Fréttatíminn - 23.11.2012, Síða 76
52 skák Helgin 23.-25. nóvember 2012
Skákakademían
Meistarar og skáktúristar í Hörpu
Þ að stefnir í mikla veislu á N1 Reykjavíkurskák-mótinu í Hörpu, sem haldið verður í febrúar. Margir sterkir skákmenn hafa þegar skráð sig
til leiks og von er á fjölda áhugamanna úr fjarlægum
deildum jarðar. Keppendur á síðasta Reykjavíkurskák-
móti voru um 200, en Gunnar Björnsson hinn atorku-
sami forseti Skáksambandsins, hefur einsett sér að slá
það met.
Reykjavíkurmótið var fyrst haldið árið 1964. Þá var
teflt í 14 manna lokuðum flokki, og meðal keppenda
voru Mikail Tal, Friðrik Ólafsson, Svetozar Gligoric
og Nona Gaprindashvili, sem lengi var heimsmeistari
kvenna. Tal var óstöðvandi á þessu móti, gerði aðeins
eitt jafntefli, en Friðrik og Gligoric komu næstir. Síðan
hefur Reykjavíkurmótið fest sig í sessi sem eitt áhuga-
verðasta mót heims og mun senn fagna hálfrar aldar
afmæli. Síðustu þrjá áratugi hefur mótið verið opið,
og þar hafa margir af sterkustu skákmönnum heims
leikið listir sínar.
Meðal keppenda á N1 Reykjavíkurskákmótinu í
Hörpu 2013 verða stórmeistararnir Ivan Sokolov, Nigel
Short, Pavel Eljanov og Ivan Cheparinov sem eru í hópi
albestu skákmanna heims. Ástæða er til að staldra
sérstaklega við Nigel Short (f. 1965) sem er frægasti
skákmaður Breta og náði svo langt að tefla um heims-
meistaratitilinn við sjálfan Gary Kasparov. Short nýtur
mikilla vinsælda og virðingar um skákveröld víða,
og fagnaðarefni að hann skuli vera með í Hörpu. Þeir
Eljanov (Úkraínu) og Cheparinov (Búlgaríu) eru harð-
skeyttir meistarar í grennd við toppinn á heimslistan-
um, og Ivan Sokolov er sigursælasti erlendi skákmaður
sem teflt hefur á Íslandi.
En Reykjavíkurskákmótið er ekki bara hátíð þeirra
bestu – því segja má að það sé haldið undir kjörorðum
skákhreyfingarinnar: Við erum ein fjölskylda. Svoköll-
uðum skáktúristum fjölgar ár frá ári, og alls voru
erlendir keppendur á síðasta móti 130. Nú er reiknað
með að erlendir keppendur og fylgifiskar þeirrar verði
allt að 200. Hinir erlendu gestir dvelja hér á landi í 10-
12 daga og því ljóst að Reykjavíkurskákmótið er dágóð-
ur búhnykkur fyrir ferðaþjónustuna. Seldar gistinætur
vegna mótsins fara væntanlega yfir 2000, auk þess sem
veitingastaðir munu vitanlega njóta góðs af. Þannig er
skákíþróttin sannarlega að skila sínu!
Allar sterkustu skákkonur heims úr leik!
Heimsmeistaramót kvenna stendur nú yfir í Khanty-
Mansiysk í Síberíu. 64 skákkonur hófu útsláttarkeppni,
sem einkennst hefur af mjög óvæntum úrslitum.
Þannig var Íslandsvinkonan og heimsmeistarinn Hue
Yifan slegin út í 2. umferð, sömuleiðis hinar stigaháu
skákdrottningar Koneru Humpy (Indlandi), Kateryna
Lahno (Úkraínu) og Anna Muzychuk (Úkraínu). Af
átta skákkonum sem eftir eru, þegar þetta er skrifað,
eru þrjár frá Kína. Sigurvegari mótsins mun tefla
einvígi á næsta ári við Hue Yifan, svo aldrei er að vita
nema hin geðþekka snilldarvinkona okkar haldi kór-
ónu sinni.
