Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. M Meðal sykurneysla hvers Íslendinga nemur 60 kílóum á ári. Það eru hrikalegar tölur og Íslendingar, sem eru feitastir Norðurlanda-þjóða, virðast fylgja í kjölfar Bandaríkja- manna. Þeir eru afleit fyrirmynd í þessum efnum en fram kom í fréttaskýringaþætti bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS, 60 mínútur, að sykurneysla væri að fara með Bandaríkjamenn í gröfina. Hérlendis eru 57,1 prósent fullorðinna yfir kjörþyngd og 18,6 prósent barna. Offitufar- aldurinn er ein helsta ógnin við lýðheilsu í dag, að því er fram kom hjá Bolla Þórssyni, lækni hjá Hjartavernd og sér- fræðingi í innkirtlasjúkdóm- um, í Líftímanum sem fylgir Fréttatímanum mánaðarlega. Rannsókn Norrænu ráðherra- nefndarinnar sýnir að offita hrjáir 17,8 prósent Íslendinga sem er hæsta hlutfallið á Norðurlöndunum. Lægst er hlutfallið í Noregi, 8,7 prósent. Rannsókn Hjartaverndar á aldurshópnum 35 til 44 ára sýndi að fyrir 45 árum, árið 1968, vógu konur á Íslandi að meðaltali 64,9 kíló en karlar 81,9 kíló. Árið 2007 var meðal- þyngd kvenna 74 kíló og karla 90 kíló. Bolli telur að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir því hve hættuleg offita getur verið. Axel F. Sigurðsson, sérfræðingur í hjarta- sjúkdómum, segir í Líftímanum að algeng- ustu afleiðingar offitu séu áunnin sykursýki, hár blóðþrýstingur, auk hjarta- og æða- sjúkdóma en þeir eru algengasta dánaror- sökin hér. Hann bendir á að undanfarna tvo áratugi hafi fituneysla hérlendis nokkurn veginn staðið í stað en neysla á sykri og unnum kolvetnum aukist. Því sé ólíklegt að þjóðin hafi fitnað af of mikilli fituneyslu. Skýringanna sé fremur að leita í óhóflegri sykurneyslu. Ef snúa á við þróun offitumála segir Axel lykilatriði að fræða börn um mataræði og fá þau til að heillast af því sem er hollt og ferskt og sjá ókostina við unninn sykur og sælgæti. Offita í barnæsku eykur líkur á offitu á fullorðinsaldri og segir Axel rann- sóknir sýna að séu börn of feit séu 70-80 prósent líkur á offitu þeirra á fullorðinsaldri. Sé barn í eðlilegum holdum séu ekki nema 7-10 prósent líkur á að það glími við offitu síðar á ævinni. Gríðarleg gosdrykkjaneysla hefur verið viðvarandi en Íslendingar drekka að meðal- tali um 130 lítra af gosdrykkjum á ári. Á þetta hefur Vilhjálmur Ari Arason læknir bent og nefnir auk þess sælgæti, orku- drykki og sykraðar mjólkurvörur. Fjórð- ungur allrar sykurneyslu landans er í formi gos- og sykurdrykkja, segir hann og bendir á að fimmföld ofneysla á sykri á Íslandi sé „svakaleg ofneysla á skaðlegu fæðuefni í of miklu magni.“ Ógnvænlegt er að sjá „nammi- bari“ svokallaða í stórverslunum þar sem mannhæðarháir rekkar eru sneisafullir af sælgæti sem mokað er í poka með skóflum. Meðal Íslendingurinn innbyrðir kíló af sykri í viku hverri og vel það. Það er með því mesta sem þekkist í heiminum. Nátt- úrulækningafélag Íslands hefur bent á að neysluhlutfall barna sé jafnvel enn hærra en hjá fullorðnum en samkvæmt upplýsingum frá Neytendasamtökunum borðar leikskóla- barn að meðaltali 54 grömm af sykri á dag, yfir 19 kíló af hreinum sykri á ári. Það er rúmlega meðalþyngd fjögurra ára drengja. Þetta gríðarlega sykurmagn er meira en lifr- in ræður við. Þegar lifrin fær meira af sykri og sætuefnum en hún getur unnið úr breytir hún sykrinum í fitu. Hundrað manns fara í offitumeðferð á ári hverju og sjúklingarnir verða sífellt yngri. Tíðni sykursýki 2 hefur aukist um helming hjá körlum og rúmlega tvo þriðju hjá kon- um. Einn sykraður gosdrykkur á dag eykur hættu á að fá hjartaáfall um 20 prósent og rannsóknir sýna bein tengsl hegðunarerfið- leika ungra barna og gosdrykkjaneyslu. Það þarf ekki annað en ganga um götur hérlendis til að sjá æpandi dæmi um ástand- ið. Við það má ekki una. Þörf er á þjóðará- taki gegn sykuræðinu. Offitufaraldur feitustu þjóðar Norðurlanda ógnar lýðheilsu Þjóðarátak gegn sykuræði Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is En hann er boxari Mig langaði í eitt sinn að berja Gunnar Birgisson. