Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 50
K ia Carens er hinn full-komni fjölskyldubíll, rúm-góður og þægilegur. Hann
telst vera 7 manna, í annarri sæta-
röð eru þrjú rúmgóð sæti og upp
úr gólfi geymslurýmisins aftast er
hægt að taka tvö sæti til viðbótar.
Geymslurýmið er nokkuð gott
en það tapast vitanlega að mestu
leyti þegar sætin eru í notkun. Í
raun henta þau best fyrir smá-
vaxna farþega sem er auðvitað
afar hentugt þegar um er að ræða
barnmargar fjölskyldur eða þegar
það vantar auka sæti fyrir vini
barnanna. Aðgengið að þessum
öftustu sætum er þó heldur erfitt
og þarf að færa fram eða leggja
niður sæti í annarri röð til að kom-
ast að þeim.
Ég er svolítið veik fyrir litlu
hlutunum og þannig gladdi það
bæði mig og dóttur mína einstak-
lega mikið að það eru borð aftan
á framsætunum, svona eins og í
flugvélum. Dóttirin krafðist þess
að hafa borðið niðri, alltaf – jafn-
vel þó ekki væri nema bara til að
geyma þar blað. Já, ég held að hún
sakni borðsins mest við þennan
bíl. Miðsætið í annarri sætaröð var
síðan hægt að setja alveg niður og
þá var komið lítið hliðarborð og
glasahaldarar að auki. Vitanlega
er hægt að hita framsætin en Kia
Carens býður upp á aukabónus
sem gladdi mig mjög í vetrarkuld-
anum – hita í stýri. Útispeglarnir
eru líka upphitaðir sem auðvitað
eykur á öryggið. Speglarnir falla
síðan sjálfkrafa að bílnum þegar
slökkt er á honum sem er kostur
í þröngum stæðum og viðlíka að-
stæðum. Þeir sem vilja endilega að
speglarnir leggist ekki að bílnum
hafa þó val um það.
Bíllinn er afar þægilegur í akstri
og hægt að velja um þrjár mismun-
andi stillingar á þyngd stýrisins.
Þannig þyngdi ég það þegar ég ók
Reykjanesbrautina en hafði það
léttara innanbæjar. Þá er hægt er
stilla hæð bílstjórasætisins sem
kemur sér ágætlega fyrir lágvaxna
konu eins og mig.
Kia Carens er annar af tveimur
bílum í flokki minni fjölnotabíla
sem nú eru á markaði í Evrópu
sem hefur fengið 5 stjörnur, fullt
hús stiga, í árekstraprófunum
Euro NCAP, leiðandi stofnunar á
sviði umferðaröryggismála í Evr-
ópu. Euro NCAP stofnunin gaf Ca-
rens hámarkseinkunn fyrir varnir
gegn hliðarárekstrum, varnir fyrir
18 mánaða gömul börn, varnir
gegn hálshnykkjum í framsætum
og varnir gegn meiðslum á fót-
leggjum gangandi vegfarenda.
Meðal staðalbúnaðar bílsins
er brekkuvari sem kemur í veg
fyrir að bíllinn renni aftur á bak í
brekkum, nokkuð sem ég þurfti að
venjast en fannst þó mjög traust-
vekjandi. Bíllinn er með bakk-
myndavél og bakkskynjara. Hægt
er að panta frá framleiðanda að
fá bíl með glerþaki, „panoramic
roof“, en ég hef aldrei prófað að
aka slíkum bíl. Allir bílar Kia
koma síðan með 7 ára ábyrgð sem
er ótvíræður kostur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
50 bílar Helgin 22.-24. nóvember 2013
ReynsluaKstuR Kia CaRens
suzuKi Bílasýningin í tóKíó
www.parkingheater.com
Ice scraping is a thing of
the past! With a Webasto
parking heater.
Enjoy the comfort and safety provided with a
parking heater and choose from different control
options with great useability.
T91 Thermo Call with AppHTM100
www.parkingheater.com
Ice scraping is a thing of
the past! With a Webasto
parking hea er.
