Fréttatíminn - 22.11.2013, Side 42
LC-4X
99.900 Kr
LC-2
49.900 Kr
C-4X
.900 Kr
LC-2
49.900 Kr
LC-4X
99.900 Kr
LC-2
49.900 Kr
Teflt á hjara veraldar
Á síðustu árum hafa Hróksmenn ekki síst
lagt áherslu á að heimsækja afskekkt og fá-
menn þorp og koma oftar en ekki í myrkasta
skammdeginu með skák og gleði í fartesk-
inu.
„Við höfum undanfarin ár einbeitt okkur að
austurströnd Grænlands, en þar eru afskekkt-
ustu þorp norðurslóða og um leið allra næstu
nágrannar Íslendinga. Fæstir gera sér grein
fyrir því að næsta byggða ból við Ísland heitir
Kulusuk. Fólkið á austurströnd Grænlands
stendur okkur næst, bókstaflega. Við höfum
líka um hverja páska í átta ár haldið mikla hátíð
í Ittoqqortoormiit við Scoresby-sund, sem er
800 kílómetrum norðar en Kulusuk. Driffjöður
bak við það starf og væntanlegur heiðurs-
borgari þar í bæ er Arnar Valgeirsson, sem hélt
kyndlinum logandi meðan ég bjó á Ströndum
norður,“ segir Hrafn sem heldur á mánudaginn
af stað til Upernavik á 73. breiddargráðu. Hrók-
urinn hefur ekki komið þangað áður og Hrafn
segir engan fara þangað. Allra síst á veturna.
Kjarnakonur koma til hjálpar
Hrafn minnir á að hann er ekki einn um
skáklandnámið á Grænlandi og að fjöldi fólks
hafi komið að málum síðasta áratuginn og gert
Hróknum kleift að lyfta tilveru grænlenskra
barna með tafli og almennri gleði.
„Við gætum troðfyllt heilt blað með lista yfir
alla þá sem lagt hafa okkur lið, með einum eða
öðrum hætti. En helminginn af öllu sem Hrók-
urinn hefur gert á minn óbilandi félagi Róbert
Lagerman. Við höfum varið algjörlega óteljandi
stundum í að skipuleggja, ráðgera, undirbúa og
framkvæma það sem mörgum hefur kannski
fundist langsótt eða fráleitt í fyrstu,“ segir
Hrafn en hann og Róbert stofnuðu Hrókinn á
Grand Rokk, sáluga, fyrir margt löngu.
„Ég verð líka að nefna tvær kjarnakonur, sem
gegnt hafa algjöru lykilhlutverki í skákland-
náminu og trúboði vináttu og samvinnu Íslands
og Grænlands. Benedikte Thorsteinsson var
formaður Kalak, vinafélags Íslands og Græn-
lands, þegar ég fékk þessa dásamlegu flugu í
höfuðið. Hún er fyrrverandi ráðherra á Græn-
landi, gift kraftaverkamanninum Guðmundi
Þorsteinssyni handboltakappa, og hefur unnið
ótrúlegt starf í þágu beggja þjóða. Og síðan
er það heiðursforsetinn okkar í Hróknum,
Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, ekkja
Jonathans Motzfeldt, landsföður Grænlendinga
og forsætisráðherra þeirra í sautján ár. Fyrsta
skákin sem ég tefldi á Grænlandi var við Jonat-
han og það er einstakur heiður að hafa kynnst
þeim merka manni örlítið. Hann studdi við starf
okkar frá upphafi. Kristjana er sá Íslendingur
sem allra best þekkir til á Grænlandi, óþrjót-
andi að orku og hugsjónum, og drífur okkur
félagana áfram.“
Efnahagslegt stórveldi í framtíðinni
Grænland var ekki í brennidepli upp úr alda-
mótum þegar Hrafn tók stefnuna þangað með
Hrókinn. Nú er hins vegar litið til Grænlands
sem þess lands sem býður upp á ótal möguleika
á norðurslóðum og allar þær auðlindir sem
liggja undir ísnum og geta gerbreytt kjörum
landsmanna. Við þær aðstæður segir Hrafn
Grænlendingum ekki síst mikilvægt að eiga
góða vini í Íslendingum.
„Engin þjóð í heiminum er jafn heppin með
nágranna og við. Grænland er stórkostlegur
og heillandi ævintýraheimur og þar býr undur-
samleg þjóð. Grænlendingar horfa mjög til Ís-
lendinga, ekki síst í sjálfstæðismálum, og þeir
líta á okkur sem vini og samherja sem þeir geta
treyst. Það er mjög mikilvægt að við rísum undir
því trausti, og eflum og styrkjum vináttuböndin á
öllum sviðum. Nú horfa margir ágirndaraugum
á hinar stórkostlegu auðlindir sem Grænland býr
yfir, og þangað streyma erlendar sendinefndir
með allskonar gylliboð. Það er sem sagt að renna
upp fyrir mörgum að þetta gleymda og fátæka
land hefur alla burði til að verða efnahagslegt
stórveldi í framtíðinni. Grænland er land fram-
tíðarinnar, og litla Ísland má heita heppið að kúra
í krikanum á risanum mikla í norðri.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Sigurlaug Jóhannsdóttir og Jónatan heitinn Motzfeldt takast í hendur eftir fjöruga
skák, sem grænlenski þingforsetinn vann.
Hrafn Jökulsson og Aleqa Hammond, forsætisráðherra Grænlands. Myndin var tekin
í nóvember þegar Hrafn og Róbert færðu Alequ selskinn úr Árneshreppi á Strönd-
um. Frumkvæði að gjöfinni átti Kristjana G. Motzfeldt, heiðursforseti Hróksins.
Okkur er ævinlega
tekið fagnandi.
Grænlendingar líta
á Íslendinga sem
samherja og vini.
Börnin alist ekki
upp í fátækt
Aleqa Hammond, forsætisráðherra
Grænlands, hefur stutt Hrókinn með
ráðum og dáð á Grænlandi og Hrafn
fer ekki leynt með aðdáun sína á
henni. „Hún er einhver merkilegasti
stjórnmálamaður sem ég hef kynnst,
veiðimannsdóttir frá Norður-Græn-
landi, leiftrandi gáfuð, brimandi af
hugsjónum og frábær leiðtogi. Hún
hefur sagt skýrt og skorinort að hennar
hlutverk sé að sjá til þess að börn á
Grænlandi framtíðarinnar alist ekki
upp í fátækt. Aleqa Hammond leggur
mikla áherslu á að Grænland og Ísland
eigi samleið, og hún styður fagnaðar-
erindi skákarinnar, vináttunnar og
gleðinnar með ráðum og dáð.“
42 viðtal Helgin 22.-24. nóvember 2013