Fréttatíminn - 22.11.2013, Síða 86
RóbeRt Guðmundsson JólaskReytiR hús af kappi
R óbert Guðmundsson hefur fengist við að jólaskreyta hús frá árinu 2007 og er
að eigin sögn orðin býsna lunkinn
og með gott auga fyrir því hvernig
hægt er að láta ólík hús og garða
njóta sín sem best á aðventunni.
„Ég skreyti hús fyrir fólk með
jólaljósum, bæði að utan og innan
og er frekar öflugur þegar kemur
að því að gera húsin falleg,“ segir
Róbert sem er þegar byrjaður
að skreyta og hefur vart undan í
nóvember og desember. „Það er
alltaf nóg að gera þessa tvo mán-
uði.“ Hróður Róberts í þessum
efnum hefur borist víða en árið
2008 skreytti hann til að mynda
hús í Árborg sem vann til verð-
launa fyrir skreytinguna það árið.
Hann býr í Hveragerði og hefur
sjálfur staðið fyrir keppni um fal-
legustu skreytinguna á Suður-
landi og þá þótti Hótel Örk best
skreytta byggingin.
Róbert segir að vissulega leiti
fólk til sín sem sé of upptekið
til þess að standa sjálft í því að
festa ótal perur upp en fyrst og
fremst sé fólk þó að sækjast eftir
stíliseringu hans. „Ég myndi nú
segja að þetta sé mest fólk sem
vantar uppástungur um hvernig
ljósaskreytingarnar eigi að líta
út hjá þeim. Annars er þetta alls
konar. Eldra fólk sem treystir sér
ekki til að gera þetta og svo fólk
sem má kannski ekki vera að því
að skreyta hjá sér. Er kannski í
mikilli vinnu fyrir jólin og kýs þá
að hringja í mig.“
Róbert mætir með allar græjur
og hefur í krafti mikilla við-
skipta góð afsláttarkjör á seríum
sem hann lætur viðskiptavin-
ina njóta beint. „Ég er meira
að segja ekkert að rukka fyrir
svona ferðir þegar ég sæki jóla-
seríur í Byko eða Húsasmiðjuna.
Ég er með allt upp í 25% afslátt af
seríum sem kúnnarnir fá beint í
vasann.“ Og Róbert segist vera
í svo miklu jólaskapi þetta árið
að hann veiti 20% afslátt af tíma-
vinnu sinni.
En hvað kom til að hann
byrjaði að bjóða skreytingaþjón-
ustuna?
„Þetta var eiginlega bara þann-
ig að 2008 kom hrunið yfir alla. Þá
var bara ekkert orðið að gera fyrir
mig á veturna og þá datt mér í hug
að það væri hægt að nýta tímann
í að vera með jólaskreytingar,“
segir Róbert sem jólar yfir sig ár-
lega og hefur til að mynda undan-
farin ár bakað smákökur og gefið
kirkjum á Suðurlandi. „Ég bakaði
50 kíló í fyrra.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
„Ég bakaði 50
kíló í fyrra.
Með marglitar perur
á lofti frá hruni
Málaraneminn Róbert Guð-
mundsson hefur um árabil
tekið að sér að jólaskreyta hús
fyrir fólk sem treystir sér ekki
til þess sjálft að baða híbýli
sín marglitri birtu. Jólaþjón-
ustu Róberts hefur verið tekið
fagnandi og í nóvember og
desember hefur hann ekki
undan og þeytist milli Suður-
lands og höfuðborgarsvæðis-
ins og þræðir jólaseríur á hús
og tré eins og óður væri.
Róbert Guðmundsson er sannkallaður jólasveinn, bakar smákökur í kílóavís fyrir
jólin og skreytir hús fyrir fólk í tveimur landshlutum. Mynd/Hari
iðnnemaR GReiddu fyRiR upplestuR með RakstRi
Rithöfundarnir Þorsteinn Mar og Einar
Leif Nielsen sóttu nemendur í Iðnskólan-
um í Hafnarfirði heim á fimmtudaginn og
lásu fyrir þá upp úr verkum sínum en báð-
ir eru þeir með fantasíubækur í jólabóka-
flóðinu. Þorsteinn með bókina Vargsöld
og Einar með Hvítir múrar borgarinnar.
