Fréttatíminn - 22.11.2013, Síða 76
76 bækur Helgin 22.-24. nóvember 2013
Bókadómur Hlustað
Góður ljóðafélaGsskapur
Bækur sif siGmarsdóttir skrifaði framtíðartrylli
s if Sigmarsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir unglingabækur sínar um dramadrottninguna en í sinni nýj-
ustu bók skiptir hún heldur betur um gír.
Múrinn er fyrsta bókin í flokki sem Sif
kallar Freyju sögu og þar gengur á miklu
í ævintýri sem hún segir nokkuð í anda
Hungurleikanna.
„Það er mikið aksjón í gangi í Múrnum.
Þetta er drungaleg fantasía, dálítið í anda
Hungurleikanna. Fyrsta bókin í flokkn-
um Freyju saga og hún endar á spennandi
stað þannig að það kemur í það minnsta
ein bók í viðbót.“
Sif segir söguna gerast í fjarlægri fram-
tíð í borginni Dónol sem er lokuð af innan
múrveggja lengst upp á hálendi Íslands.
„Aðalsöguhetjan er Freyja, fjórtán ára
stelpa, sem býr þar hjá ömmu sinni. Hún
heldur að hún sé ósköp venjuleg stelpa en
þegar dularfullir atburðir fara að gerast
kemur í ljós að það er ekkert hversdags-
legt við hana Freyju.“
Sif hefur um árabil skrifað pistla í
Fréttablaðið er færði sig nýlega yfir í
Morgunútvarp Rásar 2. „Ég fæ innblástur
víða að. Ég hef mikinn áhuga á þjóðmál-
um og pólitík og það eru til dæmis ófáir
stjórnmálamenn sem ég hef stolið ýmsu
frá í Múrnum,“ segir Sif og segir að út-
lits- og persónueinkenni ýmissa persóna
gætu verið kunnugleg. „En ætli það sé
ekki best að segja sem minnst um það
og leyfa lesendum að sjá hvort þeir þekki
einhverja þarna.“
Sif býr í London og hefur búið í Bret-
landi síðustu tólf árin. „Ég fór þangað
fyrst í nám og er bara ekki búin að flytja
til baka ennþá.“
Hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir
þremur mánuðum og ákvað að fæða í
London þótt margir legðu hart að henni
að koma heim og eignast barnið í „besta
heilbrigðiskerfi í heimi“. „Hún er þriggja
mánaða þannig að maður er með nokkra
bolta á lofti og maður er að reyna að
missa ekki neinn. Vonum að minnsta
kosti að það verði ekki barnið sem ég
missi,“ segir Sif og hlær.
„Við ákváðum að eignast hana úti og
það gekk bara ágætlega og við vorum al-
veg hrifin af kerfinu þar. Það er skemmti-
legt frá því að segja að þar sem London er
fjölmenningarborg komu ljósmæðurnar á
spítalanum víða að. Ég sagði þeim að hún
ætti að heita Urður eftir norn úr norrænu
goðafræðinni. Flestum leist ágætlega á
það nema einni ljósmóður sem kemur frá
Síerra Leóne. Hana hryllti svo við nafni
barnsins að ég hef aldrei séð annan eins
svip og óttaðist bara hreinlega að hún
myndi hringja í barnaverndaryfirvöld.
Henni leist svo rosalega illa á að barnið
yrði skírt í höfuðið á norn. Þannig að
nornir í Síerra Leóne eru kannski ekki
jafn vel liðnar og á Íslandi.“
Sif segir næstu bók vera í vinnslu í
hausnum á sér. „Ég var í rauninni búin að
leggja ákveðin drög um leið og ég skrif-
aði fyrstu bókina og núna er ég að berjast
við að finna tíma til að skrifa fyrstu setn-
inguna í bók númer tvö þannig að það fer
að koma að því.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Nefndi dóttur sína eftir norn
Alþjóðlega glæpasagnahátíðin Iceland Noir hófst í Reykjavík
á fimmtudaginn. Um þrjátíu rithöfundar og þýðendur
taka þátt í hátíðinni, þar af kemur rúmlega helmingur
frá útlöndum. Heiðursgestur hátíðarinnar er Arnaldur
Indriðason en á meðal erlendra gesta eru Ann Cleeves,
höfundur sakamálasagnanna um Veru lögreglukonu, dr.
