Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 22.11.2013, Blaðsíða 10
É g fór á leiðbeinendanám-skeið hjá Blátt áfram að gefnu tilefni. Ég var leik- skólafulltrúi Vestmannaeyjabæjar, starfaði ein á leikskólaskrifstofunni og kom að umsjón allra barna, frá fæðingu til 6 ára, bæði hvað varðar ráðgjöf og fræðslu til dagforeldra og leikskólakennara. Á meðan ég var starfandi fór barn sem var gróflega misnotað í gegnum dagmæðrakerf- ið hjá mér og áfram uppi í leikskóla. Það var greinilegt að eitthvað var að en þetta var bara svo fjarri mér. Ég þekkti ekki einkennin. Þá ákvað ég að gera allt sem í mínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að þetta myndi gerast aftur,“ segir Guðrún Helga Bjarnadóttir, nýr starfsmaður á skrifstofu Blátt áfram. „Þetta ýtti við mér og á næstu þremur árum fóru um fimm hundruð manns á vegum Vestmannaeyjabæjar á nám- skeið hjá Blátt áfram, bæði grunn- og leikskólastarfsmenn, starfsfólk í frístundaveri, sundlaugum og víð- ar,“ segir hún. Samtökin Blátt áfram berjast fyrir því að efla forvarnir gegn kyn- ferðisofbeldi gagnvart börnum. Þau hafa starfað í níu ár og hafa meðal annars vakið athygli fyrir opinská- ar auglýsingar sem hafa farið fyrir brjóstið á sumum. Til að mynda tók fólk misjafnlega sjónvarpsauglýs- ingum þar sem börn komu fram og lítil stúlka sagði: „Ég vil ekki að ein- hver strjúki mér og verði góður við pjölluna mína. Mega neita að kyssa afa Sigríður Björnsdóttir, annar stofn- enda Blátt áfram, leggur áherslu á að öllum þeirra auglýsingum sé beint að fullorðnum. „Sumir hafa túlkað þetta þannig að við séum að reyna að ná til barna. Skilaboðin okkar eru að fullorðnir þurfa að fræða börnin um þeirra mörk og um snertingu og markmiðið er að börn geti sagt frá þessum hlutum,“ segir hún. Guð- rún Helga tekur undir: „Engu barni dettur í hug að segja svona ef eng- inn hefur sagt þeim að það megi tala. Það er á ábyrgð foreldra að taka þetta til sín.“ Og sumir foreldrar hafa upplifað að samtökin taki fram fyrir hendurnar á þeim þegar kemur að fræðslu til barnanna þeirra um kyn- ferðisofbeldi. „Í ljósi þess að aðeins 29% foreldra fræða börnin sín þá er sannarlega ástæða til að hreyfa við foreldrum,“ segir Sigríður. „Reyndar voru bara tveir aðilar með höfðu sam- band á sínum tíma og voru ósáttir við auglýsingarnar. Fleiri komu eða hringdu í okkur og þökkuðu okkur fyrir og lýst yfir ánægju sinni með auglýsingarnar,“ bætir hún við. Við Sigríður og Guðrún Helga sett- umst niður til að ræða áherslur sam- takanna og þá gagnrýni sem kynn- ingarefni þeirra hefur hlotið. Þær segjast vissulega kannast við að hafa hitt fólk á námskeiðum sem finnst vera of mikið um hræðsluáróður og að hvorki feður né afar geti lengur leyft sér að sýna börnum nánd og já- kvæða snertingu án þess að það sé gert tortryggilegt. Ég sýni þeim líka skrif á netinu þar sem þessu er hald- ið fram. „Það er auðvitað ekki það sem námskeiðin okkar snúast um en það væri óeðlilegt ef umræðuefnið hreyfði ekki við okkur,“ segir Guð- rún Helga. „Ég hef stundum tekið saklaust dæmi á fyrirlestrum að stundum þarf barn að kyssa alla í fjöl- skylduboði. Barnið langar kannski ekki að kyssa afa