Fréttatíminn - 23.11.2012, Page 30
Flutt til Íslands í vændi
Fimmti þáttur Sannra íslenskra sakamála verður sýndur á Skjá einum á mánudagskvöld en þá
verður farið yfir mansalsmálið svokallaða sem hófst í október 2009 þegar ung kona frá Litháen
trylltist um borð í flugvél Iceland Express. Við eftirgrennslan kom í ljós að til stóð að flytja
konuna nauðuga til Íslands þar sem henni var ætlað að stunda vændi. Málinu lauk með fyrstu
fangelsisdómum sem kveðnir hafa verið upp á Íslandi fyrir mansal.
M ansalsmálið hófst þegar æði rann á nítján ára konu frá Litháen í flugvél
Iceland Express sem var á leið frá
Varsjá í Póllandi til Íslands. Konan
var sögð í annarlegu ástandi og talið
að hún væri undir áhrifum fíkniefna
þegar hún sló til fólks og lét öllum
illum látum um borð. Farþegar að-
stoðuðu áhöfnina við að yfirbuga
konuna og ekki þótti annað óhætt
en binda hana niður í sæti sitt svo
hún færi ekki sjálfri sér eða öðrum
að voða. Lögregla handtók konuna
við komuna til landsins en í fram-
haldinu voru þrír litháskir karl-
menn, búsettir á Íslandi, handteknir
þegar ljóst þótti að selja átti konuna
í vændi hér á landi. Málið vatt síðan
hratt upp á sig, Íslendingar bendluð-
ust við það og fleiri voru handteknir.
Þegar mest lét sátu níu manns
í gæsluvarðhaldi en þeir tengdust
meðal annars innbyrðis í gegnum
verktakafyrirtæki í eigu tveggja Ís-
lendinga, sem hnepptir voru í varð-
hald, þar sem Litháarnir störfuðu.
Rannsókn lögreglu teygði anga
sína víða og beindist að skipulagðri
glæpastarfsemi og ofbeldisbrotum.
Flókið mál
Farið var í sex húsleitir í tengslum
við handtökur Íslendinganna og
leitað var á heimilum, fyrirtækjum
og annars konar húsnæði. Lögregl-
an upplýsti að málið væri flókið og
í raun fyrsta mál sinnar tegundar
á Íslandi þar sem fórnarlamb man-
sals var tekið við landamæri lands-
ins. Þá torveldaði það rannsóknina
að helstu gerendur voru erlendir
ríkisborgarar sem gerði alla gagna-
öflun erfiðari.
„Þetta er umfangsmikil rann-
sókn. Menn hafa staðið sig frábær-
lega eins og þeirra er von og vísa.
Það er mikið undir en við erum alls
ekki komin að landi. Mansalsmál
eru mjög erfið í sönnun almennt
og það varðar ekki bara þetta mál,“
sagði Sigríður Björk Guðjónsdóttir,
lögreglustjóri á Suðurnesjum í sam-
tali við Víkurfréttir þegar línur voru
farnar að skýrast. „Þetta eru erfið
mál viðureignar því að í fæstum til-
vikum er fórnarlambið samstarfs-
fúst, því það er ákveðin ógn sem að
því steðjar og ýmsar aðrar ástæður
sem þar eru að baki.“
Ömurleg forsaga
Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að
atburðarásin sem leiddi til þess að
konan endaði í örvæntingu í flug-
vélinni var ofbeldisfull og ógeðsleg.
Konan hvarf frá fjölskyldu sinni í
september 2008 og var haldið fang-
inni í íbúð í borginni Panevezys
í Litháen. Þar var hún barin og
haldið í áfengis- og fíkniefnavímu.
Þarna var henni haldið í nokkra
mánuði og hún neydd til þess að
selja sig allt að fimm mönnum á
dag. Henni var hótað því að henni
yrði hent út um glugga íbúðarinnar
sem var á fimmtu hæð, yrði hún
ekki við kröfum kvalara sinna.
Konan var síðan flutt í annað
hús utan við borgina þar sem hún
og fleiri konur voru seldar í vændi.
