Fréttatíminn - 11.05.2012, Blaðsíða 66
B orgarleikhúsið hefur tekið til sýninga leikgerð Ólafs Egilssonar sem byggð er á
rómaðri bók Bergsveins Birgis-
sonar: Svar við bréfi Helgu, sem
kom út 2010 en við er bætt undir-
titlinum ástarsaga. Líklega hafa
vinsældir bókarinnar orðið til þess
fyrst og síðast að leikhúsfólk vill
vinna upp úr henni sýningu því
ýmsir hafa nefnt að bókin sé illa
til þess fallin, þeirra á meðal höf-
undurinn sjálfur sem segir í pistli í
leikskrá: „Þegar leikhúsfólk hafði
samband við mig með það í hyggju
að búa til leikrit úr sögu Bjarna
Gíslasonar, var mín fyrsta hugsun
að það væri ekki hægt. Endur-
minningar gamals elliglapins
bónda. Leikrit? Varla.“ En, Magn-
ús Geir Þórðarson leikhússtjóri
lagði peninginn á rétt hross því svo
mjög virðast lesendur tryggir bók-
inni að uppselt er á fjölda sýninga.
Verkið fjallar, í grófum dráttum,
um bónda sem á gamalsaldri skrif-
ar ástinni í lífi sínu bréf þar sem
hann rifjar upp þeirra kynni og þá
innri togstreitu sem þau ollu og ein-
kenndi líf hans; eftirsjá en jafnframt
tilraunir til útskýringa á því hvers
vegna hann gat ekki fylgt henni á
mölina eins og hún lagði til þegar
ástarbrími þeirra stóð sem hæst og
hún með barni þeirra. Þar skiptir
máli að hann býr á jörð áa sinna
og er í barnlausu hjónabandi; kona
hans er óbyrja sem þýðir að ekki er
um neinn afkomanda til að taka við
jörðinni.
Þeim sem hér skrifar er nokkur
vandi á höndum því flest í sýning-
unni er virkilega vel af hendi leyst
en samt eru þarna þættir sem ganga
illa upp; jafnvel einmitt þau atriði
sem takast sérlega vel á einu plani
virka illa á því næsta: Styrkur sýn-
ingarinnar reynist jafnframt veik-
leiki hennar.
Í því samhengi er ágætt að líta til
leikmyndarinnar sem er til marks
um gott samstarf Ólafs Egilssonar,
leikstjórans Kristínar Eysteinsdótt-
ur og leikmyndahönnuðarins sem
er Snorri Freyr Hilmarsson – leik-
hús eins og það verður best. Leik-
myndin er snjöll; stórir tréplankar
umkringja rýmið svo helst minnir
á gripahús en býður jafnframt uppá
skemmtilega möguleika á lýsingu.
Á sviðinu, sem hallar fram eru svo
göt eða holur þar sem er vatn sem
þjónar margvíslegum tilgangi – bæj-
arlækur og haf. Allt er þetta sérlega
vel útfært. En gripahúsið, sem er
sterk mynd fyrir átthagafjötra, tek-
ur sem slíkt jafnframt á sig mynd
fangelsis eða rimla.
Einn styrkur bókar Bergsveins
er að honum tekst að fanga tungu-
mál sem er að hverfa, grípa orð í
útrýmingarhættu sem varða bú-
skaparhætti og sjósókn en eru sér-
kennileg á vorum tímum í Reykja-
vík. Þetta lingó reyndist uppspretta
hláturs í salnum og þegar við bætist
stúss í kringum búsmalann, eink-
um brundhrútinn stolt Bjarna og
svo leikmyndin, gripahúsið – fang-
elsið, var Bjarni fyrst og fremst af-
káralegur og slappur að vera ekki
maður í að rífa sig upp. Og þar er
komið að því sem ekki gengur upp
í kolli þess sem hér skrifar: Átt-
hagafjötrar eru með ýmsu móti og
þar spila náttúrumyndir inní, ást til
sveitarinnar og í þessu samhengi;
trúmennska Bjarna við Unni konu
sína sem hér er aukaatriði. Eins og
sýningin liggur nær sú þaulreynda
leikkona Sigrún Edda Björnsdóttir
ekki að kalla fram nokkra samúð
með persónu sinni sem þó er fórn-
arlamb aðstæðna. Því síður Gunnar
Hansson sem Hallgrímur, maður
Helgu – Bjarni giljar konu hans sem
mest hann má en það snertir ekki
kokkálinn vitundarögn, hefur engin
áhrif á atburði eða þankagang pers-
óna? Án þess stendur eftir paródía á
hlálegan sveitamanninn Bjarna sem
nær ekki að slíta sig úr viðjum að-
stæðna sinna.