sinn, sem notar neftóbak, og finnst það ógeðslegt. Það veit hins vegar ekki að það megi neita því, og gerir því það sem því er sagt, þó því finnist það óþægilegt. Og þetta dæmi kannast fólk yfirleitt við. Það er hluti af forvörnum gegn kynferðisofbeldi að börn viti að þau megi setja mörk og að þau megi segja frá því þegar farið er yfir þau. Það er hins vegar staðreynd að 17% barna verða fyrir kynferðislegu ofbeldi og við viljum vernda þau. Við segjum hins vegar ekki að 17% karla séu ger- endur. Þeir eru miklu færri enda níð- ast flestir barnaníðingar á mörgum börnum,“ segir Guðrún Helga. Fjarlægðu efni eftir athugasemdir Annað atriði sem hefur verið gagn- rýnt er ábending sem birt var á vef- síðu Blátt áfram þar sem sagði: „Ef þú þarft að fá pössun fyrir börnin, vertu búin að baða þau og klæða þau í náttföt fyrir svefninn áður en hann/ hún mætir. Ekki gefa barnfóstru ástæðu til þess að afklæða börnin þín.“ Þær viðurkenna að þetta sé heldur harkaleg nálgun og að þessi ábending hafi verið fjarlægð fyrir um þremur vikum. „Allt okkar efni er í sífelldri endurskoðun til þess að ná betur til sem flestra. Við fengum hörð viðbrögð við þessu og fjarlægð- um það. Ef þú talar við einstakling sem hefur orðið fyrir kynferðisof- beldi sem barn þá myndi hann segja að þetta væri einmitt ein leiðin sem notuð er til að komast að börnum. Við sáum hins vegar að þessi framsetn- ing náði ekki til fólks og við þurftum bara aðeins að draga í land.“ segir Sigríður. Í bæklingnum „7 skref til vernd- ar börnum“ sem Blátt áfram gaf út var fólki leiðbeint um heilbrigð tjá- skipti við börnin sín og hvernig þau geti minnkað líkur á að þau verði fyrir kynferðisofbeldi. Þar er fjöldi ábendinga sem eru mjög rökréttar og upplýsandi en ein þeirra fannst mér stuðandi: „Byrjaðu að ræða þessi mál þegar barnið er ungt og ræddu þau oft. Notaðu hversdagslega at- burði sem kveikju að umræðum um kynferðisofbeldi.“ Þær taka undir að þetta geti misskilist enda er það ekki í anda samtakanna að hvetja fólk til að ræða opinskátt um kynferðis- ofbeldi við lítil börn. „Þú talar ekki um kynferðisofbeldi við fjögurra ára gamalt barn. Á þessum aldri ættu for- eldrar að hafa talað um einkastaðina við börnin, bara hvað þeir heita, rétt eins og aðra líkamshluta, og áfram um að þau megi setja sín eigin mörk. Þetta orðalag mætti vera skýrara,“ segir Guðrún Helga. Þegar ég spyr líka hvort ekki þurfi að skilgreina hvað er oft segir Sigríður: „Við kenn- um börnunum okkar umferðarregl- urnar, segjum þeim að passa sig á bíl- unum og muna að nota hjálm þegar þau eru að hjóla. Það gerum við oft, jafnvel daglega. Ættum við ekki ein- mitt oft að minna börnin okkar á að þau hafa rétt á að setja mörk og að þau mega segja frá öllu.“ Flest fólk er gott Í bæklingnum er einnig fjallað um hvernig foreldrar geta fækkað tæki- færum barnaníðinga og þar lögð áhersla á að „forðast að láta barnið vera eitt með einum fullorðnum að- ila.