Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 2
Leikföng Barnaherbergið olatagardur.is / Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin við Faxafen) / Sími: 511 3060 Opið: mán.–fös. 11.00–18.00 og laugardaga 11.00–16.00 Skapandi jól í Ólátagarði Föndur Púsl PIPA R \TBW A • SÍA • 133324 Spil  Sorpflokkun ný Sending af bláu tunnunni er væntanleg eftir helgi Bláa tunnan er uppseld Bláa tunnan er uppseld hjá Reykjavíkurborg og hafa sorphirðumenn því sýnt sveigjanleika þegar kemur að pappír í hefðbundum sorptunnum. Átakið Pappír er ekki rusl hófst hjá borginni fyrr á þessu ári og gefið var út að frá og með 11. október yrðu gráu sorptunnurnar ekki tæmdar ef í þeim væri of mikið af pappír. Gámasending með bláum tunnum er væntanleg eftir helgina og þeir sem eru að bíða eftir tunnum fá þær væntanlega í lok næstu viku. Tekið skal fram að einkaaðilar bjóða einnig upp á flokkunartunnur. Í lok síðasta árs voru um 4 þúsund bláar tunnur í Reykjavík. Í byrjun október voru þær orðnar um 9 þúsund og samkvæmt nýjustu upplýsingum eru tæplega 11 þúsund bláar sorptunnur í borginni. „Viðtökurnar hafa verið ákaflega góðar. Við erum greinilega tilbúin til að verða græn,“ segir Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar. Hún hvetur fólk einnig til að flokka gler, plast og annað endurvinnanlegt efni og skila í grenndar- gáma. Nú stendur yfir samevrópsk nýtnivika en mark- mið hennar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Í tilefni af því er í gangi samkeppni um „Best nýtta pappírinn“ á Fa- cebook-síðu Reykjavíkurborgar þar sem pappír eða pappi er endurnýttur eða hefur fengið nýtt hlutverk. - eh Á ellefta þúsund bláar tunnur eru nú í Reykjavík. Þar sem tunnan er upp- seld hafa sorp- hirðumenn sýnt sveigjanleika þegar kemur að tæmingu á gráu tunnunum. Ljósmynd/Hari Safna fyrir rúmum á Staðarfell Nýstofnað stuðningsfélag meðferðarheimilisins Staðarfells í Dölum safnar nú fyrir nýjum rúmum því rúm vistmanna eru öll komin mjög til ára sinna. „Þeir sem dvelja á Staðarfelli eru þar að öllu jafna í fjórar vikur. Að okkar mati er afar brýnt að tryggja að hver vistmaður eigi sem mestan möguleika á góðri hvíld, sem af sér leiðir betri möguleika á að einstaklingar nái bata,“ segir Ólafur Hákonarson, einn aðstandenda söfnunarinnar. „Fjármagn SÁÁ til rekstursins er af skornum skammti. Allt kapp hefur verið lagt á að viðhalda meðferðinni sjálfri, en þar starfa áfengisráðgjafar með áralanga reynslu í fullu starfi. Allar kannanir sem gerðar hafa verið á starfseminni benda til þess að gæði meðferðarinnar standast fyllilega samanburð við það sem best gerist erlendis,“ segir Ólafur. -sda Barnavörubasar Lífs styrktarfélags Líf styrktarfélag stendur annað árið í röð fyrir basar í fjáröflunarskyni. Nú ætlar félagið að gefa öllum barnavörum nýtt líf en í fyrra var eingöngu tekið á móti leikföngum. Mótttaka á barnavörum verður laugar- daginn 23. nóvember milli klukkan 11 og 15 að Skeifunni 19, við hliðina á Hreysti. Barnavörubasarinn verður svo á sunnudeginum 24. nóvember frá klukkan 11 til 14 á sama stað. Tekið verður á móti barnaleikföngum, barnafötum, spilum, bókum, húsgögnum og öllu öðru barnatengdu. Barnavörubasarinn er opinn öllum og hvetur Líf þá sem hafa hug á að gera góð kaup, en í leiðinni styrkja gott málefni, að kíkja við á markaðnum á sunnudaginn. -sda Nýtt úrræði fyrir bótalausa Vinnumálastofnun hefur ýtt úr vör sam- starfsverkefni með sveitarfélögum í land- inu um þjónustu við atvinnuleitendur sem eru án bótaréttar í atvinnuleysistrygg- ingakerfinu og njóta fjárhagsaðstoðar frá félagsþjónustu sveitarfélaga. Verkefnið hefur fengið nafnið Stígur og markmið þess að styrkja viðkomandi einstaklinga í leit sinni að atvinnu og fækka þannig í hópi þeirra sem þurfa á fjárhagsaðstoð sveitar- félaga að halda. -sda ASÍ gagnrýnir SA Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusam- bands Íslands, gagnrýnir