Fréttatíminn - 11.05.2012, Blaðsíða 58
Trúlofunin endalausa
Emily Blunt og Jason Segel (How I Met
Your Mother) leika kærustuparið Tom og
Violet í gamanmyndinni The Five-Year
Engagement, þau smellpassa saman
þótt trúarlegur bakgrunnur þeirra sé
ólíkur. Þegar Tom biður Violet að giftast
sér svarar hún strax játandi. Samkvæmt
kúnstarinnar reglum í Bandaríkjunum er
sjálfur brúðkaupsdagurinn jafnan ekki
langt undan eftir að hringarnir hafa verið
settir upp og parið ráðgerir að giftast
innan árs.
Þetta gengur þó ekki eftir og þrátt fyrir
endalausar spurningar og afskiptasemi
ættingja, vina og kunningja frestast brúð-
kaupið endalaust. Ekki síst vegna þess að
Violet fær gott starf í borg fjarri þeirra
nánustu.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.7, Rotten Tom-
atoes: 64%, Metacritic: 61%
50 bíó Helgin 11.-13. maí 2012
Hún lætur
þó ekki
duga að
drepa
Barabas
heldur býr
hún honum
örlög sem
eru miklu
verri en
dauðinn.
FrumsýndAr
Einhvern tíma í
framtíðinni hefur
verið brugðið á það
snilldarráð að geyma
hættulegustu fanga
jarðar í öruggri
fjarlægði í geimstöð
einhvers staðar úti í
buska. Lockout segir
frá mögnuðum átökum
sem brjótast út eftir
að fangarnir sleppa
úr klefum sínum og
ná geimstöðinni á sitt
vald. Til að bæta gráu
ofan á svart er dóttir
forsetans í geimstöð-
inni þegar fangarnir taka völdin og henni verður að bjarga hvað sem það kostar.
Hörkutólinu Snow, sem Guy Pearce leikur, eru þá gefnir þeir afarkostir að fara í
fangelsi, fyrir glæp sem hann framdi ekki, eða ráðast til inngöngu í fangelsið og bjarga
forsetadótturinni. Hann tekur vitaskuld að sér vonlausa verkefnið og lætur verkin heldur
betur tala.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.8, Rotten Tomatoes: 36%, Metacritic: 48%
Guy Pearce hreinsar til í geimfangelsi
B örn geta, þrátt fyrir engil-fagra ásjónu, verið grimm og hjá þeim er oft stutt í villidýr-
ið ekki síður en hjá þeim fullorðnu.
Frumskógarlögmálið ríkir á skóla-
lóðinni þar sem þetta leiðinda sam-
félagsmein, eineltið, blossar upp
þegar tuddarnir þefa uppi þá veik-
ustu í hjörðinni og hossa sjálfum
sér með því að beita þá andlegu- og
líkamlegu ofbeldi.
Bandaríska heimildarmyndin
Bully tekst á við ömurlegt eineltið
með því að segja sögu fimm krakka
sem allir þurfa að þola útskúfun og
stöðugar ofsóknir án þess að geta
sér nokkra björg veitt. Krökkunum
er fylgt eftir með kvikmyndatöku-
vélinni í skólabílnum, í skólanum og
á förnum vegi og alls staðar leynast
villidýrin og útdeila eymd og ógeði
af einurð og festu.
Þjáning krakkana er vægast sagt
áþreifanleg í Bully ekki síður en
örvænting og ráðaleysi fjölskyldna
þeirra sem standa fullkomlega mátt-
vana andspænis meininu. Áhuga-,
getu- og úrræðaleysi skólastjórn-
enda fá einnig sitt pláss. Afneitun-
in er ræktuð af elju og rétt bráir af
fólki þegar eineltið kostar mannslíf
en síðan er augum og eyrum lokað
aftur. Bully er því tímabært og þarft
spark í rassinn á fólki. Gott spark
sem fólk hefur gott af því að fá.
Bully tekur virkilega á og er síður
en svo auðveld á að horfa en að sama
skapi gríðarlega mikilvæg mynd og
sem allra flestir ættu að hlunkast
til þess að sjá hana, neyða sjálfa sig
til þess að opna augun hugsa sinn
gang, ræða málin heimafyrir og
leggjast á árarnar með þeim sem
reyna að sporna gegn óværunni.
Bully er mikilvæg mynd og leik-
stjórinn Lee Hirsch hefði gjarnan
mátt ganga lengra; óneitanlega
saknar maður þess að fá ekki að
kynnast ófétunum sem stunda ein-
eltið. Fókusinn er á fórnarlömb-
unum og þeirra nánustu en auðvit-
að væri ekki síður fengur að fá að
kynnast því hvaða súra sósa gerjast
í kollinum á krakkakvikindunum
sem stunda eineltið.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíódómur Bully
Þarft spark í rassinn
Tim BurTon mæTTur AFTur með Johnny depp
Skuggalegur frændi
Tim Burton er með skemmtilegri og flippaðari leikstjórum sem starfa í hinni oft á tíðum hug-
myndasnauðu Hollywood. Hann á að baki sérstaklega farsælt samstarf með leikararnum undur-
fagra Johnny Depp og þeir félagar eru nú mættir saman eina ferðina enn í vampírugríninu Dark
Shadows.
