Fréttatíminn - 23.11.2012, Side 39
Afmælisrit skátanna 3
Skátasveitin Rauðskinnur er rótgróin
sveit í skátafélaginu Hraunbúum í
Hafnarfirði, en sveitin er rúmlega 45
ára gömul. Starf sveitarinnar hefur í
gegnum tíðina verið gríðarlega öflugt
og þessi langa saga hennar felur
vitaskuld í sér fjölmargar
sveitarhefðir sem margar hverjar eru
tengdar indíánum og þeirra siðum.
Meðal annars fara allir meðlimir
sveitarinnar í gegnum sérstaka
„Rauðskinnuvígslu.“ Vígslan er að
indíánasið, en að öðru leyti
háleynileg.
Í vetur starfa í Rauðskinnum 25
skátastúlkur á aldrinum 10-12 ára
sem fást við spennandi verkefni af
ýmsum toga. Í sumar tók sveitin þátt
í landsmóti skáta og var þar hluti af
því mörg þúsund manna tjaldbúðar-
samfélagi sem reis á Úlfljótsvatni og
stóð um tíu daga skeið. Brölt og
bleyta í svonefndu „vatnasafarí“,
víkingasmiðjur, siglingar,
gönguferðir og söngvar voru á meðal
þess sem gerði þessa daga
ógleymanlega fyrir Rauðskinnur og
alla aðra sem tóku þátt. Á hverjum
degi báru skátarnir sjálfir ábyrgð á
því að versla og elda hádegismatinn
og lærðu sumir af því dýrmæta lexíu
– til dæmis Rauðskinnuflokkurinn
sem fór offari í beikon-innkaupum
fyrsta daginn, en sýndi í framhaldinu
mikla útsjónarsemi til þess að feta sig
í átt að heilbrigðara mataræði.
Núna á haustmánuðum hafa
Rauðskinnur meðal annars spreytt
sig á ljósmyndamaraþoni og þæfingu,
kynnt sér lífríki fjörunnar í
Hafnarfirði og unnið verkefni um
frið. Einnig fór sveitin í útilegu í
skála sem heitir Hverahlíð og er
staðsettur á svæði þar sem
símasamband er af skornum
skammti. Úrhellisrigning ákvað að
taka þátt í gönguferð sveitarinnar en
skátahetjurnar létu það ekki stöðva
sig og héldu ótrauðar áfram. Þó er
ekki hægt að neita því að kamínan
góða í skálanum hafi verið vinsæl
þegar snúið var til baka og tóku
margar ákvörðun um að pakka fleiri
sokkapörum í næstu ferð.
Allt er breytingum háð og það á
líka við um skátastarf. Með tíma og
tækniframförum breytist eðli
verkefna og samskipta, en þó erum
við skátar svo lánsöm að vissir hlutir
breytast seint. Fyrir 45 árum fóru
Rauðskinnur líka í útilegu í skála
sem heitir Hverahlíð. Þar var eflaust
rigning og þar voru engir símar. Þar
voru vissulega ævintýri, spenna,
vinátta og skátar sem fengu að búa
að sinni Rauðskinnureynslu um
aldur og ævi.
Ævintýri og óformlegt
reynslunám
Skátahreyfingin hefur það að
markmiði sínu að þroska börn og
ungt fólk til að verða sjálfstæðir,
virkir og ábyrgir einstaklingar í
samfélaginu. Börn og ungmenni
sem taka þátt í skátastarfi upplifa
ævintýri ásamt vinum sínum í
skátaflokknum. Skátinn lærir að setja
sér raunhæf markmið og takast á við
persónulegar áskoranir. Þannig er
skátastarf vettvangur þar sem skátinn
þroskar með sér hæfileika á hinum
ýmsu sviðum, án þess að vera mjög
meðvitaður um það á meðan á því
stendur. Nám skátans fer því fram í
gengum leiki og samvinnu, ólíkt
hefðbundnu, formlegu námi, en er
um leið vel skipulagt, formað kerfi
með skýrum gildagrunni, sem hver
og einn á auðvelt með að tileinka sér
á sinn eigin hátt. Því má segja að
skátastarfið sé spennandi ævintýri
fyrir börn og ungmenni, starf sem
hefur skýr uppeldismarkmið sem
fullorðnir foringjar kunna góð skil á
hvernig best er að ná með
skátaaðferðinni.
Leiðtogi í eigin lífi
Skátastarf fer fram í smáum
einingum sem kallast skátaflokkar.
Flokkarnir byggjast upp á 5-8 manna
teymi skáta á svipuðum aldri, þar
sem hver skáti hefur sitt hlutverk og
tekur virkan þátt í skipulagningu og
ákvarðanatöku innan hópsins.
