Fréttatíminn - 22.11.2013, Síða 44
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Konunglegir dagar í Hvíta húsinu
Í dag, föstudag, er hálf öld liðin frá
morði John F. Kennedy Bandaríkjafor-
seta. Sá atburður skók heimsbyggðina
og telst tvímælalaust til hinna stærstu
á liðinni öld. Þegar slíkt gerist man
fólk það gjarna hvar það var statt.
Ég var ellefu ára þegar Kennedy var
skotinn í Dallas og man vissulega
hvar ég var staddur er tíðindin bárust,
í strákahópi í grennd við æskuheimili
mitt. Jafnvel guttar eins og við, sem
veltum ekki mikið fyrir okkur gangi
heimsmála, áttuðum okkur á hvílík
tíðindi þetta voru.
Um John F. Kennedy og fjölskyldu
hans lék ævintýraljómi. Hann tók við
forsetaembættinu í janúar 1961 eftir
nauman sigur yfir Nixon, þáverandi
varaforseta. Kennedy var ungur og
myndarlegur, nánast eins og kvik-
myndastjarna og honum fylgdi í Hvíta
húsið eiginkonan glæsilega, Jacquel-
ine. Það var mikil breyting frá fyrri
tíð að börn forsetahjónanna léku sér
á göngum Hvíta hússins en dóttirin,
Caroline var þriggja ára þegar faðir
hennar var kjörinn og sonurinn og
nafni forsetans fæddist árið 1960,
nokkrum vikum eftir forsetakosning-
arnar. Heimsbyggðin fylgdist einnig
með því þegar forsetafrúin gekk með
barn og ekki síður sorg hjónanna þeg-
ar barnið, sonur sem var gefið nafnið
Patrick, lést stuttu eftir fæðingu í
ágúst 1963.
Ljóminn yfir forsetahjónunum
glæsilegu yfirskyggði allt annað fyrir-
fólk í heiminum. Það var nánast eins
og Bandaríkjamenn
hefðu eignast
konungsfjölskyldu
þar sem Kennedy-
arnir voru. Það átti ekki
aðeins við um forseta-
hjónin heldur stór-
fjölskylduna alla.
Joe Kennedy,
faðir forset-
ans, átti sér
snemma þá von
að elsti bróðirinn, Joseph P. Kennedy
kæmist í Hvíta húsið en hann féll í
seinni heimstyrjöldinni. John F. tók
því við keflinu og náði í mark. Yngri
bræður forsetans – og fjölskyldur
þeirra – voru einnig mjög áberandi
en Robert Kennedy varð dómsmála-
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800 • OPIÐ: Virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.00–16.00
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100 • Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
Nature‘s Rest heilsurúm
n Mjúkt og
slitsterkt áklæði
n Svæðaskipt
gormakerfi
n Frábærar
kantstyrkingar
n Aldrei
að snúa
n Sterkur
botn
n Burstaðar
stál lappir
Dýna, botn
og lappir
•
StæRð 120x200
Aðeins kr.
7.056
í 12 mánuði*
n 320 gormar
pr fm2
Heilsurúm
verð
FrÁBÆrT
Jazz hægindastóll Silo svefnsófi með tungu
Nature‘s Comfort heilsurúm
n Mjúkt og slitsterkt áklæði
n Svæðaskipt poka gormakerfi
n Heilsu- og hæg inda lag í yfir-
dýnu sem hægt er að taka af
n Steyptar kant styrk ingar
n Aldrei að snúa
n Sterkur botn
n Burstaðar stállappir
Dýna, botn
og lappir
•
StæRð 160x200
Aðeins kr.
13.094
í 12 mánuði*
* a
fb
or
gu
n
pr
. m
án
. í
1
2
m
án
. V
ax
ta
la
us
t l
án
. 3
,5
%
lá
nt
ök
ug
j.
Gæði á Dorma-verði!
Aðeins
120x200
79.900
Aðeins
160x200
149.900
Aðeins
DormAverð
95.900
Jazz -
hæginda stóll
með skemli.
Fæst í
koníaks brúnu,
svörtu,dökk
brúnu og
kremuðu leðri.
* a
fb
or
gu
n
pr
. m
án
. í
1
2
m
án
. V
ax
ta
la
us
t l
án
. 3
,5
%
lá
nt
ök
ug
j.
MIaMI svefn-tungusófi
Fullt verð krónur 169.900
Stærð: 240x90 Tunga: 225 Hæð: 90 cm.
Grátt slitsterkt áklæði. Rúmfatageymsla í tungunni.
Stærð: 228 x 162 cm. H. 83 cm. Dökkgrátt áklæði
tunga getur verið beggja vegna. Rúmfatageymsla.
JólATilBoð
119.900
FullTverð kr.
139.900
JólATilBoð
149.900
FullTverð kr.
169.900
sveFnsóFi
verð
FrÁBÆrT
ráðherra í stjórn stóra bróður
og Edward var lengi öldung-
ardeildarþingmaður.
