,
samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra.
Ástandið reyndist, ef marka má vísbend-
ingar, einna verst í hótel- og veitingaþjón-
ustu og í bygginga- og mannvirkjagerð.
Allra verst var það þó hjá þeim sem stunda
akstur í ferðaþjónustu en þar var hlutfall
svartrar atvinnustarfsemi rúm 27 prósent
hjá einyrkjum og litlum fyrirtækjum. Stærri
fyrirtæki voru almennt með skattskil í lagi.
Dæmi voru um að þeir sem voru í svartri
vinnu væru samtímis á atvinnuleysisbótum.
Samfélagssvik af þessu tagi eru óþolandi
en gangur kerfisins er þunglamalegur. Því
benda Samtök atvinnulífsins á að mikil-
vægt sé að þróa viðeigandi og hraðvirk
úrræði gagnvart þeim sem augljóslega eru
ekki með sín mál í lagi. Halda þarf úti virku
eftirliti á vettvangi í stað þess að rann-
saka eingöngu bókhaldsgögn og stefna
aðilum fyrir dóm. Ef árangur á að nást þarf
lagabreytingar svo unnt sé að innleiða virk
og einföld eftirlitsúrræði til að taka á og
koma í veg fyrir brot á formreglum skatt-
skila. Stærri fyrirtæki sem fara í einu og
öllu eftir reglum standa augljóslega ekki
jafnfætis gagnvart svindlurum, hvort heldur
eru einyrkjar eða smærri fyrirtæki. Samtök
ferðaþjónustunnar bentu á að í febrúar í
fyrra hefði gistirými án starfsleyfa í Reykja-
vík jafnast á við tvö 300 herbergja hótel.
Augljóst er að samfélagið verður af miklum
fjármunum vegna þessa.
Einstaklingar verða að gera sér grein
fyrir því að afleiðingar svartrar vinnu eru
lakari kjör og töpuð réttindi á vinnumark-
aði. Launþegi sem þiggur svarta vinnu er
réttlaus gagnvart vinnuveitanda. Lendi
hann í slysi er hann ekki slysatryggður.
Verði hann veikur fær hann ekki greidd
laun þá daga sem hann getur ekki mætt
til vinnu. Þegar orlofsgreiðslur eru engar
fær starfsmaðurinn ekki laun í sumarfríi.
Hann fær ekki framlag vinnuveitanda greitt
í lífeyrissjóð og ólíklegt er að hann greiði í
lífeyrissjóð yfirleitt. Eftirlaun minnka sem
því nemur.
Ekkert réttlætir svikin. Þau ber að upp-
ræta.
Svört atvinnustarfsemi
Ólíðandi samfélagssvik
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Tossabekkurinn
Ég hef fylgst með, einkanlega þeim
sem sitja hér á aftasta bekk í dag, taka
sérstaklega fyrir einn þingmann úr
röðum Framsóknarflokksins. Mér hefur
þótt það sem ég hef heyrt og ég hef
séð ljótt.
Birnu Lárusdóttur, varaþingmanni Sjálf-
stæðisflokksins, blöskruðu „skrílslæti“
þingmanna sem sýndu að hennar mati
Vigdísi Hauksdóttur eineltistilburði.
Vont er þeirra réttlæti
Mér dauðbrá og þetta er alveg
hundfúlt.
Ester Ólafsdóttir, móðir Arons Kristjáns
Karlssonar sem var dæmdur í héraði
fyrir bankablekkingar, var ekki sátt við
dóminn. Á vefsíðu sinni hefur Eiríkur
Jónsson eftir henni að hún trúi því ekki
að sonur sinn eigi eftir að fara í fangelsi.
Skammastu þín!
Bjarni, svona talar maður ekki!
Mörður Árnason, þingmaður Samfylking-
arinnar, skammaði Bjarna Benediktsson,
formann Sjálfstæðis-
flokksins, úr ræðustóli
Alþingis en Bjarni
hafði áður sagt að
Ísraelar yrðu að gæta
meðalhófs í árásum
sínum á Palestínu.
Þetta eru asnar, Hvati
Slíkt væri líkt og reyna að skvetta vatni
á gæs. Gersamlega tilgangslaust.
