Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 68
68 skák og bridge Helgin 22.-24. nóvember 2013
Skák MagnuS CarlSen að tryggja Sér heiMSMeiStaratitilinn
Í skákfréttum er þetta helst...
M agnus Carlsen, sem verður 23 ára eftir rúma viku, stefnir hraðbyri í átt að
heimsmeistaratitlinum. Þegar þetta er
skrifað hafa verið tefldar átta skákir
af tólf, og Norðmaðurinn ungi hefur
hlotið 5 vinninga gegn 3 vinningum
Anands heimsmeistara. Staðan í
einvíginu þarf ekki að koma á óvart:
Carlsen er langstigahæstur í heim-
inum, meðan hinn 43 ára gamli Anand
hefur verið að síga niður listann og er
þessa stundina í 9. sæti.
Hinir fjölmörgu aðdáendur Anands
geta huggað sig við að hann hefur
setið sex ár í hásæti heimsmeistar-
ans, og fjölgað skákáhugamönnum
á Indlandi og um gjörvalla Asíu um
mörghundruð milljónir. Anand var
fyrsti Indverjinn sem varð stórmeist-
ari í skák, en nú skipta þeir tugum og
landið er orðið stórveldi í skákheim-
inum. Tíunda skákin í einvígi þeirra
er tefld í dag, föstudag, og er hægt
að fylgjast með í beinni útsendingu á
chessbomb.com.
Azerar Evrópumeistarar lands-
liða – Íslendingar á pari
Azerar sigruðu á Evrópumóti lands-
liða, sem lauk á sunnudaginn í
Varsjá, höfuðborg Póllands. Alls
sendu 38 þjóðir lið til keppni og þar
léku margir fremstu skákmenn
heims listir sínar. Frakkar urðu í
2. sæti og Rússar hrepptu bronsið
eftir talsverðan barning. Sveit Azera
leiddu þeir Mamedyrov og Radjabov.
Sigur þeirra var frekar óvæntur, en
liðið vann fimm viðureignir, gerði
fjögur jafntefli og tapaði engri.
Íslenska liðið hafnaði í 29. sæti og
stóð sig nokkurn veginn í samræmi
við væntingar. Héðinn Steingríms-
son hlaut 3,5 vinning af 8 á efsta
borði, og jafngilti árangur hans 2559
skákstigum. Hannes Hlífar Stefáns-
son fékk 5 vinninga af 9 (2537 stig),
Hjörvar Steinn Grétarsson 3 af 7
(2509) og Henrik Danielsen 3,5 af 7
(2458). Varamaðurinn Guðmundur
Kjartansson fékk 2,5 vinning af
5 (2414). Íslenska liðið vann þrjár
viðureignir, gerði eitt jafntefli en
tapaði fimm.
Stelpurnar okkar áttu við ramm-
an reip að draga á Evrópumótinu,
enda með stigalægsta liðið. Þrjátíu
og tvær þjóðir sendu kvennalið, og
varð íslenska liðið í næstneðsta sæti.
Lenka Ptacnikova, langbesta skák-
kona Íslands, dró vagninn en liðið
var að öðru leyti skipað kornungum
og efnilegum skákkonum. Tinna
Kristín Finnbogadóttir stóð sig
þeirra best, með 4 vinninga í 7 skák-
um. Aðrar í liðinu voru Hallgerður
Helga Þorsteinsdóttir, Jóhanna Björg
Jóhannsdóttir og Elsa María Krist-
ínardóttir. Dýrmæt reynsla fyrir
okkar unga kvennalið! Úkraína varð
Evrópumeistari kvennalandsliða,
Rússar hrepptu silfrið og Pólverjar
bronsið.
Það er svo gaman að segja frá
því að bestum árangri einstaklinga
á mótinu náði hinn mikli Íslands-
vinur, Ivan Sokolov, sem teflir undir
fána Hollands. Hann rakaði saman
6,5 vinningi í 7 skákum, og jafngilti
árangur hans hvorki meira né minna
en 2941 skákstigi!
Glæsilegur árangur TR
Taflfélag Reykjavíkur kom, sá og
sigraði á Íslandsmóti unglinga-
sveita, sem fram fór um síðustu
helgi. Alls tóku 16 lið frá fimm tafl-
félögum þátt í mótinu og tefldi TR
fram sex sveitum alls! Sigursveitin
var skipuð Vigni Vatnari Stefáns-
syni, Gauta Páli Jónssyni, Vero-
niku Magnúsdóttur og Birni Hólm
Birkissyni. GM Hellir varð í 2. sæti
og skákdeild Fjölnis hlaut bronsið.
Bestum árangri allra náði Fjöln-
ispilturinn Oliver Aron Jóhannes-
son sem sigraði í öllum 7 skákum
sínum. Full ástæða er til að óska TR
til hamingju með góðan sigur, sem
og það metnaðarfulla starf sem þar
er unnið meðal barna og ungmenna.
