Fréttatíminn - 23.11.2012, Page 24
11-18
MÁN.-MIÐ.
FÖS. 11-19
LAU. 11-18
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
55
36
7
Vínbúðinni á Akureyri var nýverið
breytt til hins betra. Við erum stolt af
meira vöruúrvali en tegundum okkar
hefur fjölgað um þriðjung.
Við bjóðum ykkur innilega velkomin í
glæsilega verslun.
vinbudin.is
Breytt og bætt
Vínbúð á Akureyri
É g á mér draum,“ sagði Martin Luther King Jr. þegar hann mælti gegn kynþátta-
hatri í Bandaríkjunum fyrir tæpum
50 árum. Nú, árið 2012, á ég mér
draum. Sá draumur snýst um að
Íslendingar verði aftur stoltir af
landi sínu og þjóð. Að Íslendingar
vakni til vitundar um eigin getu,
þor og styrk. Við erum einstök á
svo margan hátt, ekki bara af því
að við erum landfræðilega afskekkt
og fámenn þjóð, heldur af því að við
höfum íslenskan hugsunarhátt og
séríslenska sjálfsbjargarviðleitni.
Ég hef haft áhyggjur af því í
kjölfar kreppu að þetta stolt sé á
undanhaldi. Ef stoltið hverfur fjarar
um leið undan frumkvæði og sjálfs-
bjargarviðleitni. Nú eru fjögur ár liðin frá
hruni og ég finn mun á þjóðarstoltinu og ekki
síst þjóðarhugsuninni. Við erum ofurupp-
tekin af því að bíða eftir því að betur ári og
að einhver komi með lausnir á öllum okkar
vandamálum. Við erum í því að finna blóra-
böggla og snaga til að hengja byrðir okkar á.
Þetta er ekki líkt okkur og þetta er ekki sú
braut sem við viljum feta.
Við eigum þess í stað að sameinast um
að leiða nýja sókn íslensku þjóðarinnar til
framfara á öllum sviðum þjóðfélagsins. Við
eigum að vinna öllum árum að því að auka
verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu
svo allir hafi atvinnu og geti lagt eitthvað
af mörkum til samfélagsins. Við eigum að
verðlauna frumkvæði og þor en
aðstoða jafnframt okkar minnstu
bræður sem ekki hafa til þess
andlega eða líkamlega heilsu að
taka þátt í uppbyggingunni.
Afkoma heimilanna og starf-
semi hins opinbera hvílir á verð-
mætasköpun atvinnulífsins. Það
er ekki hægt að skera endalaust
niður þegar búið er að skera inn
að beini og skattheimta er heldur
ekki lausn á öllum okkar vanda.
Skattahækkanir og niðurskurður
virka letjandi á allt frumkvæði,
sem er eitt af aðalsmerkjum þess-
arar litlu þjóðar. Atvinnuleysi og
biðstaða breytist að sama skapi
hratt í kjarkleysi og dugleysi.
Það verða allir að hafa hlutverk í
þessu samfélagi til að finnast þeir tilheyra og
gera gagn. Það er enginn stoltur af því að lifa
á bótum og allra síst ef hann hefur getu til að
taka þátt.
Blásum lífi í gömlu góðu gildin okkar, það
er alls ekki of seint. Fjögur ár er ekki langur
tími í sögu þjóðar og við verðum að standa
vörð um það sem hefur gert þessa þjóð svona
einstaka fram til þessa. Forðumst allt sem
heitir miðstýring og forræðishyggja og ýtum
undir þjóðarstolt, kjark og dug. Setjum okkur
það markmið að hjálpast öll að við að endur-
reisa íslenskt samfélag með þeim hætti að við
getum öll verið stolt af landi okkar og þjóð.
Það sér hver maður að þetta er sameiginlegt
hagsmunamál okkar allra.
Þjóðarstolt
Ég á mér draum
Ingibjörg Óðinsdóttir
Höfundur býður sig fram
í 4.-5. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sem fram fer
24. nóvember.
Á dögunum kom út bók með niðurstöðum
rannsóknar dr. Gerðar
G. Óskarsdóttur um
það hvað gerist á
mörkum skólastiga.
Niðurstöðurnar eru
stórmerkilegar. Ég er
þess sannfærð að þær
verða okkur mikilvæg
leiðsögn í stöðugri
viðleitni okkar til þess
að þróa skólastarf á Íslandi í átt til
þess besta sem gerist. Þær munu
leiða til þess að við horfum í enn
ríkari mæli á nám, þekkingarleit,
þroska og velferð barna sem
eina órofa heild – og þar með ýtir
hún undir enn frekari samvinnu
og samstöðu um nám íslenskra
barna og unglinga.
Hvað gerist á mörkum
skólastiga?
Samfella virðist vera mikil á milli
skólastiga. Sú staðreynd vekur
upp áleitnar spurningar um ytra
skipulag náms; skólaskyldumörk-
in, heildarlengd námstímans frá
upphafi leikskólagöngu til loka-
prófs, löggjöf og stjórnskipan
menntamála.
Niðurstöðurnar kalla á hispurs-
lausar umræður um starfshætti
og tengsl skólastiganna þriggja.
Þær kalla á margvísleg þróunar-
verkefni, breytingar og ígrundun
sem og samtal kennara. Þær örva
umræður um sjálfstæði nem-
enda, inntak náms og ólíka hug-
myndafræði kennara. Þær leiða
í ljós að við gerum margt vel en
draga líka fram vannýtt tækifæri.