Lögregla fann stúlkuna, allslausa
og yfirgefna, í húsinu eftir að
vegfarandi hafði heyrt neyðaróp
hennar. Þegar hún fékk frelsið
dvaldi hún hjá systur sinni í Vilníus
í nokkra mánuði en hvarf síðan
í mánuð. Síðan kom hún í fylgd
tveggja manna og sagðist annar
þeirra vera unnusti hennar og brúð-
kaup væri á næsta leiti. Daginn
eftir reyndu mennirnir tveir að fjar-
lægja konuna nauðuga af heimili
systurinnar sem þeir beittu ofbeldi
í atganginum. Henni tókst að hrópa
á hjálp og mennirnir létu sig þá
hverfa.
Skúrkarnir náðu konunni síðar
aftur á sitt vald og héldu áfram að
selja hana. Um þetta leyti kynntist
hún manni sem bauðst til þess að
senda hana til Íslands þar sem hún
gæti fengið vinnu. Maðurinn og
vinkona hans klipptu konuna, lit-
uðu hár hennar og útveguðu henni
vegabréf og flugmiða til Íslands.
Tímamótadómar
Konan og aðrar konur sem tengd-
ust málinu hér heima nutu lög-
regluverndar og þótt framburður
konunnar þætti reikull og rugl-
ingslegur þótti ljóst að hún væri
fórnarlamb mansals og flöktið í
frásögn hennar mætti rekja til
sálrænna áfalla sem þekkt eru hjá
fólki í þessum aðstæðum þar sem
ofbeldismenn brjóta fórnarlömb
sín niður og senda þau til landa þar
sem þau þekkja engan og treysta
glæpamönnum betur en lögreglu.
Framburður Litháanna fimm,
sem handteknir voru, þótti ótrú-
verðugur og hafið yfir allan vafa
að stúlkan hafi verið flutt til Ís-
lands með blekkingum til þess að
stunda vændi. Rannsókn á öllum
Íslendingunum sem handteknir
voru, fyrir utan einn, var hætt en sá
var sýknaður fyrir dómi. Stúlkan
sagðist fyrir dómi aldrei hafa séð
þann mann og málsgögn og fram-
burður vitna þótti ekki benda til
sektar hans.
Litháarnir fimm fengu hins
vegar dóma fyrir mansal og eru
þeir fyrstu sem dæmdir eru fyrir
mansal á Íslandi.
toti@frettatiminn.is
Þórarinn Þórarinsson
Níu manns sátu á tímabili í gæsluvarðhaldi vegna mansalsmálsins sem lauk með dómum yfir
fimm mönnum frá Litháen.
Konan hafði mátt þola ótrúlegt harðræði og grimmd í Litháen áður en hún var send til Íslands í þeim tilgangi að selja hana í
vændi. Sá skepnuskapur sem kvalarar hennar beittu er dæmigerður fyrir aðferðir mansalsdólga þegar þeir brjóta fórnarlömb
sín niður.
Rannsókn lög-
reglu leiddi í ljós
að atburðarásin
sem leiddi til þess
að konan endaði í
örvæntingu í flug-
vélinni var ofbeld-
isfull og ógeðsleg.
ALL BAJA MTZ RADIALS FEATURE
Laugavegi 25 - S: 553-3003
H ö n n u n a r
h ú s
gjöfin þín fæst
í Hrím!
www.hrim.is
Skoðið úrvalið og bloggið okkar
OPIÐ alla daga
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin
í janúar og febrúar ef næg þátttaka fæst:
Í málmiðngreinum, snyrtigreinum, bílgreinum og
hönnunar- og handverksgreinum.
Umsóknarfrestur er til 1.desember.
Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu
okkar um leið og þær liggja fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit af náms-
samningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfaraskírteini
með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að
nemi muni útskrifast í desember 2012.
Kostnaður próftaka s.s efniskostnaður
er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu
okkar, veffang: www.idan.is og á skrifstofunni.
IÐAN - fræðslusetur,
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík,
sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,
netfang: idan@idan.is
30 sakamál Helgin 23.-25. nóvember 2012