Skátaflokkarnir öðlast aukið
sjálfstæði eftir því sem skátarnir
eldast, en þó er mikil áhersla lögð á
virka þátttöku þeirra allt frá unga
aldri. Þegar ungmenni ljúka
hefðbundnu skátastarfi um 22 ára
aldur hafa þau fengið sérlega góð
verkfæri og reynslu af notkun þeirra
til að taka sjálf við sínu eigin uppeldi
og verða leiðtogar í eigin lífi.
Skátastarf stefnir að því að bæta
heiminn með því að styrkja
einstaklinginn og þjálfa hann til
sjálfsnáms. Það er sérstaða þess.
Afurð skátastarfs sjáum við í
mörgum atkvæðamiklum
einstaklingum víðs vegar í
þjóðfélaginu. Hjálparsveitarfólk
hefur oftar en ekki skátabakgrunn,
fólk í framvarðarsveit ýmissa
verkefna á sviði lýðræðis og
mannréttinda, leiðsögumenn í
ferðaþjónustu og svo mætti lengi
telja. Allt er þetta fólk sem gerir
samfélagi okkar oft og tíðum mikið
gagn sökum frumkvæðis og
ósérhlífni.
Lýðræði og mannréttindi
Með sérstökum lýðræðisleikjum hafa
skátarnir áhrif á verkefnaval flokksins
síns og skátasveitarinnar og læra
þannig um leið að þátttöku í
ákvarðanatöku stærri hóps fylgir
einnig ábyrgð. Af því að skátastarf er
frábær vettvangur fyrir
tilraunastarfsemi. Skátinn er sífellt að
öðlast reynslu af einhverju sem hann
hefur aldrei gert. Að auki vinna
skátaflokkar þannig að skátarnir fá
að spreyta sig á mismunandi
hlutverkum innan flokksins auk þess
að vera fulltrúar síns hóps í
lýðræðislegum ákvörðunum með
öðrum flokkum. Skátarnir læra að
færa rök fyrir hugmyndum sínum og
skoðunum í flokknum og innan
sveitarinnar sem flokkarnir mynda í
hverju félagi. Þeir læra það í gegnum
skemmtilega leiki og í hópi jafningja
þar sem enginn er öðrum æðri í
flokknum.
Stærsti vinahópur í heimi
Önnur sérstaða skátastarfs er tenging
þess við sterka alþjóðahreyfingu
skáta. Stígandi skátaaðferðarinnar
sem notuð er markvisst í
skátastarfinu gerir ráð fyrir því að
einstaklingurinn þrói með aldrinum
með sér tenginu út fyrir föðurland
sitt og hugsi um heiminn sem eina
heild, heim sem kemur okkur öllum
við. Á alþjóðavísu bjóðast, eftir því
sem skátarnir verða eldri, sífellt fleiri
tækifæri til að taka þátt í
skemmtilegum verkefnum með
skátum frá flestum löndum heims,
með stuðningi alheims-
hreyfingarinnar. Með því að vera
skáti má þannig segja að barnið verði
hluti af stærsta vinahópi í heimi, þar
sem hvar sem er í heiminum getur
það átt von á að hitta jafnaldra sem
hefur sama skátabakgrunn og sama
gildagrunn. Reynslan sýnir að
alþjóðlegt starf skátahreyfingarinnar
hefur alið af sér vináttu milli þjóða,
oft ævilanga. Slík vinátta er góður
grunnur að því að bæta heiminn dag
frá degi...
Bætum heiminn alla ævi, eitt sinn
skáti ávallt skáti!
Skátastarf
Indíánasiðir og ævintýri
Ævintýri og óformlegt reynslunám. skátahreyfingin hefur það að markmiði sínu að
þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar
í samfélaginu.
Stúlkurnar í fálkaskátasveitinni Rauðskinnum takast á við ýmis spennandi verkefni á
skátafundum, en hér má sjá nokkrar stúlkur úr sveitinni með þæfð listaverk úr
íslenskri ull.
á Íslandi eru um 200 starfandi skátasveitir á mismunandi
aldursbilum. hér segir Una Guðlaug Sveinsdóttir frá
starfi í fálkaskátasveitinni rauðskinnum, en fálkaskátar
eru á aldrinum 10 til 12 ára.
SKÁTASVEIT Í FÓKUS
Til hamingju með 100 ára afmælið!
Ul
la
rf
at
na
ðu
r í útivistina!
skemmtilegt ævintýri
með skýr uppeldismarkmið