Rannsókn sem
byggir á íslensk-
um veruleika
Skólaþróun og fag-
mennsku í skóla-
starfi verður að
byggja á rannsókn-
um á íslenskum að-
stæðum og íslensk-
um veruleika. Við á
skóla- og frístunda-
sviði Reykjavíkur-
borgar hlökkum
til að gera gott skólastarf
betra með hliðsjón af niður-
stöðum rannsóknarinnar. Við
lýsum einnig yfir vilja okkar
til samræðu og samstarfs við
alla hlutaðeigandi um umbóta-
verkefni þau sem lagt er til að
fara í. Við brýnum sérstaklega
mennta- og menningarmála-
ráðuneytið og Alþingi til að
skoða vel hvaða tækifæri felast
í niðurstöðunum til að koma ís-
lensku skólakerfi í fremstu röð.
Virðing fyrir þekkingu
barna og unglinga
Börn og unglingar eiga að
njóta allra bestu námslegu og
félagslegu tækifæra sem til
eru. Við getum og eigum að
þróa skólastarf á þann máta
að virðing sé borin fyrir sjálf-
stæði nemenda og þeirri þekk-
ingu, kunnáttu og leikni sem
nemendur taka með sér frá
einu skólastigi til þess næsta.
Þeirra þekkingarleit, þroski
og velferð skiptir höfuðmáli.
Okkar er að breyta, bæta og
þróa til að því markmiði sé
náð.
Rannsóknir dr. Gerðar G. Óskarsdóttur
Niðurstöður sem
boða breytingar
Oddný Sturludóttir
Borgarfulltrúi og
formaður skóla- og
frístundaráðs
N ú eru um 27.000 einstaklingar á vanskilaskrá og fer
fjölgandi. Tugir þúsunda
til viðbótar hafa glatað öllu
eigin fé í eignum sínum og
sjá fram á erfiðar afborg-
anir lána í framtíðinni.
Til að bæta hag heimil-
anna svo um munar er
nauðsynlegt að taka til
hendinni. Löngu tímabært
er að opna á innflutning
landbúnaðarafurða og
minnka styrki til landbún-
aðar. Þetta gæti lækkað
útgjöld meðalfjölskyldu
á bilinu 50 til 100 þúsund
krónur á mánuði. Það gerist
þannig að matvælaverð
lækkar og fjölbreyttari mat-
væli verða á boðstólum, skattar lækka
og vísitölutryggð lán lækka þegar
verðlag matvæla lækkar.
Ef við horfumst í augu við ástandið
og markaðsvæðum landbúnaðinn
verður fátt því til fyrirstöðu að gera
góðan samning við ESB og flýta upp-
töku evrunnar. Verðtrygging verður
þá óþörf og vextir lækka. Það verður
stöðugleiki. Þetta er besta kjarabót
sem hægt er að koma við á næstu
árum, en þetta tekur tíma. Að sjálf-
sögðu eru skuldaleiðréttingar vegna
forsendubrests vegna hrunsins í skoð-
un, en það er einskiptis aðgerð.
Undanfarin 30 ár höfum við dregist
aftur úr Norðurlandaþjóðunum og
Bretlandi um 0,4% á ári að jafnaði hvað
varðar þjóðarframleiðslu. Þjóðar-
framleiðslan segir til um
hvað er til skiptanna milli
heimilanna í landinu. Á
næstu áratugum verður
hún að aukast hraðar en
verið hefur svo að lífskjör
okkar verði ekki síðri en
nágrannaþjóðanna. Þær
munu einnig auka sína
framleiðslu þannig að það
þarf ekki bara einhverja
aukningu, það þarf góða
aukningu svo fólk tolli hér.
Sjávarútvegur og
orkufrekur iðnaður munu
líklega ekki vaxa mikið úr
þessu. Vöxturinn verður í
nýjum útflutningsatvinnu-
greinum. Eftir 20 ár þurfa
þær að standa undir 50%
þjóðarframleiðslunnar.
Ferðaþjónusta stendur nú þegar undir
20%. Hátækniiðnaður eins og Marel,
Össur og Actavis, skapandi starfsemi
svo sem hjá tölvuleikjaframleiðand-
anum CCP og kvikmyndaiðnaður geta
vaxið en til þess þarf að búa þeim
betri efnahagsumgjörð svo þær byggi
hér upp og fleiri slík fyrirtæki komi.
Góðu fréttirnar eru þær að það er
hægt að bæta umgjörðina. Til þess
þurfum við traustan gjaldgengan
gjaldmiðil, það er evruna og þann
stöðugleika og hóflegt vaxtastig
sem henni fylgir. Hagstætt verðlag á
nauðsynjum kemur öllum til góða og
aðgangur að vel menntuðu starfsfólki
skiptir miklu fyrir ýmsar atvinnu-
greinar. Drögum því ekki ESB um-
sóknina til baka.
Stöðugleiki og hóflegt vaxtastig fylgir upptöku evru
Bætum hag heimilanna
Guðjón Sigurbjartsson
viðskiptafræðingur
Höfundur óskar eftir
3. til 5. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík sem fram
fer laugardaginn 24.
nóvember.
Blásum lífi í gömlu góðu gildin okkar, það er alls ekki of seint.
24 viðhorf Helgin 23.-25. nóvember 2012