Enjoy the comfort and safety provided with a
parking heater and choose from different control
options with great useability.
T91 Thermo Call with AppHTM100
Aldrei að skafa!
Með Webasto bílahitara.
Þú h tar bílinn með fjarstýringu og þan ig
ge ur þú notið þæginda og öryggis.
BÍLASMIÐURINN HF
Bíldshöfða 16
110 Reykjavík
sími 567 2330
bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
www.bilasmidurinn.is
Thermo call með pp
Sýnir sex nýja hugmyndabíla
Suzuki sýnir hvorki fleiri né færri en sex nýja hugmynda-
bíla á bílasýningunni í Tókíó, þar á meðal blendingjann
Crosshiker sem státar af nýstárlegri hönnun, lítilli þyngd
og einkar sparneytinni aflrás, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Sýningarbílar Suzuki í Tókíó eru bílar sem gæti orðið
fáanlegir í næstu framtíð en einnig þar eru einnig hug-
myndabílar sem taka mið af fjarlægari framtíð. Bílarnir
eru hlaðnir búnaði og nýjustu tækni frá Suzuki.
Crosshiker er blendingur sem byggir á REGINA hug-
myndabílnum sem var sýndur á bílasýningunni í Tókíó
2011. Þrátt fyrir jepplingaform vegur bíllinn ekki nema 810
kg. Hann er með nýrri eins lítra, þriggja strokka vél sem
býr yfir nægu afli fyrir þennan létta bíl og er um leið ein-
staklega umhverfisvæn.
„X-LANDER á hinn bóginn er hreinræktaður jeppi með
bensínvél og rafmótor, svokallaður tvinnbíll,“ segir enn
fremur. „Bíllinn er ætlaður til notkunar í borgum en hann
býr jafnframt yfir þeim kosti að komast torfærari slóðir
utan borganna. X-LANDER byggir á smájeppanum Jimny
og er með 1,3 lítra bensínvél og nýrri, sjálfvirkri beinskipt-
ingu. Rafaflrásin er léttbyggð og bíllinn er fjórhjóladrifinn.
Hustler er annar blendingur sem Suzuki sýnir í Tókíó.
Þetta er ný gerð smábíls sem hentar lífsglöðu fólki sem
ann náttúrunni og stundar útiveru og íþróttir. Hann státar
af laglegri hönnun sem um leið býr yfir hagnýtu notagildi
og margt við hann minnir á jeppa.
iV-4 hugmyndabíllinn er smájepplingur og þar er Suzuki
á heimavelli enda hlotið jákvæðar umsagnir jafnt um
Jimny, Grand Vitara og aðra smájeppa.“
Crosshiker.
iv4.
Frábær fjölskyldubíll
Kia Carens er sjö sæta fjölskyldubíll þar sem hagkvæmni er í fyrirrúmi. Öftustu tvö sætin koma
upp úr farangursrýminu og tapast það rými þegar sætin eru í notkun. Annars er bíllinn mjög
rúmgóður og sætin þægileg. Nútímafjölskylda sem gerir kröfur um fjölda glasahaldara og borð
fyrir farþega verður ekki svikin.
Þægileg sæti
Brekkuvari
Borð fyrir farþega
Aðfellanlegir útispeglar
Hiti í stýri
Erfitt aðgengi að öftustu
sætunum
Skortur á geymslurými ef
öftustu sæti eru í notkun
Eldsneytisnotkun 5 l/100 km í
blönduðum akstri
CO2 blandaður akstur 116 g/km
Hestöfl 122
9,3 sek upp í 100 km/klst
Lengd 4310 mm
Breidd 1785 mm
Verð 4.990.00 kr.
Kia Carens er heldur sportlegur í útiliti fyrir fjölskyldubíl, sem er vel. Ljósmynd/Hari
Hér sjást sætin tvö sem hægt er að taka
upp úr gólfinu aftast. Á móti minnkar
þá geymsluplássið. Í annarri sætaröð er
barnabílstóllinn minn. Ljósmynd/Hari
X-LANDER.
Hustler.