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, upplýsti að einhverju sinni stuðaði Gunnar Birgisson hann svo að hann vildi rjúka í hann. Gunnar er hins vegar þungavigtarmaður og áhuga- samur um hnefaleika. Og hvernig er hún í viðkynn- ingu? Ég og Magnús þekkjum þessa eign og höfum komið að rekstri hennar, en „fréttin“ snýst ekki um það. Hvorugur okkar er eigandi, eins og áður segir, og ég kem ekki að rekstri þessarar fasteignar í dag. Hannes Smárason hafnar því að eiga flottan skíðaskála, en kannast við húsið. Hammó með ammó! Þetta er á mjög gráu svæði og mér finnst þetta vera hámark ruddaskaparins – að birta mér stefnu á heimili mínu vegna minnar vinnu. Þeir hefðu vel getað beðið í einn dag eða komið til mín í vinnuna. Stefnuvottur frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni truflaði sextugsafmæli Reynis Traustasonar, ritstjóra DV, og gerði litla lukku. Úr vöndu að ráða Ekki slægi ég hendinni á móti því að skuldir mínar lækkuðu. En það getur líka verið að hægt sé að gera eitthvað skynsamlegra við peningana. Óvissan er enn svo mikil að ég get ekki metið það. Egill Helgason veit ekki hvað honum á að finnast um áform um skuldaniðurfellingu. Kanahrollur Fyrir mér er bara mjög óþægilegt að vita til þess að það séu einhver einka- fyrirtæki að hnýsast í persónuupp- lýsingar fólks fyrir einhver erlend stórveldi, mér finnst það bara mjög krípí. Birgitta Jónsdóttir pírataþingmaður fær hroll eins og Kristinn. Og sjö þúsund árum síðar kom Sing Sing Hó... Þetta er bara sögufölsun. Annars- vegar á þróun launa og verðlags og hinsvegar á því sem Seðlabankinn var að gera. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, er óhress með auglýsingu Samtaka atvinnulífsins þar sem launþegar eru hvattir til að stilla kröfum sínum um kjarabætur í hóf vegna verðbólgu. CIA – Iceland Það er ljóst að ríkislögreglu- stjóri telur enga þörf á að útskýra fyrir almenningi hvernig samstarfi hans við erlend lögregluembætti og leyniþjónustur er háttað. Þingið þarf greinilega að þvinga þessar upplýsingar fram. Kristinn Hrafnsson, blaðamaður og talsmaður WikiLeaks, furðar sig á fylgispekt íslenskra lögregluyfirvalda við bandarískar njósnastofnanir. En hér er myrkur og kreppa! Já, það getur verið og þetta er eitt- hvað sem þarf að skoða miklu betur. Þetta hefur svo sem verið vitað lengi, áratugum saman að Íslendingar nota meira af þunglyndislyfjum en er á hinum Norðurlöndunum. Það hefur verið vitað lengi. Magnús Jóhannsson, læknir veltir fyrir sér mikilli lyfjanotkun mörlandans. Harður jaxl Þetta er skelfilegt alveg, en maður lifir þetta af. Brynjar Dagbjartsson, trésmiður, lenti í árásargjörnum innbrotsþjófum við sumarbústað við Reykjaskóg í Bláskógabyggð.  Vikan seM Var Meðal Íslendingurinn innbyrðir kíló af sykri í viku hverri og vel það. Það er með því mesta sem þekkist í heiminum. Bókaútgáfan Opna - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - sími 578 9080 - www.opna.is Bækurnar okkar á Bókamessu Öll helgin: Getur þú lesið miðaldahandrit? Taktu þátt í messuleik og freistaðu þess að vinna glæsilega bók frá Opnu. Dregið úr réttum lausnum. Laugardagur kl. 15.00: Tískusýning! Félagar úr Heimilisiðnaðarfélagi Íslands sýna glæsilega þjóðbúninga frá ýmsum tímum. Sunnudagur kl. 15.00: Fríða Rún Þórðardóttir kynnir ljúffengar krásir sem allir geta notið - líka þeir sem þurfa að forðast egg, mjólkurvörur, glúten eða hnetur. 14 viðhorf Helgin 22.-24. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.