Fréttatíminn - 23.11.2012, Page 44
8 Ævintýri í 100 ár
Djarfir drekar og róttækir rekkar
skátastarf fer fram á fimm megin aldursbilum, þar sem skátar á svipuðum aldri
starfa saman í skátasveitum og skátaflokkum. skátinn telst svo fullnuma við 22 ára
aldur og stundar þaðan í frá skátastarf með því að gegna ábyrgðarstöðum innan
skátahreyfingarinnar.
hér er yfirlit yfir öll aldursbilin og örstutt viðtal við skáta á þeim aldri.
skátarnir svara hér spurningunni „af hverju ert þú skáti?”
I C E L A N D I C B U S C O M P A N Y
www.sba.is
aldur: 7-9 ára
skátarnir: auðunn og kári
hartmannssynir
Af því að það er svo skemmtilegt.
Maður lærir fullt eins og að gera
hnúta og fleira.
aldur: 10-12 ára
skátinn: Anna Dögg
Arnarsdóttir
Þegar ég var yngri fór ég á
útilífsnámskeið. Svo var ég heima
og hafði ekkert að gera þannig
að mamma spurði mig hvort mig
langaði ekki að prufa skátana.
aldur: 13-15 ára
skátinn: Andrea Dagbjört
Pálsdóttir
Upphaflega var það nú bara af því
foreldrar mínir eru bæði skátar.
En núna tek ég hins vegar þátt í
skátastarfi af því mér finnst það
skemmtilegt, krefjandi og gefandi
allt á sama tíma.
aldur: 16-18 ára
skátinn: Maríanna Wathne
Kristjánsdóttir
Ég er í fyrsta lagi af því að þetta er
frábær félagskapur og í öðru lagi
því að við ferðumst og lærum svo
ótrúlega mikið af nýjum hlutum.
aldur: 19-22 ára
skátinn: Sigurgeir B. Þórisson
Af því að skátastarf er frábær
vettvangur fyrir tilraunastarfsemi.
Skátinn er sífellt að öðlast reynslu
af einhverju sem hann hefur
aldrei gert áður. Það skiptir ekki
máli hvort það er að taka þátt í
stefnumótun, smíða hús, gista
sex í þriggja manna tjaldi eða
skoppa niður fjallshlíð í tunnu.
Skátabúningurinn ætti því
heldur að vera hvítur sloppur og
öryggisgleraugu.
aldur: 23+ ára
skátinn: Svanbjörg Ólafsdóttir
Ég kynntist skátastarfinu í gegnum
börnin mín og eftir að ég fór með
þeim á landsmótið á Akureyri
sumarið 2002 þá varð ekki aftur
snúið. Félagsskapurinn, krafturinn
og gleðin eru einfaldlega
ávanabindandi!
Drekaskátar
Fálkaskátar Dróttskátar Rekkaskátar Róverskátar Fullorðinn skáti