Í slandsmótið í parasveitakeppni var háð um síðustu helgi og sveit PWC hafði sigur eftir mikla baráttu. Spilarar í sveit
PWC voru Ljósbrá Baldursdóttir, Matthías
Þorvaldsson, Anna Ívarsdóttir og Þorlákur
Jónsson. Sveit PWC vann einnig árið 2012,
en þá næsta örugglega. Baráttan um titilinn
var harðari núna og aðeins 4 stig skildu að
sveitina í fyrsta og öðru sæti. Fimm efstu
sveitirnar voru:
1. PWC 135,96
2. Veika sveitin 131,72
3. Þrír frakkar 126,90
4. Sigurjón Björnsson 122,89
5. Ferill 117,98
Tólf sveitir tóku þátt að þessu sinni. Ár-
angur para og spilara er reiknaður sérstak-
lega með bötler-útreikningi. Páll Þórsson
endaði efstur með 1,89 impa að meðaltali
í spili eftir 4 leiki. Rosemary Shaw endaði í
öðru sæti með 0,94 impa í 11 leikjum. Krist-
ján B. Snorrason og Alda Guðnadóttir fengu
0,59 í 11 leikjum og Anna Ívarsdóttir-Þorlák-
ur Jónsson (0,55) og Ljósbrá Baldursdóttir-
Matthías Þorvaldsson (0,50) enduðu í fjórða
og fimmta sæti, einnig eftir 11 spilaða leiki.
Spil 16 í 8. umferð mótsins reyndist PWC vel
á móti sveit TM-Selfoss. Vestur var gjafari
og AV á hættu. Í sæti vesturs var Matthías
Þorvaldsson. Spilið var allt svona:
Matthías Ljósbrá
Vestur norður austur suður
1♥ 1♠ 3t* 3♥*
P 3♠ 4♥ 4♠
X p/h
Þriggja tígla stökksögn Ljósbrár í austur
sýndi stuðning í hjarta og tígullit („fit-show-
ing“) og Matthías ákvað að verjast í 4 spöð-
um. Sá samningur fór 1 niður en hefði getað
unnist ef sagnhafi tekur tvö hæstu trompin,
hreinsar upp hjarta og lauf og spilar tígli.
Þá verður vestur endaspilaður og verður að
gefa sagnhafa tíunda slaginn. Útspil Ljós-
brár var hjarta sem benti til tígulstöðunnar.
Sennilega var vestur með háspil í tígli blankt
úr því útspil var ekki tígull. Á hinu borðinu
enduðu sagnir í 5 hjörtum dobluðum sem
fóru 500 niður.
Íslandsmót eldri spilara
Íslandsmót eldri spilara verður haldið laug-
ardaginn 23. nóvember og hefst klukkan 11.
Íslandsmeistarar 2012 eru Guðbrandur Sig-
urbergsson og Friðþjófur Einarsson. Hægt
er að skrá sig í síma BSÍ – 587 9360 eða á
vefsíðu.
Fótboltinn tók völdin hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Spilamennska var felld niður þriðjudags-
kvöldið 19. nóvember hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur vegna knattspyrnuleiks Króata
og Íslendinga. Í húfi var sæti á HM í Brasilíu
í sumar og var áhugi bridgespilara mikill,
eins og þjóðarinnar allrar.
Bridge ÍSlandSMótið Í paraSveitakeppni
Baráttusigur PWC-sveitarinnar
Loksins
...skákbók fyrir
byrjendur
BÓKAÚTGÁFA · SÍMI 588 6609 · WWW.TOFRALAND.IS
„Ég get mælt með þessari vönduðu
skákbók fyrir alla byrjendur.“
Gunnar Björnsson, forseti skáksambands Íslands
„... skemmtileg og aðgengileg handbók
fyrir skákkennslu ... ég fagna útgáfu hennar. “
Stefán Bergsson, framkvæmdastjóri Skákakademíunnar
Bókin Lærum að tefla er komin út!
Aðgengileg bók fyrir börn og byrjendur í skák. Farið er yfir grunnatriði eins og mannganginn og einfaldar skákfléttur.
♠ K109872
♥ 3
♦ D107
♣ K97
♠ Á654
♥ Á42
♦ 6542
♣ Á6
♠ DG3
♥ D10765
♦ Á
♣ DG42
♠ -
♥ KG98
♦ KG983
♣ 10853
N
S
V A
Sveitarmeðlimir í PWC voru að vonum ánægðir
með að ná fyrsta sætinu á Íslandsmótinu í
parasveitakeppni. Frá vinstri eru Þorlákur Jóns-
son, Anna Ívarsdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir og
Matthías Þorvaldsson.
Ljósmyndari: Aðalsteinn Jörgensen
Jón Þorvaldsson sigraði á bráðskemmtilegu Grænlandsmóti sem
Hrókurinn og Vinaskákfélagið stóðu fyrir í Vin á mánudaginn. Í
næstu sætum urðu Magnús Magnússon og Gunnar Freyr Rúnarsson,
en keppendur voru alls 16. Heiðursgestur mótsins var Vigdís Hauks-
dóttir alþingismaður, sem kann sitthvað fyrir sér í skáklistinni. Hún
er gamall skólaskákmeistari og hefur auk þess afrekað að sigra
sterka skákmenn í fjölteflum. Hér leikur Vigdís fyrsta leikinn fyrir
kempuna Bjarna Hjartarson.