Fréttatíminn - 23.11.2012, Blaðsíða 90
Áslaug María
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 24. nóvember
www.aslaug.is
4. sæti
Borko hefur sent frá sér velheppnaða plötu, Born To Be Free. Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir
Borko Önnur Breiðskífa komin út
Plötuupptökur eru
eins og að smíða hús
Önnur breiðskífa Borko, Born To Be Free, er komin út. Mikil þróun hefur orðið í tónlist Borkos
á þeim fjórum árum sem liðin eru síðan fyrri platan kom út. Björn Kristjánsson keyrir frá
Drangsnesi til að troða upp á útgáfutónleikunum á laugardagskvöld.
m ér finnst ég ekki vera að gera neitt öðruvísi. Mér finnst ég alveg vera
að experimenta jafn mikið en ein-
hvern veginn virðist sungin tónlist
höfða meira til fólks en ósungin,“
segir Björn Kristjánsson tónlistar-
maður.
Björn gaf á dögunum út aðra
breiðskífu sína undir listamanns-
nafninu Borko, Born To Be Free.
Sú fyrri, Celebrating Life, kom
út fyrir fjórum árum. Talsverð
þróun hefur orðið í tónlistarsköpun
Björns á þessum fjórum árum. Á
fyrri plötunni var að mestu ósung-
in raftónlist en nú reiðir Björn fram
hefðbundari popplög, sungin og
mörg hver afar grípandi. Stökkið
frá fyrstu plötu að annarri minnir
að mörgu leyti á þróun Mugisons á
sama tímapunkti.
Var platan fjögur ár í vinnslu?
„Ég er búinn að vera að vinna að
henni í og með síðan fyrri platan
kom út. En það hefur ýmislegt
annað komið upp á milli, barneign-
ir og önnur verkefni. Ætli þetta
hafi ekki verið svona eitt og hálft
ár í massífum törnum með góðum
hléum inni á milli.“
Björn segir að lögin sín verði oft-
ast til fyrst á kassagítar eða píanó.
Því næst spái hann í útsetningu í
tölvunni og þá verði gjarnan til raf-
hljóð og fleira. Þá er komið að því
að fleira fólk sé til kallað; Maggi
trommari og Ingi Garðar sem
útsetti strengi og brass á plötunni
og þannig mætti áfram telja. Hann
fellst á að þetta sé svolítið púslu-
spil. „Þetta er svolítið eins og að
smíða hús. Ég geri teikningarnar
en svo er ég ekkert rosalega flink-
ur að draga rafmagn í, þó ég kunni
að skipta um peru. Það er kúnst að
velja sér rétta samstarfsfólkið sem
fattar hvað maður er að fara og
getur kastað hugmyndum á milli.“
Aðspurður samsinnir Björn því
að raftónlist hafi minna vægi í
lögum hans en áður. Hann bendir
til dæmis á að mörg nýju laganna
hafi orðið til sem raftónlist en þeim
hlutum hafi verið ýtt til hliðar
þegar platan var mixuð. „Mér
finnst nýja platan rökrétt framhald
á þeirri fyrri, mér finnst þetta rök-
rétt þróun,“ segir Björn. Hann seg-
ir jafnframt að það hafi verið erfitt
skref að hefja upp raust sína í hljóð-
verinu. „Það var skrítið að fara að
syngja einn í hljóðverinu. Það tók
mig tíma í að manna mig upp í það.
En svo var það mjög skapandi ferli
að útsetja raddir, að ákveða hversu
margar tökur þetta væru og hvort
það ætti að nota effekta eða ekki.“
Born To Be Free kom út um
heim allan hjá þýska útgáfufyrir-
tækinu Sound of a Handshake í
byrjun mánaðarins. Björn segir
ekkert ákveðið um hvort henni
verði fylgt eftir erlendis. Það er
enda ekki auðvelt mál því Björn
er búsettur á Drangsnesi þar sem
hann og kona hans eru kennarar.
Aðdáendur Borkos hér á landi
þurfa þó ekki að örvænta því út-
gáfutónleikar hans verða í Iðnó
annað kvöld, laugardagskvöld,
klukkan 21. Miðaverð er 1.500
krónur í forsölu á Miði.is en 2.000
krónur við dyrnar. Eins og gestir á
nýafstaðinni Airwaves-hátíð geta
vitnað um er Björn með einvala
lið í tónleikasveit sinni. Þar ber
kannski fyrst að nefna Magnús
Trygvason Eliassen trommara og
Guðmund Óskar Guðmundsson
bassaleikara sem báðir hafa leikið
með Borko um fimm ára skeið.
Auk þeirra eru í bandinu Örn
Eldjárn gítarleikari og blásararnir
Ingi Garðar Erlendsson og Áki Ás-
geirsson.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug
alltaf ódýrara á netinu
Bókaðu
flugið á
ernir.is
Upplýsingar og bókanir
sími: 562 2640
netfang: ernir@ernir.is
vefur: www.ernir.is
Bíldudalur
Reykjavík
Gjögur
Vestmannaeyjar
Höfn
Húsavík
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
66 tónlist Helgin 23.-25. nóvember 2012