Robert féll fyrir
morðingjahendi 1968
þegar hann keppti að
tilnefningu flokksins
til embættis forseta.
Atburður í einkalífi
Edwards árið 1969 átti
einnig eftir að draga
dilk á eftir sér en ung
kona lét lífið í bíl sem hann
ók en þingmaðurinn yfirgaf vettvang
slyssins án þess að tilkynna um það. Þessi
atburður skaðað orðspor hins áhrifamikla
stjórnmálamanns og kom í raun í veg fyrir
að hann gæti af fullum krafti keppt um
forsetaembættið.
Allt líf Kennedy-fjölskyldunnar var því
dramatískt og það drama hélt með ýmsum
hætti áfram löngu eftir dauða forsetans.
Ekkjan giftist Aristotle Onassis, grískum
skipakóngi, og var eitt helsta viðfang
slúðurblaða um allan heim í kjölfar þess en
Onassis sleit sambandi sínu við óperudív-
una frægu, Mariu Callas, er hann giftist
ekkju forsetans. Ógæfan fylgdi Kennedy-
fjölskyldunni hins vegar áfram og sýndi
sig enn og aftur er John, sonur forsetans,
fórst árið 1999 með konu sinni í lítilli flug-
vél sem hann flaug sjálfur.
Ekkert af þessu sáum við strákarnir
fyrir þegar tíðindin bárust um morðið á
Kennedy Bandaríkjaforseta 22. nóvember
1963. Við höfðum bara fylgst með aðdáun
fullorðna fólksins á þessari mögnuðu
fjölskyldu í Hvíta húsinu og sáum áhrif
hennar berast til landsins langt í norðri,
þegar mæður okkar komu úr lagningu
með sömu hárgreiðslu og þær höfðu séð á
Jackie forsetafrú í lit dönsku blöðunum –
og kannski í svart-hvítu í Mogganum.
„Hvað verður nú um Jacqueline og börn-
in?“ var haft eftir skólastjóranum í bók
Péturs Gunnarssonar og víst er að margir
hafa hugsað hið sama þótt menn hafi varla
haft áhyggjur af því að ekkjan og börnin
færu á vergang. Fjárhagsstaða þeirra var
víst trygg þótt Jackie hafi þurft Onassis
karlinn til þess að halda uppi bærilegum
standard – svona þegar frá leið.
Við strákarnir höfðum heldur enga
hugmynd um að Kennedy forseti var ekki
við eina fjölina felldur í kvennamálum,
svo vægt sé til orða tekið. Okkur hefði svo
sem verið slétt sama – að minnsta kosti
ekki gert athugasemdir við það að hann
eyddi helgi með sjálfri Marilyn Monroe.
Samt hefði okkur þótt skrýtið, ungir
sem við vorum, hefði einhver haft fyrir
því að segja okkur af spjalli forsetans við
breska forsætisráðherrann sem ku hafa
verið eitthvað á þessa leið: „Ég veit ekki
hvernig það er með þig, Harold [Mac-
millan], en ég fæ hræðilegan höfuðverk
ef þrír dagar líða án þess að ég sé með
konu.“ Forsetinn stundaði því mikið við-
hald á árum sínum í Hvíta húsinu, án þess
að það tengdist viðgerðum í því mikla
húsi. Samkvæmt seinni tíma heimildum
voru margar konur á þeim lista, jafnvel
einkaritari eiginkonunnar.
Þetta líferni forsetans var þó ekki í
hámæli þegar ótíðindin bárust heims-
byggðinni fyrir hálfri öld. Menn sáu bara
og heyrðu, meðal annars í svart-hvítu
kanasjónvarpinu, að foringinn var fallinn,
glæsimennið sjálft. Við tók varaforsetinn,
Lyndon B. Johnson, svipljótur og gamall.
Hinn konunglegi tími í Hvíta húsinu var
liðinn. Það datt engri íslenskri konu í hug
að fylgja hártísku Lady Bird Johnson.
Enginn bandarískur forseti hefur náð
þessari stöðu síðan. Barack og Michelle
Obama, núverandi forsetahjón, komast
næst því. Þau voru ung þegar þau komu
í Hvíta húsið, með tvær stelpur – og það
er að sönnu stíll yfir forsetafrúnni. Samt
er það ekki sami glamúrinn og var þegar
John F. Kennedy var og hét með Jackie
við hlið sér. Ólíklegt er enn fremur að
Bandaríkjaforseti í samtímanum kæmist
upp með svipaða hegðun og Kennedy
fyrir hálfri öld. Öll munum við hvernig fór
fyrir Bill Clinton karlinum þegar hann tók
framhjá kerlu sinni með Móníku, sem svo
sannarlega var engin Marilyn. Hann rétt
lafði í embættinu en það var komið kusk
á hvítflibbann – eða öllu heldur líf-sýni á
bláa kjólinn – en það er önnur saga.
44 viðhorf Helgin 22.-24. nóvember 2013