Þeim var launaður greiðinn með almenni-
legum rakstri með gamla laginu og fara
því stífrakaðir út í bókahasarinn sem fram
undan er.
„Í fyrra fengum við Eirík Örn Norðdahl
til okkar gegn rakstri og hann vann síðan
Íslensku bókmenntaverðlaunin þannig
að ég tel það vita á gott fyrir höfunda að
koma hingað að lesa,“ segir Óli Gneisti
Sóleyjarson, safnstjóri í Iðnskólanum, og
sá sem stendur fyrir lestrarheimsókn-
unum i skólann.
Óli segist ekki eiga von á öðru en að
áframhald verði á þessum vinnuskiptum
við rithöfunda og bendir á að fólk þurfi
ekki endilega að fá ómakið launað með
klippingu eða rakstri. „Við höfum upp á
margt að bjóða hérna og kannski er ein-
hver höfundur til dæmis með stíflað kló-
sett sem hann þarf hjálp með.“
Óli segist hafa fengið þessa tvo höfunda
í heimsókn vegna þess að „þeir semja
báðir furðusögur sem mér finnst virka
ágætlega fyrir krakkana hérna.“ Og nem-
arnir eru hæst ánægðir með uppátæki
safnstjórans. „Þau hafa gaman af þessu
ekki síst þær sem tóku að sér að raka þá.
Krökkunum finnst gaman að fá að gera
eitthvað aðeins öðruvísi auk þess sem
að sjálfsögðu urðu úrvalsnemendur fyrir
valinu í raksturinn. Þannig að það sýnir
mikið traust frá kennurunum að vera sér-
valin í þetta verkefni.“
Óli segir rithöfundana ekki síður hafa
verið káta enda ekki á hverjum degi sem
menn fá alvöru rakstur með gamaldags
rakhníf, en slíkt er upplifun í sjálfu sér.
-þþ
Rithöfundar fóru undir hnífinn
Óli Gneisti
Sóleyjarson,
safnstjóri í Iðn-
skólanum, stóð
fyrir vinnu-
skiptum þar
sem rithöfundar
lásu upp og
fengu klippingu í
staðinn.
Blátt áfram hafa það að markmiði að fræða
fullorðna um kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum og hvernig megi fyrirbyggja það.
Krakkar með Vasaljós
Ríkissjónvarpið hefur sýningar á nýjum þætti fyrir krakka á laugardaginn. Þátturinn
heitir Vasaljós og honum stjórna krakkar og fjalla að sjálfsögðu bara um það sem
krakkar hafa áhuga á. Sem er vitaskuld allt milli himins og jarðar.
Marteinn Elí, Hekla Gná, Katla, Mira Esther, Salka, Alex Leó og Júlíana Dögg eru á
aldrinum níu til þrettán ára og í þáttunum ætla þau að beina Vasaljósinu inn í króka
og kima krakkaheimsins og lýsa upp skemmtilega krakka og allt það áhugaverða
sem þeir eru að fást við. Krökkunum til halds og trausts við dagskrárgerðina eru
vinkonurnar Kristín Eva Þórhallsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir sem hafa sinnt
börnum hjá RÚV með sóma undanfarin ár og notið mikilla vinsælda með útvarps-
þáttinn Leynifélagið.
Hulli djókar
Myndasögumaðurinn, teiknaða
sjónvarpsstjarnan og grínarinn
Hugleikur Dagsson hefur undan-
farið þvælst um landið og grínast
eins og honum einum er lagið
með uppistand sitt, Djókaín. Hann
er nú mættur í borg óttans með
Djókaínið og fer með gamanmál
sín í heilmiklu prógrammi sem
hann hefur slípað á hvassri lands-
byggðinni í Háskólabíói þann 29.
nóvember klukkan 20.
Þarna er á ferðinni rúm klukku-
stund af kynlífi, ofbeldi og Star
Wars. Djókaín er bannað börnum
sem eru yngri en 13 ára en Hulli
bendir á að annars sé Djókaínið
ekki bannað viðkvæmum en þeim
er þó ekki ráðlagt að mæta. „Það
var einn viðkvæmur maður sem
kom á Djókaín á Egilsstöðum og
hann meiddi sig í fætinum,“ segir
Hulli sem rukkar 2000 krónur fyrir
aðganginn að herlegheitunum.
86 dægurmál Helgin 22.-24. nóvember 2013