Fréttatíminn - 22.11.2013, Síða 80
PSV EINDHOVEN – SC HEERENVEEN
LAUGARDAG KL. 17.35
ALFREÐ FINNBOGASON
Í BEINNI ÚTSENDINGU
FC TWENTE – NAC BREDA
SUNNUDAG KL. 15.20
Í OPINNI DAGSKRÁ
UM HELGINA
HOLLENSKI
BOLTINN
NorræNa húsið aldarafmæli BeNjamiN BritteN
Í tilefni af 100 ára afmæli breska tónskáldsins Ben-
jamin Britten efnir 15:15 tónleikasyrpan til Britten há-
tíðartónleika í Norræna húsinu 24. nóvember klukkan
15:15. Tónleikarnir verða, að því er fram kemur í
tilkynningu, sannkölluð hátíðarveisla þar sem flutt
verða einsöngsverk, kórverk, og kammerverk þessa
mesta snillings breskrar tónlistarsögu.
Flytjendur á tónleikunum eru: Eyjólfur Eyjólfsson
tenór, Gerrit Schuil píanó, kvartettinn Dísurnar og
sönghópurinn Hljómeyki undir stjórn Mörtu Guð-
rúnar Halldórsdóttur.
„Benjamin Britten er þekktasta tónskáld Breta frá
20. öldinni. Á tónleikunum verður flutt úrval verka
hans sem sýna glöggt hæfni þessa mikla meistara
sem fæddur var á degi heilagrar Sesselju, verndara
tónlistarinnar, 1913. Kórverk Brittens; Hymn to St.
Cecilia við samnefnt ljóð eftir W. A. Auden verður
flutt af sönghópnum Hljómeyki. Þar kveikir heilög
Sesselja sköpunarkraftinn sem vopn gegn eyðingar-
afli stríðsins. Kvartettinn Dísurnar flytja Phantasy
Quartet op. 2 fyrir óbó og strengi, kvartett saminn
af Britten einungis 19 ára gömlum. Verkið þykir eitt
stórbrotnasta verk tónbókmennta óbósins og mjög
áhugavert. Eyjólfur Eyjólfsson og Gerrit Schuil
flytja lagaflokkinn On this Island op. 11, fyrir tenór
og píanó og ensk þjóðlög í útsetningum Brittens, en
útsetningar Brittens þykja afburða góðar og lögin
njóta sín á sem upprunalegasta hátt. Að lokum flytur
Hljómeyki Sacred and Profane, kórverk við safn
enskra miðaldaljóða frá 12. 13. og 14. öld. Kvæðin eru
bæði af andlegum og veraldlegum toga. Þau fjalla um
tilvist mannsins og afstöðu hans til náttúrunnar og
Guðdómsins.“
Miðaverð á tónleikana er kr. 2000 og kr. 1000 fyrir
öryrkja, eldri borgara og nemendur.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Hátíðartónleikar í Norræna húsinu
Kvartettinn Dísurnar, Eydís, Herdís og Bryndís, eru meðal flytjenda á tónleikunum.
80 menning Helgin 22.-24. nóvember 2013