Fréttatíminn - 22.11.2013, Side 47
LjóturAuður &
Auður og Ljótur kynntust í Búðardal. Þau eru mjög
sérstakt par. Auður, ljós yfirlitum, mild og góð en Ljótur
er tja … ljótur. Hann er með mikinn karakter. Frekar þurr
á manninn en samt ljúfur. Þau eiga rosalega vel saman.
Ef til væri parakeppni osta væru þau sigurstrangleg.
Auður og Ljótur - ólíklega parið frá Búðardal.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2-
10
86
S tarfsmaður UNICEF á Filippseyjum, Kent Page, var í Tacloban
ásamt fleira starfsfólki UNI-
CEF. Fellibylurinn jafnaði
þennan 200.000 manna bæ
nánast við jörðu og hefur bær-
inn verið áberandi í umfjöllun
fjölmiðla um hamfarirnar á
Filippseyjum. Page skrifaði
um það sem fyrir augu bar á
leiðinni milli þorpa og bæja
sem fellibylurinn reið yfir.
„Fólkið í Tacloban og á
öllum þeim svæðum þar sem
fellibylurinn skall á þarf alla
þá hjálp sem það getur fengið.
Börnin eru sérstaklega ber-
skjölduð. Þau þurfa allan
okkar stuðning,“ segir Page.
„Eflaust hafa færri heyrt
um bæinn Tanauan, 50.000
manna bæ um 30 kílómetra
suður af Tacloban. Á allri
leiðinni komum við ekki auga
á einn einasta sentimetra sem
ekki hafði orðið fellibylnum
að bráð. Eyðileggingin er
gríðarleg. Að meta aðstæður
og umfang vandans er erfitt.
En á sama hátt er það ekki
flókið. Margt af þessu fólki
hefur misst allt. Það þarf allt,“
segir hann.
„Ráðhúsið í Tanuan er nú
notað sem sjúkraskýli. Við
fluttum yfir 100 segldúka í
sjúkraskýlið til að skapa skjól,
bæði fyrir kröftugri rigning-
unni og steikjandi sólinni. Að
auki voru hreinlætispakkar
fluttir í sjúkraskýlið en eftir
því sem líður á eykst áhættan
á að sjúkdómar brjótist út.“
„Ég hef starfað með UNI-
CEF við neyðarhjálp um allan
heim. Þó svo að erfitt sé að
bera saman staði þar sem
neyðarástand skapast er eyði-
leggingin á mörgum svæðum
á Filippseyjum nú þess eðlis
að erfitt er að gera sér fylli-
lega grein fyrir umfangi henn-
ar. Hún er allsstaðar. Hún er
algjör. Líkpokarnir eru bornir
upp á flutningabíla þegar brak
er hreinsað í burtu. Lyktin er
yfirþyrmandi sterk.“
„En það er von. Það sjáum
við best á brosi barnanna í
kringum okkur. Við vitum
að með því að hlúa að þeim
á þessum erfiðu tímum
byggjum við upp þrautseigju
þeirra, fjölskyldna þeirra og
samfélaga. Þörfin er gríðarleg
hér í Tanauan, í Tacloban og á
ótal stöðum í landinu. Hjálpar-
starfið er að skila árangri.
Um helgina fengu allir íbúar
Tacloban aftur aðgang að
hreinu vatni. Við vonumst til
að geta sagt fleiri góðar fréttir
sem fyrst.“
UNICEF, Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna, hóf þegar
neyðarsöfnun um allan heim
fyrir börn á Filippseyjum.
Þremur dögum eftir að
fellibylurinn reið yfir byrjaði
UNICEF á Íslandi að safna
fyrir neyðaraðgerðum og
óhætt er að segja að söfn-
unin hafi vakið sterk við-
brögð. Ótal einstaklingar og
fyrirtæki hafa lagt söfnuninni
lið og greinilegt að fólk á Ís-
landi lætur sig málið varða
og vill leggja sitt af mörkum.
UNICEF leggur áherslu á að
tryggja hreint vatn, hreinlæt-
isaðstöðu og heilsugæslu en
einnig að sinna barnavernd og
veita börnum sem orðið hafa
viðskila við fjölskyldur sínar
vernd og skjól.
Hægt er að styrkja söfn-
unina með því að senda sms-
ið BARN í númerið 1900
(1900 krónur). Enn fremur
má leggja frjáls framlög til
neyðarsöfnunarinnar inn á
reikning 701-26-102040 kt.
481203-2850.
Móðir grætur með barninu sínu á meðan þau bíða eftir að vera flutt frá hamfara-
svæðinu.
Mæðgurnar á myndinni hafast nú við í einu af 13 neyðarskýlum í borginni Tacloban á
Filippseyjum.
útlönd 47 Helgin 22.-24. nóvember 2013