“ Ég spyr hvort þetta sé ekki til þess fallið að ala á vantrausti í garð fólks og þar að auki vart gerlegt. „Ef þú lest áfram sést að í 80% til- vika sem börn eru beitt kynferðis- ofbeldi eru þau ein með einum full- orðnum aðila og í um 90% tilvika þekkir barnið gerandann. Þannig væri það ábyrgðarleysi af okkur að taka þetta út. Okkur finnst þetta hafa verið svolítið slitið úr sam- hengi. Við erum ekki að segja að þú eigir ekki að láta barnið þitt vera eitt með einhverjum ef þú telur það vera í lagi. Þeir sem fá fræðslu hjá okkur fá mun meiri upplýsingar en eru í bæklingnum og skilja því betur hvað við erum að fara með þessu,“ segir Sigríður. „Við fjöllum líka um mikilvægi þess að geta verið eitt með börnum. Flest fólk er gott og við eigum að treysta fólki en við þurfum ekki að treysta fólki skilyrðislaust,“ segir Guðrún Helga. Blátt áfram er nú að fara af stað með nýja auglýsingaherferð sem er með öðru sniði en áður. Auglýsing- arnar verða í blöðum og skjáaug- lýsingar í sjónvarpi. Þar er sýnd krítarmynd af hamingjusamri fjöl- skyldu og yfirskriftin er. „Verum upplýst – verndum börnin okkar.“ Þá er því beint til fullorðinna að þeir beri ábyrgð á börnunum og settar fram tölur um þann fjölda fólks sem hefur fengið fræðslu á vegum Blátt áfram á síðasta ári. Auglýsingarnar eru mun almenn- ari en fyrri auglýsingar samtak- anna og mér þykja þær til marks um einhvers konar stefnubreyt- ingu þegar kemur að kynningar- málum. „Við erum í raun bara að minna á okkur, hvað við erum að gera og hvað hefur áunnist. Um 35 þúsund manns hafa fengið fræðslu hjá Blátt áfram frá upphafi. Sam- tökin verða 10 ára á næsta ári og við værum ekki starfandi nema vegna þess fjölda sem óskar eftir fræðslu og námskeiðum. Skólar, foreldrafélög og jafnvel heilu sveit- arfélögin hafa fengið fræðslu hjá okkur ár eftir ár. Við værum ekki til ef fólk hefði ekki trú á því sem við erum búin gera,“ segir Sig- ríður. Hún og Svava systir hennar stofnuðu Blátt áfram en báðar eru þær þolendur kynferðisofbeldis. „Líklega hafa um 60 manns farið á leiðbeinendanámskeið hjá okkur en það eru færri en tíu sem eru starfandi. Þetta eru leikskólakenn- arar, námsráðgjafar, sálfræðingur og félagsráðgjafar – allt fagfólk. Fæstir leiðbeinendanna eru þol- endur. Áhersla okkar er að vinna faglega og vinna með fólki sem þekkir vel til málaflokksins,“ segir Sigríður. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Frábærar McCain franskar á 5 mínútum Franskar kartöflur í sérflokki sem þú töfrar fram á augabragði. Einföld og fljótleg matreiðsla og algjör sæla fyrir bragðlaukana. Prófaðu núna! Samtökin Blátt áfram eru að fara af stað með nýja auglýs- ingaherferð með öllu mildari áherslum en áður. Sumir hafa gagnrýnt samtökin fyrir opin- skátt fræðsluefni og segja forsvarsmenn að þau taki fagnandi ábendingum sem geta bætt framsetninguna. Hins vegar sé nauðsynlegt að hreyfa við fólki og minna fullorðna á þá skyldu sína að vernda börn fyrir kynferðis- ofbeldi. Blátt áfram bregst við gagnrýni Sigríður Björnsdóttir og Guðrún Helga Bjarnadóttir hjá Blátt áfram segja mikilvægt að fræða börn um að þau mega setja mörk og að þau mega segja frá öllu. Ljósmynd/Hari Þú talar ekki um kyn- ferðisofbeldi við fjögurra ára gamalt barn.  SamfÉlagSmál Um 35 þúSUnd mannS hafa Sótt fræðSlU hjá Blátt áfram 10 fréttaviðtal Helgin 22.-24. nóvember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.