John Curran, fremsti sérfræðingur heims í verkum Agöthu
Christie, og Jorn Lier Horst, handhafi Glerlykilsins 2013 fyrir
bestu norrænu spennusöguna. Skipuleggjendur hátíðarinnar
eru rithöfundarnir Quentin Bates, Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðar-
dóttir, en samstarfsaðilar eru Hið íslenska glæpafélag, Norræna húsið,
Borgarbókasafnið og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Heilmikil
dagskrá er í kringum hátíðina um helgina og meðal annars verður
gengið í fótspor Erlendar í Glæpagöngu á föstudaginn klukkan 15.30.
Úlfhildur Dagsdóttir leiðir gesti um götur borgarinnar. Gangan hefst við
lögreglustöðina á Hverfisgötu og er opin öllum. Allar frekari upplýsingar
má finna á www.icelandnoir.com.
Rökkurnætur í Reykjavík
Skrímslið litla systir mín er að leggja land undir fót og ætlar
að þessu sinni að heimsækja frændur vora í Færeyjum.
Tilefnið er að á föstudag kemur barnabókin Skrímslið litla
systir mín út á færeysku ásamt geisladiski með tónlist
Eivarar Pálsdóttur úr samnefndri leiksýningu.
Bókin kom út á íslensku í september og hefur hlotið
mjög góðar viðtökur.
Helga Arnalds og leikhúsið 10 fingur munu sýna
Skrímslið litla systir mín tvisvar sinnum í Norðurlanda-
húsinu í Þórshöfn á sunnudaginn og eftir sýninguna verður Eivör Páls-
dóttir með tónleika fyrir börn og fullorðna. Björk Bjarkadóttir sem myndskreytti
bókina mun svo leiða börnin í gegnum skapandi smiðju þar sem börnin fá að
skapa sjálf með litum og pappír.
Með í ferðinni verður líka sonur Helgu, Úlfur Elíasson, sem upphaflega átti
hugmyndina að sögunni sem bæði leiksýningin og bókin byggja á.
Allt er þetta hluti af Bókadögum sem haldnir eru á vegum rithöfundafélags
Færeyja í samstarfi við Norðurlandahúsið.
Skrímslið fer til Færeyja
Hlustað er fyrsta skáldsaga Jóns
Óttars Ólafssonar og er óneitan-
lega nokkuð sérstakt og áhugavert
innlegg í íslensku glæpasagnaflór-
una. Sérstaða Hlustað felst í því að
höfundurinn hefur yfirgripsmikla
og haldgóða þekkingu á rann-
sóknum sakamála og þá ekki síst
efnahagsbrota, sem koma einmitt
talsvert við sögu hér. Jón Óttar er
doktor í afbrotafræðum og hefur
starfað innan lögreglunnar, í fjár-
festingabanka og hjá sérstökum
saksóknara. Ekki ónýtur reynslu-
banki þegar kemur að því að skrifa
reyfara þar sem morð, fíkniefnavið-
skipti, aflandseyjasvindl með millj-
arða, lögreglan og embætti sér-
staks saksóknara koma við sögu.
Hlustað er fyrsta bókin í fyrir-
huguðum þríleik þannig að þótt
morðmál sé hér í forgrunni spinnur
Jón Óttar stærri og flóknari sögu
sem mun ekki verða til lykta leidd
fyrr en í næstu bókum.
Hann kynnir hér til
leiks rannsóknarlög-
reglumanninn Davíð.
Sá á að baki tuttugu ára
starf í lögreglunni með
viðkomu í fjárfestingar-
banka á bóluárunum.
Hann er laskaður eftir
hrunið, eins og flestir
bankamenn og fær
tímabundna ráðningu á
sínum gamla vinnustað,
lögreglustöðinni við
Hverfisgötu.
