Fréttatíminn - 11.05.2012, Blaðsíða 67
H ús, sýning á nýjum og eldri verkum eftir Hrein Friðfinns-son, verður opnuð í Sverrissal
Hafnarborgar, á morgun laugardag-
inn 12. maí. Sýnd verða ljósmynda-
verkin House Project, Annað hús og
Þriðja hús. Elsta verkið, House Proj-
ect, er frá 1974 og er meðal þekktari
verka Hreins en Þriðja hús er nýtt
verk sem nú er sýnt í fyrsta skipti.
Verkin tengjast öll hvert öðru en hafa
ekki fyrr verið sýnd saman.
Samkvæmt tilkynningu frá Hafnar-
borg vann Hreinn House Project árið
1974 en þá byggði hann hús í hraun-
inu sunnan Hafnarfjarðar, innblásið af
frásögn Þórbergs Þórðarsonar af Sól-
on Guðmundssyni á Ísafirði. Hreinn
vann síðan aðra útgáfu af húsinu og
var hún reist í skúlptúrgarði í Frakk-
landi árið 2008. Síðsumars árið 2011
mátti síðan greina útlínur húss á
ferðalagi um hraunið sunnan Hafn-
arfjarðar. Þarna var komin enn ein
útgáfa hússins, stækkuð endurgerð
vírmódelsins innan úr húsinu í Frakk-
landi. Texta og ljósmyndaverkin á
sýningunni í Hafnarborg eru byggð
á þessum húsum eftir því sem fram
kemur í tilkynningunni.
Helgin 11.-13. maí 2012
Hafnarborg Ljósmyndasýning
Samhliða sýningunni gefur Hafnarborg
í samstarfi við bókaútgáfuna Crymogeu
út bók þar sem finna má myndir af
verkunum og af gerð þeirra.
Hreinn sýnir hús
Gísli og Oddgeir óháðir
Sönghópur Átthagafélags Vest-
mannaeyinga á Reykjavíkursvæð-
inu heldur tónleika í kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigsveg í
Reykjavík, á morgun laugardaginn
12. maí klukkan 15. Þetta er í þriðja
skiptið sem Sönghópurinn heldur
vortónleika. Að þessu sinni leikur
fimm manna hljómsveit með hópn-
um; Árni Áskelsson á slagverk, Ár-
sæll Másson á gítar, Gísli Helga-
son á blokkflautur, munnhörpur
og f leira, Þórólfur Guðnason á
bassa og Hafsteinn Guðfinnsson á
gítar. Fyrri hluti tónleikanna er til-
einkaður lögum Gísla Helgasonar
blokkflautuskálds og lagasmiðs í
tilefni þess að hann varð nýlega 60
ára en Gísli er meðlimur í hópnum
eins og áður sagði. Seinni hluti tón-
leikanna verður lagður undir ýmis
lög og texta úr Eyjum eftir höfunda
á borð við Oddgeir Kristjánsson.
-óhþ
Sönghópurinn í allri sinni dýrð.
Álfasala
2012
s vörtuloft eftir Arnald Indr-iðason er í fyrsta sæti met-sölulista glæpasagna í Frakk-
landi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Arnaldur nær þetta góðum árangri,
bækur hans hafa verið tíðir gestir
á listanum, enda nýtur hann gríð-
arlegra vinsælda þar í landi og er
margfaldur metsöluhöfundur. Öll
Erlendar-serían og Bettý hefur kom-
ið út á frönsku en Svörtuloft kom
fyrst út fyrir tveimur mánuðum og
er strax komin á toppinn. Arnaldur
var nýlega staddur í Lyon og las upp
við fádæma góðar undirtektir eins
og venjan er þegar hann heimsækir
Frakkana. Áheyrendur heilluðust
upp úr skónum og bækurnar seldust
upp – öll 500 eintökin á einum upp-
lestri. Útgefandi Arnaldar brást sem
betur fer skjótt við og lét senda eftir
fleiri bókum til Parísar með hraði.
Arnaldur á toppnum í
Frakklandi