Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.11.2013, Qupperneq 21

Fréttatíminn - 22.11.2013, Qupperneq 21
2 AF HVERJUM 5 HAFA SAFNAÐ FYRIR FERÐALAGI STEFNIR - SAMVAL STEFNIR – SAMVAL VERÐÞRÓUN 100 1 9 9 6 1 9 9 7 1 9 9 8 1 9 9 9 2 0 0 0 2 0 0 1 2 0 0 2 2 0 0 3 2 0 0 4 2 0 0 5 2 0 0 6 2 0 0 7 2 0 0 9 2 0 1 0 2 0 1 1 2 0 1 2 2 0 1 3 2 0 0 8 200 300 400 500 600 700 800 ÁRLEG NAFNÁVÖXTUN Blandaður fjárfestingarsjóður sem nýtir þau fjárfestingartækifæri sem rekstraraðili telur best á markaði hverju sinni. Virk eignastýring í skuldabréfum, hlutabréfum og sérhæfðum fjárfestingum í einum sjóði. Góður kostur í langtímasparnaði, laus með þriggja daga fyrirvara. Hægt að spara í sjóðnum frá 5.000 kr. á mánuði. Frá stofnun 01.11.1996 - 31.10.2013 Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjár- málafyrirtæki sem rekur innlenda og alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingar- sjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstak- linga og fagfjárfesta. Verðbréfaþjón- usta Arion banka er söluaðili sjóða Stefnis. Ávöxtunartölur eru fengnar hjá Stefni hf. Árangur í fortíð er ekki örugg vísbending eða trygging fyrir árangri í framtíð. Vakin er athygli á að fjárfesting í hlut- deildarskírteinum sjóða er áhættusöm og getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á.m. nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildar- skírteinum hans og fjárfestingarstefnu má finna í útboðslýsingu, og í útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins sem nálgast má á arionbanki.is/sjodir. ÞÚ GETUR KEYPT Í SJÓÐNUM: Í síma 444 7000 Í netbanka Arion banka Í næsta útibúi Arion banka 1 ár 31.10.2012-31.10.2013 2 ár 31.10.2011-31.10.2013 3 ár 31.10.2010-31.10.2013 4 ár 31.10.2009-31.10.2013 5 ár 31.10.2008-31.10.2013 Samkvæmt sparnaðarkönnun Capacent og Arion banka H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 3 -2 3 1 6 16,5% 5% 10% 15% 20% 3 á r 12,3% 5 á r 15,1% 4 á r 2 á r 18,8% 21,9% 1 á r Þegar ég svara er kona á hinni línunni sem talar mitt tungumál og spyr um mig með nafni. konan er með skurðáhöld og ég hugsa með mér að þau ætli að skera mig upp og mér finnst ég vera að deyja. Ég finn að höfuðið á barninu er að koma út en svo missi ég meðvitund í stutta stund. Það næsta sem ég sé eru pínulitlir fætur og blóð út um allt. Þau taka svo barnið, ég sé það ekki en heyri að það grætur. Gráturinn er samt ekki kröftugur heldur minnir mig á lítið mjálm. Við mér blasir stór klukka og ég sé að klukkan er sex. Þau segja mér að barnið sé fætt fyrir tímann og þar sem ég ligg í móki koma þau með ein- hverja pappíra sem þau segja mér að skrifa undir svo þau geti læknað barnið. Ég veit ekkert hvað stóð þarna en ég skrifaði undir. Því næst fæ ég sprautu í handlegginn og ég sofna. Þegar ég vakna aftur er ég komin á aðra sjúkrastofu með öðrum konum sem eru með blá og bleik armbönd um úlnliðina. Ég spyr um barnið mitt en fæ bara óljós svör um að það hafi verið fætt fyrir tímann. „Hvar er barnið mitt?“ spyr ég ótta- slegin og allt í einu verður mér hugsað til þess að ég hef heyrt sögur um að börnum sé stolið og þau seld. Ég fékk síðan fleiri sprautur og var ekki með mikinn mátt. Ég man samt að ég heyrði mann konunnar sem lá við hliðina á mér segja að þau yrðu að hjálpa mér því ég væri svo veik. Svo sofnaði ég.“ Ranka fær að heyra að barnið hennar sé veikt en hún fær aldrei að sjá það. Hún vaknar eitt sinn upp úr mókinu við að verið er að pumpa mjólk úr brjóstunum hennar. Hún nær ekki að opna augun en heyrir konu segja „100 millilítrar eru alveg nóg.“ Blóði drifin slóð „Einn daginn ákveð ég að bíða eftir myrkrinu, slít af mér allar nálar og slöngur og haltra fram að vöggustofunni. Blóð lak nið- ur á gólfið og ég skildi eftir mig blóðslóð en mér var alveg sama. Ég veit varla hvernig ég hafði orku til að fara á fætur. Ég fann loks vöggustofuna og sé þar börn með bleik og blá armbönd. Mér sýnist ég sjá einn dreng með svart hár sem er ekki með armband en kannski var mér að missýnast. Hann var pínu- lítill og ég hugsaði með mér: „Kannski er þetta mitt barn?“ Þá kemur ljósmóðir auga á mig og húðskammar mig. Hún öskr- ar á mig og önnur kemur með sprautu og stingur sprautunni beint í gegn um fötin.“ Móðir Rönku hafði ekki heyrt frá henni í lengri tíma enda símasambandslaust við Sarajevo og fór að ókyrrast. Hún fer, ásamt Bosko bróður Rönku, til Jagodínu. „Mamma kom og þau byrjuðu þá á að lýsa því yfir að barnið hafi verið fyr- irburi og það sé dáið. Mamma vildi fá að sjá barnið en hún fékk það ekki. Líklega hafa þau ekki reiknað með því að neinn myndi koma til mín því ég var alltaf ein. Mamma reyndi að fá svör en starfsfólk sjúkrahússins var mjög missaga. Á endanum fór hún með mig í burtu.“ Ranka fékk aldrei að sjá barnið sitt og hefur áfallið við að missa barnið, auk minning- anna um hrylling stríðsins, haft mikil áhrif á hana. Hryllingur stríðsins hafði líka mikil áhrif á konu á Bolungarvík sem horfði á umfjöllun Kastljóss árið 1997 um aðstæður flóttafólks í Serb- íu. Ingibjörg Vagnsdóttir horfði á þegar Ranka lýsti grátandi neyð sinni og ákveður hún að bjarga Rönku. Hún lætur ekki Ranka og Zdravko hröktust til Bel- grad þar sem þau voru flóttamenn. Hér sjást mótmæli í borginni á stríðstímum. Framhald á næstu opnu viðtal 21 Helgin 22.-24. nóvember 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.