Fréttatíminn - 23.11.2012, Side 22
80
ár eru liðin síðan
Jólin koma eftir
Jóhannes úr Kötlum
kom fyrst út. Bókin
kemur nú út í vand-
aðri hátíðarútgáfu
af þessu tilefni.
58
félagsmiðstöðvar
eru skráðar til leiks
í Stíl, hönnunar-
samkeppni SAMFÉS,
sem fer fram á
morgun, laugardag,
í Hörpu milli
klukkan 13-17. Þetta
er í tólfta sinn sem
keppnin er haldin.
1.600
krónum meira
kostar að kaupa
sér mánaðarkort
í Strætó frá
mánaðamótum.
Þriggja mánaða
kort hækkar um
3.500 krónur og níu
mánaða kort um
7.400 krónur.
Hvernig heldur maður rútínu ef maður er meistari í skipulagsleysi?
Maður getur ekki verið góður í öllu
Þ að er enginn leikur að ala upp börn. Maður gerir nán-ast ekkert annað á meðan.
Um leið og ég fer að slaka aðeins
á í uppeldinu á yngstu börnunum
mínum tveimur (fjögurra og sex
ára) fer allt úr böndunum.
Þannig hefur það verið hjá okk-
ur hjónum síðastliðnar vikur. Ég
hef dálítið dregið mig í hlé undan-
farnar tvær vikur – verið
eitthvað svo orkulaus – og
hreinlega varla lagt í að
koma þeim í háttinn. Þess
ber að geta að þau eru
mjög skaprík og sjálfstæð
og hrikalega fljót að ganga
á lagið sýni maður einhver
merki um veikleika. Pabb-
inn hefur því mestmegnis
séð um að koma þeim í
rúmið en það er alls ekki
eins manns verk á þessu
heimili og fyrir vikið hef-
ur háttatíminn færst aftur
um klukkustund. Um
helgar hafa kósíkvöldin
dregist fram á rauða nótt (bókstaf-
lega) og sex ára dóttirin að skríða
í rúm um leið og foreldrarnir.
Þetta endar náttúrulega bara
á einn veg: örþreytt börn með
ofvirknilík einkenni af svefnleysi
sem hlýða ekki nokkrum sköpuð-
um hlut og úrvinda foreldrar sem
eru farnir að snúast í kringum
sjálfa sig eins og skopparakringlur
því þeir hafa áttað sig á að þeir eru
búnir að missa stjórnartaumana
yfir til barnanna. Og í þessum að-
stæðum verð ég leiðinleg – og það
vil ég ekki vera.
Í örvæntingu á sunnudags-
kvöldið síðasta gerði ég það sem
ég geri alltaf þegar ég er ráðalaus
varðandi barnauppeldi: hringdi í
mömmu. Ekki aðeins hefur hún
alið upp þrjú börn (þar af eitt
mjög krefjandi – mig) heldur er
hún með tvöfalda uppeldisfræði-
menntun, er bæði leikskólakenn-
ari og kennari. Og er alltaf með
ráð undir rifi hverju þegar kemur
að börnum.
Í stuttu máli sagði hún orðrétt:
„Sigga mín, þið eruð yndislegir
foreldrar bæði tvö, EN þið eigið
dálítið erfitt með skipulag.“ (Orð-
inu „dálítið“ var reyndar ofaukið
í þessari setningu en mamma
var sennilega að reyna að vera
kurteis.)
„Ég veit,“ svaraði ég. „Það er
alveg satt hjá þér. Ég þurfti bara
að fá að heyra það.“
Ég greip til ráðs sem ég fékk eitt
sinn frá uppáhaldsgeðlækninum
mínum: að stilla símann þannig að
hann hringir á ákveðnum tímum –
baðtíma, háttatíma, skólatíma.
Og svo kallaði ég á manninn og
börnin og við héldum fund (ég hélt
fund): „Amma segir að við verðum
að vera duglegri að hafa reglur á
þessu heimili. Nú ætlum við að
hjálpast að við að fara fyrr í hátt-
inn svo okkur líði öllum betur og
ég er búin að finna mjög skemmti-
lega leið til þess.“ Ég útskýrði
fyrir þeim að núna myndi síminn
hringja þegar þau ættu að fara í
bað og hann hringdi aftur þegar
þau ættu að fara upp úr baðinu
og svo þegar kvöldlesturinn væri
búinn og þau þyrftu að fara að
sofa (þá myndi ég samt fyrst klára
kaflann).
