Fréttatíminn - 11.05.2012, Side 36
4 grilltíminn Helgin 11.-13. maí 2012
Hamborgari ekki er sama hvaðan hakkið kemur
KJÖTbúðin
Grensásveg
Grísahnakki kryddað/
marinerað, ferskt salat með
fetaosti, kartöflusalat, sósa
að eigin vali. Hægt er að fá
plastdiska og hnífapör með.
Verð 1.490 kr. á mann
GRILLTILBOÐ 1 Grísahnakki og lambalæri-
sneiðar kryddað/marinerað,
sætkartöflusalat, ferskt salat
með fetaosti og ólívum og sósa
að eigin vali. Hægt er að fá
plastdiska og hnífapör með.
Verð 1.690 kr. á mann
GRILLTILBOÐ 2 Lamba rib-eye í rósmarin- og
hvítlauks-marineringu, sæt-
kartöflusalat, bökuð kartafla,
ferskt salat með sólþurkuðum
tómötum og fetaosti og sósa
að eigin vali. Hægt er að fá
plastdiska og hnífapör með.
Verð 2.490 kr. á mann
GRILLTILBOÐ 3 Nauta rib-eye í amerískri Texas marineringu, sætkartöflusalat,
ferskt salat með sólþurrkuðum
tómötum og fetaosti.
Kartöflustrá og/eða bökuð
kartafla með kryddsmjöri eða
bearnessósu og sósa að eigin
vali. Hægt er að fá plastdiska
og hnífapör með.
Verð 2.990 kr. á mann
GRILLTILBOÐ 4
GRILLTILBOÐ fy
RIR hópa
fyRIR 10 manns
eÐa fLeIRI
GRILLþjónusTa
Matreiðslumenn Kjötbúðarinnar sjá um
að grilla fyrir veisluna þína, vinnustaðir/
starfsmannafélög, brúðkaup, afmæli og fl.
Kíkið á matseðlana á www.kjotbudin.is
Einnig er hægt að koma með óskir um
mat, matreiðslumenn okkar eru öllu vanir.
GleðileGt sumar
Þ eir eru margir góðir bitar á nautinu sem eru ekki nýttir sem sérvara hér á landi og því
er tilvalið að biðja kjötsalann, þenn-
an sem vinnur við að skera kjöt og
selja það í næstu kjörbúð, að skera
handa þér góða kjötbita á hakkverði
og hakka svo sjálf/ur. Nú, ef engin
er hakkavélin heima hjá þér er meira
segja hægt að biðja þennan sama
kjötsala um það viðvik líka.
besti borgarabitinn
Í hakk, og þar af leiðandi hamborg-
ara, er bestur af þessum ónýttu
bitum hnakkastykkið. Það situr því
fyrir framan hrygginn – endar þar
sem hausinn byrjar. Þarna er slatti af
fitu sem gefur gott bragð í borgar-
ann. Þetta stykki er ekki mikið
notað af íslenskum kjötsölum en í
henni Ameríku heitir þetta stykki
Chuck og er einn vinsælasti bitinn
til hamborgaragerðar þar í landi.
Þannig að við getum í raun skýrt
þetta Kallastykki ef okkur sýnist
svo. Beint í hakkavélina með þetta
og svo er að búa til platta. Það þarf
enga pressu bara þétta í höndunum
og setja á vax-eða bökunarpappír.
brauðið
Úrvalið á hamborgarabrauði í þessu
ágæta landi okkar er slappt. Sami
hálfþurri hleifurinn með sesam-
fræjum er í boði hjá nær öllum kaup-
mönnum landsins og skiptir þá litlu
sem engu hver framleiðir. Þannig að
ef ekkert er stuðið í að baka brauðið
sjálfur eða finna mjúka kjallara-
bollu í bakaríunum (þær eiga það
til að vera harðar og dýrar) þá er
pylsubrauð málið! Já, ég sagði það.
Pylsubrauð er betra borgarabrauð en
þessi hefðbundu hamborgarabrauð
og af því að kjötið kom ekki tilbúið á
bakka er hægt að móta langborgara
sem passa við brauðið. Svo er bara
að velja hvað fer ofan á og þar ræðst
allt af hugarflugi kokksins.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Langur búrger
Hakk er ekki bara hakk og þess vegna er hamborgari heldur ekki bara
hamborgari. Nautakjöt er afurð af nautgripum, eins og nafnið gefur til
kynna, og ekki er sama hvaðan af skepnunni það kemur. Hakkið sem
er á bökkunum út í búð er yfirleitt búið til úr afgöngunum sem falla til
þegar að steikurnar og fíneríið er skorið til.
Í hakk, og þar af leiðandi hamborgara, er bestur af
þessum ónýttu bitum hnakkastykkið. Það situr því fyrir
framan hrygginn – endar þar sem hausinn byrjar.
Hnakkastykkið er best í borgarann.