Fréttatíminn - 11.05.2012, Blaðsíða 68
Fólk var
náttúrlega
miður sín
yfir þessu
þannig að
ég held að
þetta sé
góð lausn.
Eldsneytiskostnaður Volkswagen Passat
á hverja 1000 km*
Metan 8.442 kr.
Dísil 13.484 kr.
Bensín 18.158 kr.
www.volkswagen.is
Metanlegur
sparnaður
Volkswagen Passat EcoFuel
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat
* Miðast við almennt verð á
eldsneyti hjá Olís 8. maí 2012
Passat kostar aðeins frá
3.990.000 kr.
Voyage, eins og það leit út í Hull,
áður en þjófarnir námu það á brott.
Kjartan Sveinsson, sem rak bílaþvottastöðina í
Sigtúni í hartnær fjörtíu ár, er í dag einn af dygg-
ustu viðskiptavinum Bón og þvottastöðvarinnar
sem opnaði á Grjóthálsi í lok árs 2011. Ari Rafn
Vilbergsson, núverandi eigandi Bón- og þvotta-
stöðvarinnar, keypti einmitt reksturinn í Sigtúni
fljótlega eftir að Kjartan lét af störfum og rak stöð-
ina í Sigtúni þar til hún vék fyrir nýju skipulagi.
Stöðin hefur nú opnað á nýjan leik á Grjóthálsi og
því má til sanns vegar færa hún sé elsta sjálfvirka
bílaþvottastöð landsins.
Ari Rafn segir að strákarnir á stöðinni hafi alltaf
mjög gaman af því að þrífa bíl Kjartans, enda sér-
lega glæsilegur gripur þar á ferð. Kjartan ekur um
á glæsilegum Lincoln Continental sem hann keypti
nýjan árið 1978 og hefur haldið vel við alla tíð. Bíll-
inn var smíðaður í tilefni af 75 ára afmæli Ford og
aðeins 500 slíkir voru framleiddir. Eins og sést á
meðfylgjandi mynd fór sérlega vel á með þeim fé-
lögum sem hafa sannarlega upplifað tímana tvenna
í bílaþvottinum. Kjartan, sem er 86 ára gamall,
segist hugsa með hlýju til þess tíma þegar hann
rak bílaþvottastöðina í Sigtúni. „Á sólríkum dögum
var stundum röð hjá mér alla leið upp á Laugaveg.
Þegar ég kom hingað í Grjóthálsinn til Ara í fyrsta
sinn og bílinn rann í gegn, þá fannst mér eins og ég
væri kominn aftur í gömlu stöðina mína í Sigtúni.
Mér fannst eins og ég væri kominn heim,“ sagði
Kjartan. -óhþ
Þrif BílaBón
Lætur bóna bílinn í gömlu bónstöðinni sinni
Kjartan og Ari við Lincoln-ferlíkið.
list steinunn endurgerði stolið listaverk
Öryggismyndavélar
vakta bronsstyttu í Hull
Síðasta sumar hvarf „Voyage“, eða „För“, listaverk Steinunnar Þórarinsdóttur, af stalli sínum á hafnar-
bakkanum í Hull. Talið var víst að rummungarnir sem rændu blýþungu bronsverkinu hafi brætt verkið
og selt málminn. Verksins var sárt saknað í hafnarborginni og í dag, föstudag, verður endurgerð
verksins afhjúpuð á sama stað. Og nú á allt að vera pottþétt og Steinunn telur víst að verkið fái nú að
standa á sínum stað um ókomna tíð.
t jónið vegna listaverkaþjófnaðarins hefði í raun verið óbætanlegt ef verkið hefði ekki átt systurverk heima á Ís-
landi. „Verkið var einfaldlega gert aftur,“ segir
Steinunn. „Við vorum svo heppin að verkið var
í rauninni til ennþá. Annars hefði þetta eigin-
lega ekki verið hægt,“ segir Steinunn og vísar
til þess að verkið var í tveimur hlutum. Annar
hluti þess var í Hull en hinn í Vík í Mýrdal og
því var hægt að taka mót af verkinu í Vík til
að endurgera verkið í Hull. Verkið var gert til
minningar um breska sjómenn sem fórust við
Íslandsstrendur og til þess að fagna þúsund ára
sambandi Íslands og Bretlands. Einnig voru 30
ár liðin frá lokum síðasta þorskastríðs.
Fígúrurnar horfðust síðan á yfir hafið þang-
að til sú í Bretlandi hvarf. Líklega í bræðsluofn.
Steinunn er þó hvergi bangin og notaði sama
eftirsótta hráefnið í eftirmyndina. „Já, það
á ekki að gefast upp gagnvart þessu,“ segir
hún og hlær. „Öryggismyndavélar verða nær
verkinu núna og frekari ráðstafanir gerðar.
Verkið verður líka fest aðeins öðruvísi niður og
líklega hefur frágangurinn ekki verið alveg 100
prósent hjá þeim síðast en þetta á að vera alveg
pottþétt núna.“
Steinunn gerði verkið til að fagna þúsund
ára sambandi Íslands og Bretlands og afkom-
endum breskra sjómanna, sem sigldu frá Hull
en fórust í skipsskaða, þótti sárt að horfa á eftir
verkinu sem þeir tengja tengdu við minningu
látinna ástvina.
Endurkomunni er því tekið fagnandi í Hull.
„Fólk var miður sín yfir þessu þannig að ég
held að þetta sé góð lausn og frábært að þau
ákváðu strax að ráðast í endurgerðina og það er
bara almenn gleði með þetta.“
„Voyage“ var á sínum tíma samvinnuverkefni
breska utanríkisráðuneytisins, ríkisstjórnar
Íslands, borgaryfirvalda í Hull og Víkur í
Mýrdal. Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands
í London, og Colin Inglis, borgarstjóri Hull,
munu afhjúpa verkið á föstudag. Steinunn segir
Inglis hafa átt stóran þátt í að verkið varð að
veruleika í upphafi en hann var forseti borgar-
stjórnar þá. Alp Mehmet, fyrrum sendiherra
Breta á Íslandi, tók einnig þátt í verkefninu og
hann verður einnig viðstaddur afhjúpunina.
Verkið var fyrst afhjúpað 23. júní árið 2006 og
Steinunn segist vonast til þess að það verði nú
afhjúpað í síðasta skipti.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Pétur Bjarnason myndhöggvari vinnur
að því að taka silikonmót af verkinu.
Steinunn Þórarins-
dóttir við verkið á
afhjúpunardeginum
23. júní 2006.
60 dægurmál Helgin 11.-13. maí 2012