Fréttatíminn - 22.11.2013, Side 28
sem við höfðum meðferðis renna
til á siglínunum. Hér máttu engin
mistök eiga sér stað hvað varðaði
línur og annan búnað. Ein slík
gætu orðið mjög afdrifarík.“
Sveinn Friðrik Sveinsson stóð
skammt frá Ásgeiri:
„Þegar við vorum að hífa eða
slaka þurfti að breyta línukerfinu
í hvert einasta skipti. Hér var
mikilvægt að vera með þaul-
reynda menn á línunum. Þeir
urðu að vera tilbúnir hvenær sem
var, nákvæmir og eldsnöggir að
bregðast við.“
Fallhæðin svaraði til átta
hæða húss
Þórður Guðnason og félagar hans
frá Akranesi og úr Borgarfirði
fylgdust með því sem gerðist
uppi við brúnina:
„Búið var að setja upp sig- og
öryggislínu fyrir einn mann sem
var nýfarinn niður. Freyr Ingi
Björnsson stjórnaði Reykjavíkur-
mönnunum. Kolbeinn Guð-
mundsson hafði sigið niður en
með Frey uppi voru Sveinn Frið-
rik Sveinsson og Ásgeir Guðjóns-
son. Freyr sagði okkur að maður
úr hópi jeppafólksins væri einnig
niðri í sprungunni. Það væru
kona og barn sem hefðu fallið
niður. Ég vissi ekki strax að mað-
urinn úr jeppahópnum hefði sigið
niður á jeppastroffu, taldi fyrst að
hann hefði fallið á eftir konunni
og barninu. En það hafði verið
sett lykkja um brjóst hans, bund-
ið við axlirnar á honum og hann
látinn síga um fimmtán metra
niður. Ég hélt fyrst að aðgerðin
yrði flóknari vegna jeppamanns-
ins. Það þyrfti kannski að bjarga
aukamanni. En svo fékk ég að
vita að þessi maður, Hlynur, hefði
gert ómetanlegt gagn með því að
tala við drenginn og styðja hann
þannig.
Farið var að gera ráðstafanir til
að senda annan sigmann niður.
Ég kallaði á nærstaddan mann
úr jeppahópnum og bað hann að
leggja bílnum sínum skáhallt að
sprungunni. Hann gerði eins og
ég bað hann um. Við festum eina
aðallínu fyrir sigmann í jeppann
og aðra öryggislínu. Bíllinn var
rétt staðsettur, í parki og hand-
bremsu.“
Niðri á 22-23 metra dýpi var
Kolbeinn að reyna að átta sig á
því hvað hægt væri að gera við
þessar hrikalega erfiðu aðstæð-
ur. Upp á brún svaraði hæðin til
átta hæða húss. Frá fótum Kol-
beins og niður að mæðginunum
voru um tveir metrar:
„Við björgunarsveitarmenn
höfðum oft æft við mjög erfið
skilyrði, en aldrei við neitt þessu
líkt. Þetta voru einstaklega
snúnar aðstæður. Ég bar vissu-
lega fullt traust til strákanna
Björgunarmenn frá slysinu á
Langjökli og feðgarnir þegar
þeir hittust í síðustu viku. Frá
vinstri Freyr Ingi Björnsson,
Reykjavík, Þórður Guðnason,
Akranesi, Jón Örvar Krist-
insson, þyrlulæknir, Sveinn
Friðrik Sveinsson, Reykjavík,
faðirinn, Kristján Gunnarsson,
Kolbeinn Guðmundsson, Hafn-
arfirði, Ásgeir Guðjónsson,
Hafnarfirði, og Sigurður Axel
Axelsson, Akranesi – fremstur
er drengurinn sem björgunar-
sveitarmennirnir björguðu –
Gunnar Kristjánsson. Faðirinn
segir það komast kraftaverki
næst að sonur hans skyldi
hafa lifað slysið af.
Blátt áfram • Fákafen 9, 108 Reykjavík • Sími 533 2929 • blattafram@blattafram.is • blattafram.is
Verum upplýst
-verndum börnin okkar!
Fullorðnir bera ábyrgð á börnum sínum og hafa samtökin
Blátt áfram lagt mest upp úr því að fræða þá. Fræðslan
fer fram í leik- og grunnskólum landsins í formi fyrirlestra
og námskeiðs sem nefnist Verndarar barna.
Samtökin hafa það að markmiði að fræða fullorðna
um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og hvernig megi
fyrirbyggja það.
Sveinn Friðrik Sveinsson, undanfari og
björgunarsveitarmaður úr Reykjavík,
á leið á slysstað á Langjökli um borð
í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hægra
megin er Freyr Ingi Björnsson, sem var
stjórnandi á vettvangi, en á milli þeirra
er Helgi Rafnsson flugvirki.
28 bækur Helgin 22.-24. nóvember 2013