Fréttatíminn - 23.11.2012, Page 59
Afmælisrit skátanna 23
1. Taktu gamlan stuttermabol, til að mynda
gamlan sumarbúðarbol sem barnið hefur vaxið upp
úr.
3. Klipptu um það bil 5 sm raufir upp í faldinn.
2. Klipptu ermarnar og hálsmálið af, eins og sýnt
er á myndinni.
4. Hnýttu rembihnút á tvo og tvo enda.
5. Þú hefur búið til einstakan innkaupapoka og
komið fram af virðingu við náttúruna!
Umhverfisvænn innkaupapoki
plast er gert úr olíu sem myndast á mörgþúsund árum, djúpt í jarðlögunum. ef þú kaupir plastpoka í hvert sinn
sem þú ferð í stórmarkaðinn og verslar í matinn ertu því ekki aðeins að eyða 20 krónum á hvern poka (160kr á viku,
8.320kr á ári) heldur einnig dýrðmætum auðlindum! hér eru leiðbeiningar að því hvernig þú getur breytt gömlum,
ónothæfum stuttermabol, í suddalega flottan innkaupapoka án þess að þurfa að taka upp nál og tvinna!
FyRIR FJÖLSKyLdUNA
Á leið á
landsmót
LITASAMKEPPNI SKÁTA
Þessir skátar eru á leiðinni á
skátamót og hlakka mikið til að
lenda í alls kyns ævintýrum.
Getur þú litað þau á skemmtilegan
hátt?
Sendu myndina þína með nafni og
aldri í Skátamiðstöðina, Hraunbæ
123, 110 Reykjavík eða innskannaða
á skatar@skatar.is fyrir 20. desember
og þú gætir unnið glæsilega
hettupeysu. Myndina má líka
nálgast á www.skatar.is/litamynd ef
fleiri á heimilinu vilja spreyta sig.