Fréttatíminn - 23.11.2012, Side 94
Helgin 29. júní-1. júlí 2012
Raggi í gRensásvideo KeppiR í MasteRChef
Lærði mikið af kokka-
þáttum á DVD-diskum
Á föstudagskvöld hefjast matreiðsluþættirnir MasterChef Ísland á Stöð 2. Þar keppa vaskir
áhugakokkar í eldamennsku undir strangri dómgæslu Ólafs Arnar Ólafssonar, Friðriku Geirs-
dóttur og Eyþórs Rúnarssonar. Ragnar Snorrason, eigandi myndbandaleigunnar Grensásvideo,
er á meðal keppenda. Hann unir sér best í eldhúsinu og hefur lært ýmislegt af kokkaþáttum
sem hann leigir út á DVD-diskum.
R agnar Snorrason hefur um langt árabil rekið myndbandaleiguna Grensásvideo, litla leigu sem telst
þó til þeirra betri á höfuðborgarsvæðinu
þegar úrval er annars vegar. Ragga er fleira
til lista lagt en að handvelja gæðaefni ofan
í viðskiptavini sína þar sem hann er býsna
flinkur við eldavélina. Hann tekur þátt í
MasterChef Ísland en vill þó ekki gera of
mikið úr hæfileikum sínum í eldhúsinu.
„Ja, ég er allavegana með í keppninni eins
og kemur í ljós á föstudagskvöld. Annars má
maður ekki tala mikið um þetta. Maður er
alveg múlbundinn norður og niður,“ segir
Raggi.
Hann segir eldamennsku hafa verið
áhugamál sitt og tómstundagaman í lengri
tíma og hann reyni að vera sem mest í eld-
húsinu. „Ég er þar þegar ég fæ einhverju
ráðið sem er nú ekki alltaf. En ég reyni að
vera sem mest við eldavélina.“
Raggi skráði sig ekki til leiks í Master-
Chef Ísland, heldur skoruðu dætur sam-
býliskonu hans á hann að taka þátt. „Ég
vissi ekki einu sinni af þessum þætti fyrr
en þær bentu mér á þetta en ég tók auðvitað
áskoruninni og fór í þetta.“
Raggi segist aðspurður ekki aðhyllast
neinn sérstakan skóla í matargerð sinni. „Ég
geri eiginlega bara allt. Ég var náttúrlega
að vinna lengi með Kínverjum þegar ég
var þjónn á kínverskum stað úti í Noregi og
kynntist þeirri matargerð vel. Ég hef líka
mjög gaman af því að gera indverskan mat
en annars held ég nú eiginlega að ég hafi
gert mat frá flestum heimsálfum. Það er eig-
inlega alveg sama hvar borið er niður, þótt
það hafi kannski ekki alltaf tekist jafn vel.“
Raggi hefur sameinað þetta áhugamál
sitt vinnunni og býður á leigunni upp á stórt
safn mynddiska um matreiðslu. „Þetta er
kennsluefni í matargerð með frægu fólki í
þessum bransa að minnsta kosti og ég hef
lært mikið í matargerð af þessu efni. Ég er
líka með mikið safn af diskum með fólki
sem hefur áhuga á því að rækta hráefnið
sitt sjálft úti í garði. Það er alltaf gaman að
rækta og gera eitthvað úr því sem maður býr
til sjálfur.“
Raggi segir ástandið á vídeóleigumark-
aðnum vera orðið ansi dapurlegt og sjálfur
lifi hann á öðruvísi efni en fólk sæki sér með
niðurhali eða á stafrænar myndbandaleigur
sjónvarpsstöðvanna. „Þetta er náttúrlega
allt á hverfanda hveli og ég veit ekki hvernig
þetta endar. Niðurhalið hefur haft lang mest
áhrif. Ég held að það fari ekkert á milli mála
og það er ekki hægt að keppa við það. Það er
varla spurt um nýjar myndir lengur og ég lifi
á efni frá BBC og evrópskum myndum einna
helst breskum, frönskum og ítölskum.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Ég reyni
að vera
sem mest
við elda-
vélina.
Raggi í Grensásvideo er einn þeirra sem taka þátt í MasterChef Ísland á Stöð 2. Fyrsti þátturinn er í kvöl. Ljósmynd/Hari
tónleiKaR eva guðný byRjaði að læRa á fiðlu þRiggja áRa
Í heimavist til Englands tólf ára
„Jú, það er rétt. Ég flutti til Englands tólf ára,“
segir Eva Guðný Þórarinsdóttir fiðluleikari sem mun
halda sína fyrstu einleikstónleika á Íslandi í Norður-
ljósasal Hörpu fimmtudaginn 13. desember. Eva hélt
utan af því að henni bauðst skólavist við hinn virta
Yehudi Menuhin tónlistarskóla í Englandi en þangað
komast aðeins útvaldir en um er að ræða heimavist-
arskóla.