Þegar lík ungrar
konu finnst grásleppu-
skúr við Ægisíðu má
segja að hann fái mál
hennar á heilann. Allt bendir til
þess að hún hafi látist af of stórum
skammti fíkniefna en Davíð linnir
ekki látum fyrr en hann hefur fund-
ið grunaðan morðingja. Rannsókn
hans flækist saman við rannsókn á
umfangsmiklum dópviðskiptum og
efnahagsbrotum fyrirhrunsáranna.
Eins og titillinn bendir til eru
hleranir í forgrunni í rannsókninni
og vangaveltur um slíkt ættu að
virka sem olía á eld þeirra sem líta
forvirkar rannsóknarheimildir
hornauga.
Hlustað er spennandi, rígheldur
og fléttan gengur smekklega
upp. Stíllinn er þó tilþrifalítill og
með nokkrum skýrslublæ eins
og kannski við er að búast, og er
kannski viðeigandi, þar sem ítar-
legar lýsingar eru á aðferðafræði
lögreglurannsókna. Mjög áhuga-
vert allt saman en textinn iðar samt
ekkert af lífi.
Í nákvæmum lýs-
ingum sínum minnir
Jón Óttar um margt á
Michael Connelly, sem
er í fremstu röð banda-
rískra krimmahöfunda,
og áhrifin frá sögum
hans um lögguna Harry
Bosch eru augljós og
ánægjuleg.
Og þótt Davíð sem
frekar einhliða persóna
framan af þá sækir hann
í sig veðrið eftir því sem
á líður og harmsaga
hans kemur betur í ljós.
Jón Óttar fer vel af stað
og það verður spennandi
að sjá framhaldið. -ÞÞ
Góð áhrif frá Los Angeles
Hlustað
Jón Óttar Ólafsson
Bjartur 359 s, 2013
Sif Sigmarsdóttir, rit- og pistlahöfundur, hefur sent frá sér nokkrar vinsælar unglingabækur
en nú kveður við nýjan tón hjá henni. Nýja bókin hennar heitir Múrinn og þar segir frá fjórtán
ára stelpu sem lendir í miklum ævintýrum í fjarlægri og drungalegri framtíð. Sif eignaðist sitt
fyrsta barn, dótturina Urði, fyrir þremur mánuðum og þegar ein ljósmóðirin á sjúkrahúsinu í
London heyrði að barnið ætti að heita eftir norn runnu á hana í það minnsta tvær grímur.
Sif og Urður litla sem skaut einni ljósmóðurinni skelk í bringu þegar hún heyrði að nefna ætti barnið eftir norn.
Múrinn
Borgin Dónol er
í heljargreipum
einvaldsins Zheng
og lífvarðasveita
hans. Freyja
elst þar upp hjá
ömmu sinni og
veit ekki betur en
að þær séu ósköp
venjulegir íbúar
en þegar hinir
Utanaðkomandi
taka skyndilega
að birtast innan
borgarmúrsins fer
tilvera hennar á
hvolf. Hverjir eru
hinir Utanaðkom-
andi? Og hvað
vilja þeir Freyju?
1. nóvember – 30. nóvember 2013
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
11:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
STEINUNN
ÞÓRARINSDÓTTIR
Berglind Gunnarsdóttir hefur sent
frá sér ljóðabókina Ekki einhöm en í
bókinni eru bæði frumsamin ljóð og
þýðingar Berglindar á ljóðum rokk-
goðsins Jim Morrison, César Vallejo
og Omar Khayyam. Ljóðin í bókinni
eru margbreytileg og ná yfir viðnám
tímans, fegurð andartaksins og harm dauðans,
ástina og skáldskapinn. Berglind lagði stund á
spænsku og málvísindi í Reykjavík og Madríd. Hún
hefur birt frumort ljóð og ljóðaþýðingar, einkum úr
spænsku, bæði í eigin bókum og ýmsum tímaritum
og safnverkum.
Berglind hefur sent frá sér átta ljóðabækur, tvær
frumsamdar skáldsögur (Flugfiskur, 1992 og Tíma-
villt, 2007) og eina þýdda (Ást og skuggar, 1988,
eftir Isabel Allende). Auk þess ritaði hún ævisögu
Sveinbjörns Beinteinssonar allsherjargoða 1992.