T im Burton vakti athygli og kátínu með draugamyndinni Beetlejuice árið 1988. Þar fór Michael Keaton hamför-
um í hlutverki samnefnds draugs sem gerði
Alec Baldwin og Geenu Davis lífið leitt. Kea-
ton og Burton áttu vel skap saman og ári síð-
ar tefldi Burton leikararnum fram í hlutverki
sjálfs Leðurblökumannsins þegar Burton
blés nýju lífi í þá sívinsælu hetju. Myndin sló
hressilega í gegn enda fjörðið mikið þar sem
Jack Nicholson sló eign sinni á myndina þegar
Burton gaf honum lausan tauminn í hlutverki
Jókersins. Vinsældum Batman fylgdi Burton
eftir þremur árum síðar með Batman Returns
og þar með skildu leiðir með Batman, Keaton
og Burton.
Á milli Batman-myndanna sendi Burton frá
sér hið ljúfsára nútímaævintýri um Edward
Scissorhands. Myndin var bergmál af sögunni
um Gosa spýtustrák en þar lék Johnny Depp
dreng sem mátulega ruglaður vísindamaður
býr til. Skaparinn fellur frá áður en honum
auðnast að festa hendur á drenginn. Hann situr
því uppi með ansi voldugt sett af garðklippum
í stað handa sem gerir honum óhjákvæmilega
erfitt að fóta sig í veröldinni.
Edward Scissorhands markaði upphafið á
samstarfi Burtons og Depp sem ekki sér enn
fyrir enda á en saman hafa þeir gert Ed Wood,
Sleepy Hollow, Charlie and the Chocolate Fac-
tory, Corpse Bride, Sweeney Todd: The De-
mon Barber of Fleet Street, Alice in Wonder-
land og nú síðast Dark Shadows.
Í Dark Shadows leikur Depp Barnabas Coll-
ins sem flyst ungur að árum, ásamt foreldrum
sínum, frá Liverpool í Englandi til Bandaríkj-
anna árið 1752. Fjölskyldan litla flytur ekki síst
til Bandaríkjanna til þess að reyna að hrista af
sér bölvun sem hvílt hefur yfir ættinni. Þau
setjast að í bænum Collinsport í Maine og eiga
þar tuttugu náðug ár. Þá er Barnabas litli orð-
inn stór og er aðalgæinn í bænum. Ríkur, vold-
ugur og óforbetranlegur glaumgosi. Honum er
þó ekki ætlað að dvelja í þessari Paradís sinni
lengi. Hann gerir nefnilega, að hætti glaum-
gosa, þau afdrifaríku mistök að svíkja hina
fögru Angelique Bouchard í tryggðum.
Angelique er, illu heilli, norn og lætur ekki
hafna sér þegjandi og hljóðalaust. Hún lætur
sér ekki duga að drepa Barabas heldur býr
hún honum örlög sem eru miklu verri en dauð-
inn. Hún breytir honum í vampíru og grefur
hann síðan lifandi. Barnabas liggur síðan í
gröf sinni í tvær aldir en rumskar árið 1972
og klórar sig upp á yfirborðið. Heimurinn sem
mætir honum þar er vægast sagt frábrugðinn
því sem hann þekkti áður og þessi föli glaum-
gosi þarf nú að reyna að ná áttum i heimi þar
sem glitrar á diskókúlur og dansinn dunar.
Barnabas snýr aftur á ættaróðalið þar sem
hann hittir fyrir afkomendur sína sem eru
býsna skrautlegir og ekki síður ráðvilltir og
ruglaðir en hann sjálfur. Glæsihýsi hans er
í niðurníðslu og svipaða sögu má segja af
niðjum hans. Þegar nornin Angelique skýtur
svo upp kollinum, jafn brjálið og áður, hitnar
heldur betur í kolunum og blóðsugan þarf að
taka á honum stóra sínum til þess að komast
undan háskakvendinu og bjarga ættingjum
sínum um leið.
Johnny Depp er alvanur því að leika furðufugla fyrir vin sinn, Tim Burton, og vampíran Barnabas sver sig í ætt við aðra
rugludalla sem Depp hefur túlkað í gegnum tíðina.
Guy Pierce gefur ekkert eftir í Lockout.
Þrátt fyrir heita ást gengur Tom
og Violet illa að koma sér upp að
altarinu.