Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Side 1

Fréttatíminn - 11.05.2012, Side 1
GrilltíminnBestu kjötbitarnir - Langur búrger - BBQ svín Helgin 11.-13. maí 2012 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Grill sem endast O P N U N A R T I L B O Ð 2.990 Pizza panna 129.900 39.900 Opið laugardag til kl. 16 Mikið úrval aukahluta www.grillbudin.is SÉRVERSLUNMEÐ GRILL, GARÐHÚSGÖGN OG ÚTILJÓS Þýsk framleiðsla F orðist að nota flestan mjúkan við eins og til dæmis furu og ösp. Helst skal að nota harðvið. Það helsta sem vex almennilega á Íslandi og hægt er að nota er birkið – þurrt birki virkar ágætlega þótt auðvitað megi höggva niður hlyn og álm ef þeir þykja fyrir í garðinum. Það má alls ekki nota krossvið eða annan unninn við eins og spónaplötur eða fúavarið timbur. Það er beinlínis eitur og matarboðið endar á slysó. Harðviðinn er hægt að fá í grill-búðum og hann er einnig oft seldur í stærri einingum sem eldiviður í byggingarvöru-verslunum og á bensínstöðvum. Tíminn og reykurinnReykur er bragð og það er gott að fá reykkeim í flestan þann mat sem við grillum úti. Allt kjöt þolir eitthvað af reyk en það er mismunandi þolið eftir tegund. Svínakjöt þolir mikinn reyk og kjúklingur líka. Nautið vill gjarnan reyk en ekki jafn mikið og svínið. Lambið vill vera ferskt og þolir minnstan reyk. Þótt lambalærið breytist ekkert í hangiket strax er gott að passa uppá að hafa ekki of mikinn reyk við eldun þess. Fljóteldaðir bitar eins og kótelettur hafa bara gaman af smá salíbunu í reyknum. Fiskurinn kann líka vel við sig í reyknum sérstaklega lax og silungur. Bragðið af reyknum sjálfum fer ekki að skipta almennilega máli fyrr en búið er að reykja í meira en 5-6 tíma þannig að yfir-leitt skiptir ekki máli hvort notaðar eru mismunandi tegundir af harðviði. Töff týpur Þær eru fjórar mismunandi útgáfurnar sem notast má við til að reykja á grilli: Lurkar, kubbar, spænir og sag. Hvert um sig hentar í mismunandi hluti. Til að fá mikinn reyk í stuttan tíma er gott að nota spæni eða sag. Lengri reyking kallar á stærri kubba eða lurka. Þegar á að reykja lengi og sér í lagi á gas-grilli er best að nota sæmilega stóra kubba eða lurka en ekki spæni eða sag. Einfaldast er að leggja þá aðeins í bleyti og vefja þá svo í álpappír. Setja svo nokkur lítil loftgöt til að reykurinn sleppi út án þess að eldur komi upp. Þá er líka hægt að nota skál úr til dæmis ryðfríu stáli og setja kubba þar ofaní og svo skálina beint ofan á brennarann.Á kolagrilli er best að leggja sæmilega kubba í bleyti í nokkra klukkutíma og setja svo beint á kolin. Ef reykja á fisk er fínt að nota sag eða spæni. Sagið er best að hafa þurrt í stálskál eða á pönnu. Það þýðir svo ekkert að nota eina eða tvær teskeiðar af þessu – drjúgt fer af sagi í hvern skammt.Þótt uppskriftin kveði á um að elda skuli við vægan hita þarf samt örlítinn eld til að koma kubbunum af stað. Passa bara að eldurinn blossi ekki upp því honum fylgir náttúrulega mikill hiti og sót sem er ekki eftirsóknarvert á kjötbitann. Einnig þarf að gera ráð fyrir því að kubburinn hitnar eins og góður kolamoli þegar reykingin er komin af stað. Því þarf að fylgjast vel með hitanum þegar líður á reykinguna. Haraldur Jónasson Hari@frettatiminn.is  Reyking Reykingar leyfðarÞegar elda á BBQ þarf að hafa reyk og reykurinn sem myndast við það að safinn sem vellur úr kjöti fellur á kol eða gasbrennara dugir ekki til. Það þarf eldivið og ekki er sama spýta og spýta. Lurkur í álpappír gefur af sér góðan reyk í langan tíma. Sag Spænir Kubbar Lurkar 11.-13. maí 2012 19. tölublað 3. árgangur 18 Töff en fáguð fatahönnun Manúela og Anna Lilja Grilltíminn í miðj FrÉttatímanans Markverðir á EM  VIÐTAL RAgnheIÐuR eRLA hjALTAdóTTIR og SIguRÐuR hóLmAR jóhAnneSSon Þórdís Nadia 62 Vill losna við karlrembuna úr rappinu 16ÚttEkt Bavíanar á þingi Ummæli úr ræðustóli Alþingis Flóttabörn á Fit-hosteli Utangarðs og allslaus 8FréttAskýriNg viðtAL síða 26 Neuer er nýj- asta stjarnan 24 FótBoLti Svefninn er vinur sunnu valdísar sigurðardóttur, sex ára stúlku, sem ein Íslendinga hefur greinst með fátíðan taugasjúk- dóm sem getur lamað líkama hennar um stund – jafnvel daga, vikur. Köstin geta verið svo heiftarleg að hún tekur skref aftur í þroska. Litla stúlkan á annan vin, því hún féll fyrir Ólafi Darra leikara, hefur hitt hann og ræðir við hann í síma. Foreldrar Sunnu, Ragnheiður Erla og Sigurður Hólmar, segja sögu hennar og hvernig svefninn kemur henni til bjargar. Lamandi veruleiki Sunnu litlu DægurMáL Gleraugnaverslunin þín PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 21 4 4 4 Ný og glæsileg sólgleraugu í Augastað MJÓDDINNI Álfabakka 14 Opið: virka daga 9–18 og laugardaga 11–15 FIRÐI Fjarðargötu 13–15 Opið: virka daga 10–18 og laugardaga 11–15 SELFOSSI Austurvegi 4 Opið: virka daga 10–18 Gucci Vera Wang Boss Hún var lömuð frá einum degi upp í tvær, þrjár vikur. Þá gat hún ekki notað hendina ... en stundum var allur líkam- inn lamaður. Lj ós m yn d/ H ar i

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.