Þrátt fyrir að þessar dramatísku
eigindir, sem miðað við þráðinn
ættu að vera til staðar, er sýningin á
því plani sem á er keyrt fagmannleg,
leikhúslausnir eins og þær gerast
bestar; svo að ekki er hægt annað
en hvetja fólk til að sjá sýninguna.
Þröstur Leó fer virkilega vel með
sitt hlutverk, sem og Ilmur Krist-
jánsdóttir; samleikur þeirra er með
miklum ágætum. Ellert A. Ingi-
mundarson og Gunnar bregða upp
myndum af mannlífinu í sveitinni af
mikilli kúnst. Lýsing, tónlist og bún-
ingar er vel af hendi leyst; reyndar
eru allir strengir einkar vel saman
stilltir og Kristín leikstjóri hlýtur að
fá prik fyrir það.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Niðurstaða:
Þó dramatískar eigindir skorti leið-
ist manni ekki Bréf til Helgu nema
síður sé – á því plani sem unnið er;
leikhús eins og best verður á kosið.
Bréf til Helgu
Bréf til Helgu - ástarsaga/Leikgerð: Ólafur Egilsson (byggt
á bók Bergsveins Birgissonar)/Leikstjóri: Kristín Eysteins-
dóttir/Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson/Búningar:
Stefanía Adolfsdóttir/Lýsing: Björn Bergsteinsson/Tónlist:
Frank Hall.
Borgarleikhúsið
Einkennilegir
átthagafjötrar
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–JVJ. DV
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 11/5 kl. 20:00 6.k Sun 20/5 kl. 20:00 10.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas
Lau 12/5 kl. 20:00 7.k Þri 22/5 kl. 20:00 aukas Lau 2/6 kl. 20:00 17.k
Sun 13/5 kl. 20:00 aukas Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Mið 16/5 kl. 20:00 8.k Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Fim 17/5 kl. 20:00 9.k Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Fös 18/5 kl. 20:00 aukas Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Sun 10/6 kl. 20:00
Lau 19/5 kl. 17:00 aukas Fim 31/5 kl. 20:00 16.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Fös 11/5 kl. 20:00 Fös 18/5 kl. 20:00
Fim 17/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports - hátíðarsýningar á 10 ára sýningarafmæli.
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 12/5 kl. 14:00 lokas
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma. Síðustu sýningar!
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra svið)
Lau 19/5 kl. 20:00 lokas
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 11/5 kl. 20:00 Fös 18/5 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Mið 16/5 kl. 20:00 aukas Fös 25/5 kl. 20:00
Fim 17/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Hótel Volkswagen (Stóra sviðið.)
Lau 12/5 kl. 20:00 Sun 13/5 kl. 20:00 lokas
Eftir Jón Gnarr í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Síðustu sýningar!
Bræður - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport, Malmö Stadsteater, Teater Får302. Sýnt á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Lau 12/5 kl. 20:00 2.k Sun 20/5 kl. 20:00 5.k Fös 1/6 kl. 20:00
Sun 13/5 kl. 20:00 3.k Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Lau 2/6 kl. 20:00
Lau 19/5 kl. 20:00 4.k Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 9/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Lau 12/5 kl. 13:00 Lau 12/5 kl. 14:30 aukas Sun 20/5 kl. 13:00
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 sýningar á 11.900 kr.
með leikhúskorti
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 11/5 kl. 19:30 24.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 Fös 25/5 kl. 19:30
Lau 12/5 kl. 15:00 AUKAS. Lau 19/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 15:00
Lau 12/5 kl. 19:30 25.sýn Sun 20/5 kl. 19:30 Fös 1/6 kl. 19:30
Sun 13/5 kl. 19:30 26. sýn Fim 24/5 kl. 19:30 Lau 2/6 kl. 19:30
Aukasýningar komnar í sölu - aðeins sýnt fram í júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 18/5 kl. 19:30 24.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 Sun 20/5 kl. 19:30 Síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 AUKAS. Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Lau 12/5 kl. 19:30 10.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn
Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Uppselt í maí - örfá sæti laus í júní.
Bliss (Stóra sviðið)
Mán 21/5 kl. 12:00
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Sun 20/5 kl. 17:00
Frumsýn.
Þri 22/5 kl. 19:30
Mán 21/5 kl. 19:30 Lau 26/5 kl. 17:00
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00
Frumsýn.
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Á Listahátíð í Reykjavík 2012
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mán 14/5 kl. 19:30 Lau 19/5 kl. 16:00 Sun 20/5 kl. 16:00
AUKASÝNINGAR Í MAÍ
tryggðu
þér sæti
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
NÁTTÚRAN KENNIR SKEPNUM
AÐ ÞEKKJA VINI SÍNA
CORIOLANUS
RALPH FIENNES
GERARD BUTLER
SJÁÐU
DAGSKRÁNA Á
WWW.ISALP.IS
16.-17. MAÍ
58 menning Helgin 11.-13. maí 2012