Skákmaraþon í þágu Barnaspítala Hringsins
Eftir viku efnir Skákakademían til skákmaraþons í
Kringlunni, þar sem fé verður safnað í þágu Barna-
spítala Hringsins. Liðsmenn Skákakademíunnar
heimsækja Hringinn vikulega og tefla við hinar ungu
hetjur, og þannig kviknaði sú hugmynd að krakkarnir
í úrvalsliði akademíunnar söfnuðu peningum til tækja-
kaupa fyrir Hringinn. Maraþonið fer fram föstudaginn
30. nóvember og laugardaginn 1. desember við Bónus
í Kringlunni og eru allir hvattir til að mæta og spreyta
sig gegn krökkunum. Skákkunnátta er algert aukaat-
riði – þarna gildir að leggja göfugu málefni lið!
SkákþrAutin
Svartur
leikur og
vinnur!
Tékkinn Hracek
hafði hvítt gegn
Judit Polgar, bestu
skákkonu sögunn-
ar, í Istanbul árið
2000. Svarta drottn-
ingin er í uppnámi,
en Polgar lumaði á
algerri sleggju...
www.facebook.com/odinsauga
... að Stekkjastaur
fari þessa dagana á milli
verslana og næli sér í þessa
frábæru þrautabók. Nú
er bara spurning, hvaða
krakkar verða svo heppnir
að fá bókina í skóinn?
Fjársjóðskistan á metsölulista...
... nýja sígilda
ævintýrabókin
hreinlega rýkur út,
enda ekki skrítið. Hérna er á
ferðinni glæsilegt sagnasafn
með 18 sígildum ævintýrum.
Sögurnar eru passlega
langar þannig að hægt er
að lesa þær á um fimm
mínútum.
Heyrst hefur...
Sími 866-8800
Ivan Sokolov verður með á N1 Reykjavíkurskákmótinu. Hér
teflir hann við Hauk heitinn Angantýsson skákmeistara í Vin.
1.... Bxf3!! 2.gxf3 Dc2 0-1
Hvítur er óverjandi mát!
Skákdrottningin Hue Yifan (fyrir miðju) er úr leik á heimsmeistaramótinu. Hér er
hún með íslensku skákprinsessunum Doniku Kolica og Elínu Nhung.
Lausn á þrautum síðustu viku
Vinningshafi síðustu
viku er Helgi Hafliðason,
Stuðlaseli 44, 109
Reykjavík, og fær hann
sendar KenKen talna-
þrautabækurnar frá
Hólum.
Ef þrautin er 3 x 3 reitir eru notaðar tölurnar 1 til
3, ef hún er 4 x 4 reitir eru notaðar tölurnar 1 til 4
o.s.frv.
Sama tala má einungis koma fyrir einu sinni í
hverjum dálki og hverri línu.
Svæðin, sem eru afmörkuð með þykkum línum,
kallast hólf.
Stundum nær hólfið bara yfir einn reit og þá er
augljóst hvaða tala á að koma þar.
Oftast nær hólfið þó yfir fleiri en einn reit og þá
fylgir þeim tala og eitthvert
stærðfræðitákn, þ.e. +, –,
x eða ÷. Ef talan er t.d. 5 +
þá á summa talnanna í því
hólfi að vera samtals 5. Ef
talan er 2- þá á mismunur
talnanna að vera 2. Í erfiðari
þrautunum er svo einnig
margföldun og deiling.
Svör við talnaþrautunum
má senda í hefðbundnum
pósti á ritstjórn Fréttatím-
ans, Sætúni 8, 105 reykja-
vík. Lesendur geta líka tekið
mynd af lausnunum með
símanum eða myndavél og
sent á netfangið
leikur@frettatiminn.is
Reglurnar eru einfaldar:
verðlaunaÞrautir
talnaþrautir KenKen-talnaþrautirnar eru frábær heilaleikfimi. Fréttatím-
inn mun birta tvær gátur í hverju tölublaði næstu vikurnar. Lesendur geta sent inn svör
við gátunum og í hverri viku verður dreginn út heppinn þátttakandi sem fær KenKen-
bækurnar sendar heim að dyrum frá Bókaútgáfunni Hólum.
Nafn
Heimili
Sími Netfang