Að síðustu hringir síminn svo
þegar við eigum að fara út í bíl á
morgnana svo við verðum ekki of
sein í skólann eða vinnuna. Þau
fengu að velja hringitóna – sem
þeim fannst ótrúlega skemmtilegt
– og síðan hefur þetta bara verið
mjög spennandi verkefni sem við
tökum öll þátt í.
Ég veit alveg að síminn er fyrst
og fremst fyrir mig. Hann hjálpar
mér að halda í þá rútínu sem nauð-
synleg er í barnauppeldi og ég er
bara svo léleg í. Því maður getur
ekki verið góður í öllu.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Amma segir að við verðum að vera duglegri að hafa reglur á
þessu heimili.
Segir sig úr stjórn Félags
eldri borgara
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur sagt sig
úr stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni. Í tilkynningu segir að Vil-
hjálmur segi sig úr stjórninni þar sem
seta hans þar gæti skaðað hagsmuni
félagsins og trúverðugleika.
Rjúpnaveiðidögum ekki
fjölgað
Umhverfisráðuneytið hyggst ekki breyta
rjúpnaveiðitímabilinu þó illa hafi viðrað
til veiða marga þá daga sem veiðar hafa
verið leyfðar. Rjúpnaveiðimenn óskuðu
eftir fjölgun veiðidaga.
Ostrurækt í Skjálfandaflóa
Fyrirtækið Víkurskel á Húsavík ætlar að
hefja tilraunarækt á ostrum í Skjálfanda-
flóa næsta vor. Fluttar verða til landsins
smáostrur frá Spáni og ræktaðar áfram í
neyslustærð.
Óskorað traust til slökkvi-
liðs- og sjúkraflutninga-
manna
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn njóta
nánast óskoraðs trausts landsmanna. Í
nýrri rannsókn Capacent Gallup kemur
fram að um 97% svarenda segist bera
mikið traust til stéttarinnar.
106 milljónir fyrir hrein-
dýraveiðileyfi
Skotveiðimenn greiddu rúmar 106
milljónir króna fyrir hreindýraveiðileyfi
á vertíðinni í ár. Það er tæpum 17 millj-
ónum króna meira en í fyrra.
Tannlækningar barna
niðurgreiddar að fullu
Ríkisstjórnin samþykkti að freista þess að
tannlækningar barna verði niðurgreiddar
að fullu. Þar sem ekki eru í gildi samn-
ingar um gjaldskrá milli Sjúkratrygginga
Íslands og tannlækna hefur niðurgreiðsla
á tannlækningum barna numið að meðal-
tali um 60% af raunkostnaði.
Fær 8 milljónir í biðlaun
Gunnsteinn R. Ómarsson, fyrrverandi
sveitarstjóri Rangárþings ytra, fær rúmar
átta milljónir í biðlaun. Gunnsteini var
sagt upp störfum þegar nýr meirihluti
var myndaður. Drífa Hjartardóttir, fyrr-
verandi þingmaður, hefur verið ráðin
sveitarstjóri.
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Velkomin í næsta útibú eða hringdu í okkur í síma 410 4000.
10,4%
Sparibréf löng er ríkisskuldabréfasjóður
sem fjárfestir í löngum skuldabréfum, verð-
tryggðum sem óverðtryggðum, með ábyrgð
íslenska ríkisins.
Afburða
ávöxtun
Fyrirvari: Sparibréf löng er verðbréfasjóður samkvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur eftirliti Fjármálaeftir-
litsins. Landsbréf hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt fjár-
festingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki endilega vís-
bendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á
landsbankinn.is eða á landsbref.is. *Ávöxtun miðað við 31.10.2012.
Fjárfestingaflokkar
Sparibréf löng - 1 árs nafnávöxtun*
RÍ
K
IS
TR
YG
GÐ
SKULDA
B
R
ÉF
Ríkisskuldabréf Innlán / Reiðufé90-100% 0-10%
VikAn í tölum
26
sinnum sögðu Benedikt Valsson og Björn Jörundur
Friðbjörnsson „Nova“ þegar sá síðarnefndi var
gestur í Hraðfréttum á RÚV. Þingmaður VG vildi
meina að um óbeina auglýsingu hefði verið að ræða.
170
ljósastaurar voru bilaðir í mið-
borginni um síðustu helgi. Unnið var
að viðgerðum í vikunni.
25
ár eru síðan Internet á Íslandi
fékk úthlutað höfuðléninu .is.
22 fréttir Helgin 23.-25. nóvember 2012 vikunnar