Sighvatur Björgvinsson stendur í miklum
vígaferlum í kringum greinar sínar um
„sjálfhverfu kynslóðina“. Hann kallar
þá sem tjá sig í athugasemdakerfum net-
miðla bloggara og þeim er, að hans mati,
vonlaust að reyna að svara.
Hvað er fyrirmynd?
Já, ég er fín fyrirmynd. Eða ég vona
það. Hvað er fyrirmynd?
Egill Einarsson, einnig þekktur sem
Gillzenegger, fór yfir það sem hann kallar
erfiðasta ár lífs sins í viðtali við Monitor
sem þegar er orðið mjög umdeilt.
Fjölmiðladrama
Þetta er einungis nýjasti
þátturinn í leikriti Gunn-
ars Andersen og Inga
Freys á DV og ég efast
ekki um að þeir verða
örugglega fleiri.
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingis-
maður, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið ekki hafa neinar áhyggjur af því
að Gunnar Andersen hefði kært hann til
sérstaks saksóknara. Enda víst allt í plati.
Möðkuð jólamysa
Ég vona að þessir ormar skili perunum
því þetta er auka kostnaður fyrir
bæjarbúa.
Guðrún Björgvinsdóttir, yfirverkstjóri
garðyrkjumála hjá Akureyrarbæ, er
afar óánægð með einhverja Trölla fyrir
norðan sem hafa stolið fjölmörgum jóla-
ljósaperum úr skreytingum bæjarins.
Perurnar eru fokdýrar þannig að
stuldurinn slær ekki aðeins á jólastemn-
inguna heldur veldur hann bæjarsjóði
einnig búsifjum.
Vikan sem Var
„Þetta er plata sem við erum
rosalega stolt af og ánægð
með. Og ég er stolt að hún
sé komin út,“ segir Sigríður
Thorlacius, söngkona í hljóm-
sveitinni Hjaltalín.
Mörgum kom á óvart í
vikunni þegar tilkynnt var að
þriðja plata Hjaltalín, Enter
4, væri komin út á netinu og
kæmi í verslanir í næstu viku.
Hjaltalín hefur verið með
vinsælli hljómsveitum lands-
ins síðustu ár en lítið hafði
heyrst til hennar undanfarið
og ekkert hafði lekið út um
að plata kæmi út fyrir jólin.
„Við vorum orðin sein fyrir til
að fara í hefðbundna kynn-
ingu, að senda frá okkur lag
og svona, svo við ákváðum
að prófa að gera þetta í
kyrrþey. Það verður gaman
að sjá hvað fólki finnst um
plötuna,“ segir Sigríður.
MaðuR vikunnaR
Laumaði plötu í jólaplötuflóðið
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
hátíðar-
útgáfa
af sígildri bók
Jólin koma kom fyrst út árið 1932
og hefur æ síðan verið ómissandi við
undirbúning jólanna.
Ljóð Jóhannesar úr Kötlum hafa kynnt íslenska
þjóðtrú og jólasiði fyrir hverri kynslóðinni á fætur
annarri. Fyrir þessa útgáfu voru teikningar Tryggva
Magnússonar myndaðar að nýju og hafa aldrei
birst lesendum skýrar en nú.
80 ára
gersemi
– nú
innbundin
Oddný vann
með afgerandi hætti
Oddný Harðardóttir, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, hafði Björgvin
G. Sigurðsson í baráttu
um fyrsta sætið á lista
Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi síðastliðinn
laugardag. Björgvin,
sem var viðskipta-
ráðherra í ríkisstjórn
Geirs Haarde, leiddi
lista flokksins í
síðustu kosningum.
Þremur ákæruliðum
vísað frá
Þremur ákæruliðum á hendur Magnúsi
Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings í Lúxemborg, í Al
Thani-málinu svokallaða var
vísað frá í Héraðsdómi Reykja-
víkur sökum þess að ákæran
á hendur honum var ekki
nægjanlega skýr, að mati
dómara. Úrskurðurinn
hefur verið kærður
til Hæstaréttar.
Góð vika
fyrir Magnús Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg
SlæM vika
fyrir Björgvin G. Sigurðsson
alþingismann
18 viðhorf Helgin 23.-25. nóvember 2012