harðlega sjónvarpsauglýsingar frá Samtökum atvinnulífsins sem hann segir sögufölsun. „Í þeim er með sérlega ósmekklegum hætti látið í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu á Íslandi. Samtök atvinnulífsins skauta algerlega framhjá þeirri augljósu staðreynd að hér á landi er í umferð veikur gjaldmiðill sem fellur reglulega með braki og brestum svo ekki sé talað um hrun krónunnar fyrir 5 árum,“ segir í tilkynn- ingu frá ASÍ. -sda h eilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins hefur tilkynnt nokkrum foreldrum fyrirbura að í janúar á næsta ári standi til að leggja niður sérstakt fyrirbura eftirlit sem þeim hefur staðið til boða. Ekki hafa allir foreldrar fengið slíka tilkynn- ingu heldur heyrt af þessum áformum annars staðar frá. Þjónustan hefur staðið þeim börnum til boða sem hafa fæðst fyrir 32 vikna meðgöngu og/eða með fæðingar- þyngd undir 1500 grömmum. Meðal for- eldra fyrirbura hefur almennt verið mikil ánægja með þjónustuna og eru þeir því ósáttir við að ekki standi til að halda henni áfram. Hafdís Magnúsdóttir hefur nýtt sérhæfða ung- og smábarnavernd fyrirbura fyrir dótt- ur sína sem fæddist eftir rúmlega 32 vikna meðgöngu. „Fyrstu sex mánuðina fórum við í hefðbundna ungbarnavernd og fengum góðan hjúkrunarfræðing en því miður var sá ekki með sérhæfingu í málefnum fyrir- bura. Dóttir mín fæddist eftir 32 vikna og 1 dags meðgöngu og því fórum við ekki sjálfkrafa í fyrirburaeftirlitið en fengum svo að færa okkur yfir,“ segir Hafdís. Hún fann mikinn mun á þeirri þjónustu sem henni bauðst í sérhæfða fyrirburaeftirlitinu og í því hefðbundna. „Í sérhæfða fyrirburaeftir- litinu var skilningur á öllu því sem fylgir að vera fyrirburi. Í hefðbundna eftirlitinu var hjúkrunarfræðingurinn til dæmis með miklar áhyggjur af því hversu hægt dóttir mín þyngdist og við þurftum að mæta í vigtun vikulega. Þetta olli mikilli streitu hjá mér því ég hafði áhyggjur af því að hún þyngdist ekki nóg. Í sérhæfða fyrirbura- eftirlitinu sá hjúkrunarfræðingurinn strax að dóttir mín fylgdi sinni vaxtarkúrfu þó hún væri minni en jafnaldrar hennar og því mættum við aðeins mánaðarlega í vigtun.“ Á vef Heilsugæslunnar kemur fram að með sérhæfða eftirlitinu sé markmiðið að fylgjast reglulega með heilsu og framvindu á þroska fyrirbura og að lögð sé áhersla á stuðning við fjölskylduna og þannig stuðlað að því að börnum séu búin bestu möguleg uppvaxtarskilyrði a hverjum tíma. Þá sé börnum tryggðum viðeigandi stuðningur og þjónusta fagaðila við frávik. Drífa Baldursdóttir heldur utan um vef- svæði fyrirburaforeldra, fyrirburar.is, og segir hún fjölda fólks mjög uggandi yfir þessum áformum Heilsugæslu Höfuðborg- arsvæðisins. „Það er mjög gott fyrir foreldra fyrirbura að hafa alltaf aðgang að sér- fræðingum í málefnum fyrirbura og að fá allan þann stuðning sem þeim er nauðsyn- legur eins og til dæmis við brjóstagjöf og líðan sína sem foreldra fyrirbura sem þarf mikla sérhæfingu til að sinna. Við fyrir- bura foreldrar erum mjög ósátt við að þessa sérhæfðu þjónustu eigi ekki að veita áfram og viljum að fyrir alla þá fyrirbura sem eiga eftir að koma standi þetta til boða.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is  heilbrigðiSmál heilSugæSla höfuðborgarSvæðiSinS Hætta með sérhæft fyrirburaeftirlit Fyrirburum hefur staðið til boða sérhæfð ungbarnavernd hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins en nú eru uppi áform um að hætta þeirri þjónustu. Almenn ánægja hefur verið meðal foreldra fyrirbura með þjónustuna og eru margir þeirra ósáttir við fréttir af því að til standi að hætta að veita hana. Til stendur að leggja niður sérhæfða ung- og smábarnavernd fyrirbura. Þjónustan hefur staðið þeim börnum til boða sem hafa fæðst eftir minna en 32 vikna meðgöngu og/eða verið með fæðingarþyngd undir 1500 grömmum. Ljósmynd/Hari. 2 fréttir Helgin 22.-24. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.