„Ég held að það hafi verið erfiðara fyrir mömmu
og pabba að horfa á eftir mér en fyrir mig að fara,“
segir Eva en viðurkennir þó að um mikil viðbrigði
hafi verið að ræða. Hún var aðeins tólf ára og fór úr
vernduðu umhverfi í Garðabæ í skóla sem minnti
helst á Harry Potter söguheiminn. Hún talaði heldur
ekki ensku og var því ýtt út í djúpu laugina svo um
munar.
Nú hefur fórnin heldur betur borgað sig. Eva er
atvinnufiðluleikari og spilar oft með Hallé hljóm-
sveitinni í Manchester en þar er hún búsett. Hún er
tuttugu og sex ára og hefur ekki haldið tónleika á Ís-
landi síðan hún fór út tólf ára en hún hafði þá stund-
að tónlistarnám á Íslandi síðan hún var þriggja ára. Í
fyrra varð hún í þriðja sæti í Carl Nielsen fiðlukeppn-
inni í Danmörku og það vakti athygli fólks á Íslandi
og þaðan kom hugmyndin að halda hér tónleika sem
eru, eins og fyrr segir, í Hörpunni 13. desember.
Eva spilar á fiðlu
sem smíðuð var
af Joseph Rocca
1845 og var áður
í eigu Alfredo
Compoli.
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Borgríki á DVD
Íslenska glæpamyndin Borgríki, eftir Ólaf de Fleur, er
komin út á DVD. Myndin gerði stormandi lukku þegar hún
var frumsýnd í kvikmyndahúsum fyrir réttu ári. Hún fékk
til dæmis fjórar stjörnur hjá Fréttatímanum í dómi þar
sem hún var sögð „fantavel leikin, skemmtilega tekin og
eitursvöl í útliti og áferð.“ Leikstjórinn James Mangold
stefnir á endurgerð myndarinnar í Bandaríkjunum en
Ólafur hefur verið í Los Angeles undanfarið án þess að
vilja gefa upp við hvað hann hefur verið að sýsla þar.
Hann hefur einnig uppi áform um að gera Borgríki 2 og
vonast er til að hún verði tilbúin ekki síðar en 2015.
Ingvar
E og
Ágústa
Eva fara
með aðal-
hlutverk í
Borgríki.
Tónlistarmennirnir Erpur Eyvindarson og Ásgeir
Trausti eru vægast sagt ólíkir í tónlistarsköpun
sinni. Þeir hafa engu að síður fundið snertiflöt og
sendu í vikunni frá sér saman lagið Hvítir skór.
Lagið þykir hljóma vel og þarf ef til vill engan að
undra þar sem þarna koma saman þrautreyndur
rapphundur og einn allra vinsælasti tónlistar-
maður landsins um þessar mundir. Stíll Erps
hefur í gegnum árin verið hrár og óheflaður en
Ásgeir Trausti hefur slegið í gegn með angurværum
lögum sínum. Lagið Hvítir skór verður að finna á
væntanlegri plötu Erps.
Hvítir skór
Ágeirs Trausta
Bogi blessar
Baggalút
Þriðja bókin í flokknum Vís-
dómsrit Baggalúts er komin
út en fyrir eru í flokknum
samhverfusafnið Ridd-
araraddir og þjóðháttaritið
Týndu jólasveinarnir. Nýja
bókin heitir einfaldlega
Baggalútsfréttir og í henni
er að finna úrval frétta
af vefnum baggalutur.is
en þar hefur Baggalútur
skemmt fólki með kostu-
legum fréttaflutningi síðan
2001. Sá reyndi frétta-
haukur Bogi Ágústsson
ritar formála útgáfunnar
þar sem hann fer yfir helstu
vinnureglur vandaðra
fréttamiðla en hrósar síðan
Baggalúti fyrir þverbrjóta í
fréttum sínum allar reglur
um óhlutdrægni, jafnrétti,
sanngirni og heiðarleik.
„Þeir gefa skít í Ara fróða,
en hafa í heiðri þá gullnu
reglu að hafa skuli það sem
betur hljómar. Okkur öllum
til mikillar ánægju!,“ skrifar
Bogi.
HRINGURINN EFTIR STRANDBERG OG ELFGREN
HÖRKUSPENNANDI
FANTASÍA
„Sambland af
Hungurleikunum
og Harry Potter“.
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR,
MORGUNBLAÐIÐ
70 dægurmál