Fréttatíminn - 23.11.2012, Qupperneq 51
Afmælisrit skátanna 15
J. Frank Michelsen úrsmíðameistari,
stofnandi Michelsen úrsmiða, á kontór
sínum á Sauðárkróki, ca. árið 1920.
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík - sími 511 1900 - www.michelsen.is
Úrsmiðir síðan 1909
Í fjórar kynslóðir hafa Michelsen úrsmiðir þjónustað Íslendinga af þeirri sérþekkingu
og hæfni sem reynslan hefur kennt þeim og gengið hefur áfram innan fjölskyldunnar,
mann fram af manni, kynslóð eftir kynslóð. Í tilefni 100 ára afmælis Michelsen
úrsmiða árið 2009 voru Michelsen úr endurvakin eftir 70 ára hlé.
Reykjavík 64°N/22°W.
Vandað mekanískt sjálfvinduúrverk, 316L stálkassi með rispufríu safírgleri.
Svört, steingrá eða silfurlit skífa og 15 mismunandi handgerðar leðurólar
í boði. Úrin eru sérframleidd í númeruðu og takmörkuðu upplagi.
„Það er ósk mín og trú, að
skátaskólinn á Úlfljótsvatni og
Úlfljótsvatn eigi um langa tíð að verða
miðstöð skátastarfseminnar á landinu.
Hvernig starfsemin á að vera, er önnur
saga. Aðalatriðið er, að starfsemin sé
svo rúm og óbundin, að hún fullnægi
þörfum hvers tímabils og leysi þau
vandamál, sem mest aðkallandi eru á
hverjum tíma. Hættulegt er að binda
stofnun í of fastar skorður. Fjölbreytni
og frjálsræði er grundvöllur hins
lifandi starfs, undirstaða lýðræðis og
menningar.“
Svo ritaði Jónas. B Jónasson,
fyrrum skátahöfðingi, í Morgun-
blaðið árið 1950 og hafa orð þessi
verið eins konar leiðarljós skáta við
uppbyggingu Úlfljótsvatns til
framtíðar. Starfsemi staðarins hefur
vissulega breyst og tekið miklum
stakkaskiptum á þeim rúmlega 70
árum sem skátar hafa fengið að njóta
þess að dvelja í þessari einstæðu
náttúruperlu sem Úlfljótsvatn er. Þó
hefur starfsemi staðarins ævinlega
byggst fyrst og fremst á því að veita
íslenskum ungmennum færi á að
kynnast náttúrunni og skátafræðum
á ævintýralegan hátt.
Annað heimili hvers íslensks
skáta
Skátar landsins hafa oft orð á því að
það sé eins og að koma heim þegar
maður kemur á Úlfljótsvatn, enda
hafa flestir skátar landsins dvalið
margsinnis við vatnið bláa og tekið
þar þátt í námskeiðum, útilegum og
stórmótum.
Sumarbúðir sem reknar eru fyrir
börn, á Úlfljótsvatni, gefa íslenskum
krökkum tækifæri til að taka sín
fyrstu skref í útivist og eignast nýja
vini. Sumarbúðirnar skjóta þannig
enn styrkari stoðum undir frekari
uppbyggingu staðarins. Staðurinn
hefur alla burði til þess að vera
vettvangur fyrir mörg þúsund manna
tjaldbúð, en Bandalag íslenskra skáta
heldur þar reglulega stórmót af ýmsu
tagi.
Fimm stjörnu tjaldsvæði
Tjaldsvæðið við Úlfljótsvatn er opið
almenningi yfir sumartímann og
hefur notið einstakra vinsælda meðal
fjölskyldufólks því þar er margvísleg
afþreying og þjónusta í boði.
Tjaldsvæðið getur hvort heldur sem
er tekið við stórum hópum eða
einstaklingum. Á svæðinu eru
íþrótta- og leikjasvæði, þrautabrautir,
klifurturn, bátaleiga og veiðiaðstaða.
Úlfljótsvatn er örskammt frá
mörgum þekktustu sögu- og
náttúruperlum landsins og hentar
staðsetningin því vel þeim sem
þangað vilja sækja sér unun
og upplifun.
ÚTILÍFSMIÐSTÖÐ SKÁTA VIÐ ÚLFLJÓTSVATN
Undraland
við Úlfljótsvatnið blátt
Alþjóðastarf er stór þáttur í
skátastarfi og á ári hverju fer fjöldinn
allur af skátum til útlanda á skátamót
og ráðstefnur af ýmsum stærðum og
gerðum. Hvort sem um er að ræða
alþjóðleg stórmót eða námskeið með
nánum hópi skáta að nema
skátafræðin, þá er upplifunin yfirleitt
ógleymanleg fyrir þátttakendur.
Áfangastaðirnir eru fjölmargir, allt
frá norrænum nágrannalöndum til
framandi slóða hinu megin á
hnettinum. Til að mynda fóru fjórir
skátar í helgarferð til Singapúr í vor,
en þangað eru ríflega ellefu þúsund
kílómetrar. „Okkur var boðið að fara
út á vegum verkefnisins Boðberar
friðar,“ segir Unnsteinn Jóhannsson,
26 ára skáti. „Námskeiðið var mjög
alþjóðlegt, en það sóttu um 70 skátar
frá 30 þjóðlöndum. Markmið
námskeiðsins var að gera okkur að
eins konar erindrekum verkefnisins
og það var mikil áskorun að vinna
með svo fjölþjóðlegum hópi skáta,
því öll höfum við jú mismunandi
hugmyndir um frið.“
Bandalag íslenskra skáta er aðili
að tveimur alþjóðlegum samtökum
skáta, WOSM og WAGGGS, en í
þeim eru yfir 41 milljón félagar
samtals. Hulda Sólrún
Guðmundsdóttir, formaður
alþjóðaráðs Bandalags íslenskra skáta,
segir það mikilvægt fyrir skáta að fá
tækifæri til þess að stunda
alþjóðastarf því það víkki
sjóndeildarhringinn og þroski
einstaklinginn. „Með því að taka þátt
í alþjóðastarfi á skátinn auðveldara
með að kynnast öðrum
menningarheimum og lærir að setja
sig í spor annarra. Þannig getur
skátinn tileinkað sér tillitsemi og
umburðarlyndi sem stuðlar að meiri
skilningi manna á meðal.“ Hún
bendir á að „skátar um allan heim
tengist í gegnum sameiginleg gildi og
sameiginlegan áhuga á útilífi,
umhverfismálum, samfélagi heimsins
og bræðralagi manna á milli. Það
þroskar okkur sem virka og ábyrga
einstaklinga og eflir sjálfstraust að
taka þátt í alþjóðastarfi skátanna.“
ALþJÓÐAVÍdd Í SKÁTASTARFI
Í helgarferð til Singapúr
Á ári hverju stunda fjölmargir íslenskir skátar skátastarf á erlendri grundu og fá
þannig tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn.