Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 22
LEIKFÖNG
ÚTILEIKTÆKI
GJAFAVARA
60%
40%
50%30%
30%
50%
60%
40%
60%
40%
JÓLA
SVEI
NAR
VELK
OMN
IR
70%
22. NÓVEMBER - 1. DESEMBER
OPNUNARTÍMI:
VIRKA DAGA10:00 - 20:00
HELGAR 10:00 -18:00
GYLFAFLÖT 7
112 REYKJAVÍK
587-8700
MIKIÐ ÚRVAL AF
JÓLAGJÖFUM
ALLT AÐ
70%
AFSLÁTTUR
LAGER
SALA
sitja við orðin tóm og árið 1998
eru Ranka og fjölskyldan henn-
ar komin til Bolungarvíkur þar
sem fjölskylda Ingu aðstoðar
þau við að koma sér fyrir og
aðlagast samfélaginu.
Tók nafn Ingu
Mikið af trúarlegum myndum
er á veggjum heimilis Rönku
og Zdravko í Kópavoginum en
þau tilheyra serbnesku rétt-
trúnaðarkirkjunni. Ranka er
trúuð og fer jafnt í messur hjá
þjóðkirkjunni og hjá kaþólsku
kirkjunni. Hún er með logandi
kerti fyrir framan eina myndina
og signir sig fyrir framan hana
þegar hún hefur fengið símtal í
miðju viðtalinu. Þennan saman
morgunn var bróðr Rönku,
Bosko, í aðgerð á Landspítalan-
um og er hún því mjög áhyggju-
full þó aðgerðin eigi ekki að
vera hættuleg. Hún biðst afsök-
unar á því að vera stressuð út af
bróður sínum, biðst afsökunar
á því að tala ekki góða íslensku
og líkt og margir sem reykja þá
þurfti hún að reykja enn meira
en venjulega því hún var stress-
uð. Hún baðst líka afsökunar
á því. Ég segi henni að reykja
alveg endilega og sem allra
mest. Íslenskukunnáttan er líka
fín en einmitt af því að hún var
óörugg vildi hún að Elín myndi
líka hitta mig og vera sér til
halds og trausts.
Á litlu borði í stofunni er
mynd af Ingibjörgu Vagns-
dóttur, eða Ingu eins og hún var
kölluð. Ranka ber gríðarlega ást
í hjarta til Ingu, bjargvættarins
hennar. Í fyrradag, 20. nóvem-
ber, voru rétt tvö ár síðan Inga
varð bráðkvödd. Í kringum
myndina á borðinu eru logandi
kerti. Samkvæmt gömlum ís-
lenskum lögum þurftu inn-
flytjendur að taka sér íslenskt
nafn til að öðlast ríkisborgara-
rétt. Ranka valdi sér nafnið
Inga í höfuðið á sinni ástkæru
vinkonu.
„Samkvæmt okkar trúar-
brögðum er 21. nóvember
dagur Mikaels erkiengils og
við fjölskyldan borðum þá alltaf
saman. Daginn áður hafði ég
sofið illa og var ekki í góðu
skapi, af einhverjum ástæðum.
Ég fór ekki að hugsa um það
fyrr en síðar. Næsta dag þegar
ég var að ljúka vinnudeginum í
Blómavali fór ég heim í sturtu
og hafa mig til fyrir kvöld-
verðinn með fjölskyldunni.
Ég heyrði frammi að Zdravko
snökti en hélt bara áfram að
laga á mér hárið. Þegar ég kom
fram sagði hann mér að systir
Ingu hafi hringt og að Inga hafi
fengið hjartaáfall og væri látin.
Ég áttaði mig ekki strax á þess-
um orðum en síðan bara lagðist
ég í gólfið, grét og öskraði.
Þegar ég missti Ingu var það
eins og að missa barn. Hún gaf
mér annað líf, hún gaf mér ást
og öryggi. Þegar ég var nýkom-
Zdravko og Ranka á meðan allt lék í lyndi í Júgóslavíu. Hér njóta þau lífsins í Króatíu.
Zdravko kom til Bolungarvíkur fjórum mánuðum á eftir Rönku. Hér eru þau sam-
einuð á ný á Íslandi.
Foreldrar mínir
sem eru í Bosníu
töluðu við okkur í
gegnum Skype og
þegar þau heyrðu
að Inga væri dáin
þá grétu þau líka.
22 viðtal Helgin 22.-24. nóvember 2013